Situr límdur við skjáinn yfir leikjum KR Valur Páll Eiríksson skrifar 2. maí 2026 08:02 Orri Steinn Óskarsson segir KR skemmtikrafta deildarinnar og kveðst stoltur af því að fylgjast með liðinu sem leikur undir stjórn föður hans. Getty/Cesar Ortiz Gonzalez Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson fylgist vel með liði KR í Bestu deild karla í fótbolta, enda þjálfar faðir hans liðið. Hann mun stilla inn og býst við sigri er KR mætir Val í kvöld.
Orri Steinn er loks kominn á skrið með Real Sociedad á Spáni eftir meiðslahrjáðan vetur og vann á dögunum spænskan bikartitil með liðinu eftir sigur á Atlético Madrid í úrslitaleik. Klippa: Orri Steinn ræðir KR og Óskar Hrafn Milli þess sem hann æfir og spilar leiki sjálfur fylgist hann vel með boltanum víðs vegar um heim, ekki síst liði KR, sem faðir hans, Óskar Hrafn Þorvaldsson stýrir. KR-liðið hefur farið glimrandi vel af stað í Bestu deildinni í sumar, er með fullt hús og raðar inn mörkum. „Ég fylgist eiginlega með öllum leikjunum. Ég kannski missi af þegar ég er að ferðast í mína eigin leiki og ef það hittir eitthvað illa á. En ég hef fylgst með þessari flugeldasýningu. Þetta er skemmtilegasta lið deildarinnar, það er bara þannig. Við elskum sóknarbolta á heimilinu. Það er bara að njóta og geggjað að fylgjast með honum. Ég er stoltur af honum og hann stendur sig vel,“ segir Orri Steinn í samtali við Vísi. Þolinmæðisverk - enginn betri að byggja upp lið KR átti í miklum erfiðleikum á síðustu leiktíð og bjargaði sér frá falli í lokaumferð deildarinnar. Það er því örlítill munur fyrir Orra að fylgjast með liðinu, og föður sínum nú, samanborið við í fyrra. „Það var auðvitað erfitt úrslitalega séð, en ég fann það – ég tala við pabba á hverjum degi – og maður heyrði á honum að hann var viss um verkefnið og viss um vegferðina sem þeir voru á. Ég sá það sjálfur í Gróttu, vegferð sem hann getur tekið lið á. Ég held það sé enginn betri maður en hann að byggja upp lið frá grunni og keyra á verkefnið og fylgja sínum gildum,“ „Maður fann það á honum á síðasta tímabili líka, jafnvel þegar hlutirnir voru í erfiðri stöðu, að þá var hann alltaf trúr sjálfum sér og fylgdi sínu,“ segir Orri Steinn. Spáir markaleik í sigri á Val í kvöld En eins og þú nefnir, þetta eru skemmtikraftar deildarinnar og þú mælir með að fólk stilli inn? „Ég mæli með fyrir alla að kíkja á Meistaravelli í sumar eða hvar sem þeir eru að spila. Ef þú vilt fá flugeldasýningu kíkirðu þangað. Bara frábært að fylgjast með þessu liði og þeir hafa bætt við sig. Það er geggjað að sjá vin minn Arnór Ingva koma inn og smellpassa inn í þetta og aðra leikmenn sem eru að stíga gríðarlega upp,“ segir Orri Steinn. Orri segist þá spenntur fyrir því að fylgjast með stórleik kvöldsins milli KR og Vals á Hlíðarenda. Hann mun stilla inn á Besta sætið frá San Sebastian. „Ég er bara spenntur fyrir leiknum á laugardaginn og tímabilinu öllu. Ég held að KR vinni að sjálfsögðu. En þetta verður erfiður leikur. Valsararnir eru með flott lið og góða leikmenn. Þetta verður hörkuleikur, eflaust mikið af mörkum og vonandi bara KR-megin. Ég fylgist vel með og styð við bakið á KR,“ segir Orri Steinn. Viðtalið má sjá í spilaranum. Valur og KR eigast við á Hlíðarenda í Bestu deild karla klukkan 19:15 í kvöld. Bein útsending hefst klukkan 19:00 á Sýn Sport Ísland.
KR Besta deild karla Spænski boltinn Mest lesið Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Íslenski boltinn Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Partey ekki hleypt inn í Kanada og missir af fyrsta leik Gana á HM Fótbolti Jökull rekinn frá Stjörnunni Íslenski boltinn Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Íslenski boltinn Grafarþögn í útsendingu Suður-Afríku eftir leik Fótbolti Almar ekki í kassanum Fótbolti Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Fleiri fréttir Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira