Til kennara og foreldra í Kópavogi María Ellen Steingrímsdóttir og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifa 4. maí 2026 07:30 Mikil umræða hefur verið um grunnskólamál að undanförnu, ekki síst um námsárangur, einkunnakerfi og lesskilning nemenda. Kópavogsbær getur ekki breytt einkunnakvarða nemenda því samkvæmt lögum ber skólum að fara eftir aðalnámskrá grunnskóla. Til að ná raunverulegum umbótum á námsárangri þarf að horfa til náms- og starfsumhverfis nemenda og kennara og þeirrar þjónustu sem börnin þurfa á að halda. Álag í starfi kennara hefur aukist og við verðum að skapa aðstæður sem gera kennurum kleift að sinna kjarnahlutverki sínu sem er kennsla. Það eru ekki öll börn sem fá skólaúrræði eða stuðning við hæfi sem verður að bregðast við. Góð menntun og snemmtæk íhlutun á fyrstu skólaárum er ein mikilvægasta fjárfesting samfélagsins. Öll börn eiga rétt á skólaúrræði við hæfi Í íslensku samfélagi eru lög um að skóli eigi að vera fyrir alla, skóli án aðgreiningar. Í okkar samfélagi eru sérskólar og sérdeildir fyrir nemendur sem þurfa annað og sérhæfðara námsumhverfi. Mikilvægt er að allir nemendur fái viðeigandi skólaúrræði sem hentar þeirra þörfum. Í Kópavogi eru þessi úrræði hins vegar takmörkuð. Foreldrar geta sótt um sérskóla eða sérdeildir einu sinni á ári fyrir börn sín og er aðsókn mikil miðað við fjölda plássa. Það er ástæða fyrir því að foreldrar sækja um í sérúrræðum fyrir börnin sín og þegar foreldrar vita að hverfandi líkur eru á að barn þeirra komist að í viðeigandi úrræði er það óásættanlegt. Kerfið nær því ekki að þjónusta öll þau börn sem þurfa á sérhæfðu skólaúrræði að halda. Það er nauðsynlegt að bregðast við þessari stöðu með því að efla úrræði, fjölga plássum, stofna nýjan sérskóla eða styrkja sérfræðiþjónustu innan skólanna. Börn eiga rétt á menntun við hæfi. Fleiri sérfræðinga á gólfið Nemendahópurinn hefur breyst undanfarinn áratug og kallar á aukna og fjölbreyttari sérfræðiþjónustu. Mikilvægt er að börn fái aðgang að viðeigandi stuðningi sem fyrst. Þó að aðgengi að sálfræðingi, hjúkrunarfræðingi, námsráðgjafa og talmeinafræðingi sé til staðar í grunnskólum Kópavogs, er ljóst að þörf er á fleiri fagstéttum. Sérstaklega er þörf á að efla aðkomu þroskaþjálfa, atferlisfræðinga, iðjuþjálfa og félagsráðgjafa innan skólanna sjálfra. Með því að færa þjónustuna nær daglegu skólastarfi má styðja betur við bæði nemendur og kennara. Endurskoða stærð námshópa Kennarar og foreldrar hafa kallað eftir minni námshópum. Sífellt færri kennarar sjá sér fært að taka að sér hlutverk umsjónarkennara vegna aukins álags. Nemendahópar í dag eru fjölbreyttari en áður sem eykur álag á kennara sem eru að gera sitt besta til að koma til móts við þarfir allra nemenda. Í Kópavogi var sett þak á stærð námshópa á yngsta stigi, 22-24 nemendur, sem er skref í rétta átt. Hins vegar er of mikið bil á milli leik- og grunnskóla. Á síðasta ári leikskóla er gjarnan miðað við 8-10 börn á hvern kennara. Nokkrum vikum síðar, við upphaf grunnskóla, geta allt að 22 nemendur verið í hóp hjá einum kennara sem er meira en tvöföldun á örfáum vikum. Þetta er mikið stökk fyrir ung börn sem eru að aðlagast nýju og stærra umhverfi. Á mið- og unglingastigi geta hópar hins vegar farið upp í 28-29 nemendur. Auknar kröfur í kennslustofunni svo sem fjölbreyttari nemendahópar og meiri stuðningsþarfir gera það að verkum að stórir námshópar eru engum í hag. Nauðsynlegt er að endurskoða viðmið um stærð námshópa og laga þau að breyttum aðstæðum. Sterkari tengsl í minni námshópum Minni námshópar skapa betri aðstæður til að mynda traust tengsl á milli nemenda og kennara. Kennarar gegna lykilhlutverki í að grípa nemendur sem eiga undir högg að sækja, og í minni hópum eykst möguleikinn á að bregðast snemma við. Þetta á ekki síst við nemendur með fjölbreyttan bakgrunn, þar á meðal börn með annað móðurmál en íslensku, börn með aðrar áskoranir svo sem krefjandi hegðun eða mikla vanlíðan. Með minni hópum gefst kennurum betra svigrúm til að styðja hvern og einn nemanda sem eykur líkur á árangri. Með þessum hætti er hægt að taka betur utan um alla nemendur og því er mikilvægt að endurskoða stærð námshópa með hag nemenda og kennara að leiðarljósi. Öflugir skólar - horfum til framtíðar Við í Viðreisn viljum gera grunnskóla Kópavogs eftirsóknarverða þar sem faglegt starf fær að blómstra. Með því að bæta starfsumhverfi, minnka álag og styrkja stoðkerfið innan skólanna er hægt að skapa betri aðstæður fyrir bæði nemendur og kennara. Með markvissum aðgerðum getum við byggt upp öflugt menntakerfi sem skilar raunverulegum árangri fyrir börnin og samfélagið í heild. Börnin okkar eru framtíðin. María Ellen Steingrímsdóttir er oddviti Viðreisnar í Kópavogi og Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skólastjóri og 4. sæti á lista Viðreisnar í KópavogiHöfundar bjóða kennurum og öðru starfsfólki í leik- og grunnskólum Kópavogsbæjar til samtals á kosningaskrifstofu Viðreisnar á fimmtudaginn, 7. maí, milli kl. 16:30 og 18:30 í Hamraborg 9 - þriðju hæð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Viðreisn Skóla- og menntamál Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar