Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar Freyja Þórisdóttir skrifar 2. maí 2026 14:02 G. Pétur Matthíasson segist vongóður um að hægt verið að sigla á milli Eyja og Landeyjarhafnar á næstu dögum en vill ekki lofa neinu. Vísir/Vilhelm Innviðaráðuneytið kynnti í vikunni viðbrögð við því sem það kallar alvarlega stöðu í samgöngumálum Vestmannaeyja síðustu vikur. Síðast sigldi Herjólfur til Landeyjahafnar þann 5. apríl en Vegagerðin hefur undanfarið staðið að dýpkun í höfninni við óvenju erfiðar aðstæður. Veður hefur gert þeim erfitt fyrir en bilun varð í dýpkunarskipinu Álfsnesi sem sinnt hefur dýpkun í höfninni. „
Aðstæður hafa verið einstaklega erfiðar núna eins og sést bara á því hvernig fór í Reynisfjöru,“ segir G. Pétur Matthíasson, forstöðumaður samskiptadeildar Vegagerðarinnar, í samtali við blaðamann Vísis. „Við búum á Íslandi í opnu Atlantshafi og að halda höfn opinni á sandströnd er ekki auðvelt,“ bætir hann við en segir að dýpkun hafi gengið vel í morgun. „Við erum að dýpka og það gekk mjög vel að dýpka á flóðinu í morgun,“ segir Pétur og bætir við að útlitið næstu daga sé gott. Það verði vonandi hægt að sigla á milli Eyja og Landeyjarhafnar innan fárra daga en hann vilji ekki lofa neinu. „Við vorum búin að dýpka í síðustu viku og svo varð aldan erfið og það kom mjög mikill sandur þannig að dýpkunin sem var búin að vinnast fylltist aftur, aðstæður eru mjög krefjandi,“ segir hann og að þetta sé svona eitt skref áfram, tvö afturábak verkefni. Erlent fyrirtæki tekur við Belgíska fyrirtækið Jan De Nul tekur við dýpkunarframkvæmdum í haust en verkinu var úthlutað eftir útboð Vegagerðarinnar. „Við eigum eftir að sjá hvernig Jan De Nul gengur að dýpka næsta vetur, við erum með samning til þriggja ára, en það er ekki hvaða skip sem getur dýpkað í mynni Landeyjarhafnar,“ segir Pétur og nefnir að áður hafi verið fengnir erlendir aðilar í dýpkun en þetta sé erfiðara á Íslandi en víða annars staðar.
Vestmannaeyjar Landeyjahöfn Samgöngur Tengdar fréttir Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Ljóst er að senda þarf mótorinn í Herjólfi utan til viðgerðar og verður skipið af þessum sökum ekki í áætlunarsiglingum milli lands og Eyja á mánudag og þriðjudag heldur mun Breiðafjarðarferjan Baldur leysa af. 15. apríl 2026 18:07 Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Bilun kom upp í vél fyrir bógskrúfu á dýpkunarskipinu Álfsnesinu í nótt, þar sem unnið var að dýpkun Landeyjahafnar. Af þeim sökum er ekki unnt að halda dýpkunarframkvæmdum áfram fyrr en búið er að gera við bilunina og skipta um viðkomandi búnað. Unnið er að því að fá varahluti erlendis frá. „Það er algerlega óásættanlegt að ekki verið til taks skip til að dýpka næstu daga og vikur, við því þarf Vegagerðin að bregðast,“ segir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar. 2. mars 2026 17:07 „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Mikið landrof hefur orðið í Reynisfjöru. Íbúar segjast aldrei hafa átt von á öðru eins. Náttúruvársérfræðingur segir austanáttina hafa verið stöðuga á svæðinu síðustu vikur og hafaldan með. Hún á von á því, sem og íbúar, að eitthvað af sandinum sem hafi færst til komi aftur. Það er þó alveg óvíst hvort hann komi allur til baka. 8. febrúar 2026 22:02 Mest lesið Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Innlent Bein útsending: Bandero kominn til Sundahafnar Innlent Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Erlent Árið sem skytturnar fjórar kvöddu Lífið „Þá bara krassa lungun“ Innlent Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero Innlent Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Innlent Fleiri fréttir Megas jarðsunginn í áhrifaríkri útför Bein útsending: Bandero kominn til Sundahafnar Komin handbók um hvernig stefna megi ríkjum og Ísland geti verið næst Leggja áherslu á mannúðarlegar aðgerðir vegna minkanna Skipstjóri Bandero handtekinn og skipið fært til hafnar Myndi glaður sjá réttarhöld yfir skipverjum Bandero „Þá bara krassa lungun“ Bruni við Breiðhöfða Vasaþjófnaður daglegur atburður og verulegar fjárhæðir teknar Vaktin: Bandero hrellir Hval 9 Þaulskipulagðir vasaþjófar, minkaveiðar og lífgjöf Dekk sprakk við lendingu vélar Borgarísjaka rekur í átt að Skagafirði Stærsta umferðarhelgi ársins hafin Bílstjóri horfði á skelfingu lostinn Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi foreldra mætti litblindum syninum Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Sjá meira
Mótorinn í Herjólfi þarf til útlanda Ljóst er að senda þarf mótorinn í Herjólfi utan til viðgerðar og verður skipið af þessum sökum ekki í áætlunarsiglingum milli lands og Eyja á mánudag og þriðjudag heldur mun Breiðafjarðarferjan Baldur leysa af. 15. apríl 2026 18:07
Dýpkun Landeyjahafnar seinkar: „Algerlega óásættanlegt“ Bilun kom upp í vél fyrir bógskrúfu á dýpkunarskipinu Álfsnesinu í nótt, þar sem unnið var að dýpkun Landeyjahafnar. Af þeim sökum er ekki unnt að halda dýpkunarframkvæmdum áfram fyrr en búið er að gera við bilunina og skipta um viðkomandi búnað. Unnið er að því að fá varahluti erlendis frá. „Það er algerlega óásættanlegt að ekki verið til taks skip til að dýpka næstu daga og vikur, við því þarf Vegagerðin að bregðast,“ segir bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar. 2. mars 2026 17:07
„Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Mikið landrof hefur orðið í Reynisfjöru. Íbúar segjast aldrei hafa átt von á öðru eins. Náttúruvársérfræðingur segir austanáttina hafa verið stöðuga á svæðinu síðustu vikur og hafaldan með. Hún á von á því, sem og íbúar, að eitthvað af sandinum sem hafi færst til komi aftur. Það er þó alveg óvíst hvort hann komi allur til baka. 8. febrúar 2026 22:02