Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu 1. maí 2026 14:31 Við skipulag og umhverfismótun þarf að huga að mikilvægum lífsgæðum í nærumhverfi fólks. Þetta á ekki síst við um þéttingu með nýbyggingum í eldri hverfum. Lífsgæði í umhverfiskipta máli Dæmi um slík lífsgæði eru ósnortin náttúra, opin svæði, leikvettvangur barna, víðfeðmi, útsýni, dagsbirta, sólarljós, samræmt yfirbragð í eldri byggingarstíl, kennileiti, saga og sérkenni eldri hverfa, innviðir á borð við skóla og samgöngur, samheldni íbúa og samráð við íbúana. Ofstæki kveikir ófriðarbál Ofurþétting borgaryfirvalda í grónum hverfum, á undanförnum árum, byggir á þeirri sannfæringu að til sé aðeins eitt, algilt og endanlega rétt skipulag, hafið yfir allan vafa og hafið yfir skoðanir, réttindi, hagsmuni og tilfinningar íbúanna. Í slíkum tilfellum er yfirleitt valtað yfir flest þau lífsgæði sem talin eru upp hér að framan, án þess að íbúarnir sem fyrir eru fái nokkru um það ráðið. Slíkt háttalag er í raun innrás í nærumhverfi. Ofstæki af þessu tagi hefur kveikt ófriðarbál milli borgaryfirvalda og borgarbúa um alla borg: í Bústaðahverfi, Laugardalnum, Skerjafirði, Breiðholti og í Grafarvogi. Ofurþéttingin studd með samningi um vaxtarmörk hefur líka haft mjög neikvæð áhrif á efnahagsleg lífskjör reykvíkinga með uppsprengdu lóða- og íbúðaverði og tilheyrandi verðbólguáhrifum. Raunverulegt íbúalýðræði Miðflokkurinn vill uppræta slíkan yfirgang. Við viljum að unnið sé að skipulagsmálum í hverfum borgarinnar í sátt og samstarfi við íbúana og að þeir fái ótvíræðan rétt til að hafa áhrif á ákvarðanir um nærumhverfi sitt. Grafarvogsbúar hafa oft þurft að líða fyrir íþyngjandi afskipti borgaryfirvalda af sínum málum. Skemmst er að minnast sameininga og hrókeringa á skólum Grafarvogs. Allt það rask var réttlætt með hagræðingu sem aldrei skilaði sér. Ef Miðflokkurinn kemst til valda munum við afturkalla áform borgaryfirvalda um fyrirhugaða ofurþéttingu í Grafarvogi og víðar. Fjölbreytni í búsetukostum Í stað þess að öllum nýjum íbúðum sé komið fyrir í fjölbýlishúsum sem troðið er inn í gróin hverfi eins og hér hefur verið lýst, vill Miðflokkurinn brjóta land undir ný íbúðahverfi fyrir fjölbreytta, fjölskylduvæna íbúðabyggð, í fjölbýlishúsum, raðhúsum og einbýlishúsum með nægum bílastæðum. Þannig verði tryggt val á búsetukosti í samræmi við eftirspurn. Vinstri meirihlutinn er hins vegar andvígur slíku vali. Árið 2024 samþykkti hann byggingaráform fyrir 1289 íbúðir í Reykjavík. Gert er ráð fyrir að 99% þeirra íbúða verði í fjölbýlishúsum. Við höfnum slíku einhliða forræði yfirvalda. Við viljum stórauka lóðaframboð fyrir alla búsetukosti, færa almennum borgurum aftur réttinn til að fá úthlutað lóðum, lækka þannig lóða- og íbúðaverð og gera sem flestum kleift að eignast eigin íbúð. Höfundur er oddviti Miðflokksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Miðflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ari Edwald Mest lesið Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Er bara best að þegja? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason Skoðun Reykjavík er höfuðborg, ekki fjölmenningarborg Kristín Kolbrún Waage Kolbeinsdóttir Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir Skoðun Skoðun Skoðun Langt frá hátekjulistanum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Hugum að lífsgæðum - höfnum ofurþéttingu skrifar Skoðun Borgin sem hætti að hlusta skrifar Skoðun Virðing, virkni og góð lífsgæði alla ævi Ellý Tómasdóttir,Ólafía Ingólfsdóttir skrifar Skoðun 414 ástæður til að gera betur Anna Sigríður Hafliðadóttir skrifar Skoðun Barátta sem skiptir sköpum Svanfríður Bergvinsdóttir skrifar Skoðun Verkalýðsbarátta okkar daga Jónas Már Torfason skrifar Skoðun 1. maí: Sóknarfæri í jafnrétti eða skref aftur á bak? Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Styrkur okkar er velferð allra Finnbjörn A. Hermannsson skrifar Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar Skoðun Leyfist Íslendingum að stjórna sínum eigin málum? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Fjörður fyrir fólk Árni Stefán Guðjónson skrifar Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar Skoðun Ef við stöndum upp er leikurinn búinn! Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Tækifæri á vinnumarkaði Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hugleiðing á 1. maí. Steinar Harðarson skrifar Skoðun Virðum vinnu listafólks Jóna Hlíf Halldórsdóttir skrifar Skoðun Vilja stjórnvöld halda Grímsey í byggð? Ásthildur Sturludóttir skrifar Skoðun Hvers vegna eru vextirnir lágir, Dagur? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Bestum borgina fyrir skynsegið fólk! Olga Margrét Cilia skrifar Skoðun Pólland að verða efnahagsveldi - kallar eftir fleira fólki Jónas Guðmundsson skrifar Skoðun Lægri skattar eru réttlætismál fyrir ungt fólk Arnar Elvarsson skrifar Skoðun Ég lifi í draumi! Ingvar Örn Ákason skrifar Skoðun Neyðarkall úr Eyjum Hallgrímur Steinsson skrifar Skoðun Hvað er svona gott við að búa í Kópavogi? Sveinn Gíslason skrifar Skoðun Stytting vinnuvikunnar í Reykjavík tekin út í umferðartöfum Ari Edwald skrifar Skoðun Viltu græða sólarhring í hverjum mánuði? Hjördís Lára Hlíðberg skrifar Skoðun Nýr golfvöllur í Hafnarfirði Örn Geirsson skrifar Skoðun „Hvaða plön ertu með í sumar?“ Vigdís Ásgeirsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Barnamenning - Mikilvægt samkenndarafl Halldóra Rut Baldursdóttir,Lína Björg Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Óhagkvæmar stórframkvæmdir eru ávísun á efnahagslega afturför Þórarinn Hjaltason,Þorkell Sigurlaugsson skrifar
Skoðun Sjúkdómsgreining stjórnsýslunnar: Þegar valdafíkn tæmir ríkiskassann Sigurður Sigurðsson skrifar