„Dapurlegt pólitískt útspil“ Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. maí 2026 17:49 Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs og oddviti Sjálfstæðismanna. Vísir/Anton Brink Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs vísar pillum Kristrúnar Frostadóttur til föðurhúsanna. Um dapurt pólitískt útspil sé að ræða.
Kristrún var vægðarlaus í garð Kópavogsbæjar í ræðu sinni í tilefni verkalýðsdagsins. Hún ávarpaði fund Samfylkingarfélagsins í Reykjavík og sparaði þar ekki stóru orðin. Hún gagnrýndi bæjarstjórnina harðlega fyrir há leikskólagjöld og að bærinn hefði ekki úthlutað húsnæðisfélaginu Bjargi stakri byggingarlóð. Svarar í sömu mynt Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri geldur líku líkt. „Ég velti því fyrir mér hvort forsætisráðherra sé í framboði fyrir Samfylkinguna í Kópavogi og er að reyna að beina kastljósinu af hörmulegum rekstri borgarinnar eins og birtist í nýjum ársreikningi, og þeirri slöku leikskólaþjónustu sem þar er boðið upp á,“ segir hún. „Ég heyri ekki að það sé eftirspurn eftir Samfylkingarmódeli Reykjavíkur sem forsætisráðherra er að boða. Hvorki í Kópavogi né held ég í öðrum sveitarfélögum.“ Hún segir það sæta furðu að spjótum sé beint að Kópavogi í samhengi við leikskólamál. „Við erum það sveitarfélag sem hefur unnið hvað mest að því að finna lausnir í leikskólamálum, og innleitt þær með árangursríkum hætti sem hefur skilað sér í stórbættri þjónustu. Við sjáum það í mælingum. Í nýlegri mælingu Gallup er mesta ánægjuaukningin hjá barnafólki í bænum.“ Sporin hræði Verkalýðsdagsræða forsætisráðherra hafi heldur mátt nýta til að hampa starfsfólki leikskóla í stað þess að boða hugmyndafræði „sem hefur engu skilað í Reykjavík og valdið endalausum vonbrigðum meðal fjölskyldna þar.“ „Sporin hræða og mér finnst nærri lægi að forsætisráðherra leggi áherslu á það á degi sem þessum á það hvernig ríkisstjórnin ætlar að ná tökum á verðbólgu og hækkandi vaxtastigi. Þetta er eitt stærsta hagsmunamál heimila og mér finnst miður að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur gjörsamlega misst tökin. Ég hefði haldið að ræðan hennar fjallaði frekar um það. Mér finnst þessar áherslur endurspegla enga framsýni, engar lausnir og slá bara ryki í augu kjósenda og einhvern veginn er Kópavogur skotspónninn sem er auðvitað bara stórundarlegt.“
Kópavogur Sveitarstjórnarkosningar 2026 Verkalýðsdagurinn Sjálfstæðisflokkurinn Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira