Gefum sköpunargáfu barna það pláss sem hún á skilið Guðrún Lína Thoroddsen skrifar 5. maí 2026 10:02 Er ekki löngu orðið tímabært að ræða hvað við viljum að skólarnir okkar standi fyrir? Við höfum byggt upp sterka íþróttamenningu og það hefur skilað árangri. En á sama tíma hefur sköpunargáfa barna setið á hakanum þegar kemur að forgangsröðun og fjármagni. Við þurfum að breyta því! Börn þurfa rými, frið og hvatningu til að vera skapandi. Það er ekki lúxus, það er nauðsyn. Sköpunargáfa gefur þeim ómetanlegt veganesti inn í lífið. Hún byggir upp sjálfsöryggi, sjálfstæða hugsun og virkari huga. Þeir eiginleikar gera einstaklinga færari um að takast á við síbreytilegan heim. Það gerist hins vegar ekki af sjálfu sér og það er því gífurlega mikilvægt að tryggja að sköpun fái raunverulegt vægi í starfi skóla og frístundastarfs. Það krefst skýrrar stefnu og aukins fjármagns í list- og verkgreinar, bættrar aðstöðu og fjölbreyttari frístundakosta fyrir börn og ungmenni. Við eigum ekki að þurfa að velja á milli íþrótta og sköpunar. Heilbrigt samfélag styður hvort tveggja. Með markvissri fjárfestingu í listum og menningu erum við ekki aðeins að styðja við hæfileika barna. Við erum að byggja upp samfélag sem er skapandi, gagnrýnið og sterkt til framtíðar. Erum við tilbúin að gefa sköpunargáfu það pláss og virði sem hún á skilið? Höfundur skipar 4. sæti í bæjarstjórnarkosningum fyrir Vinstrið í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Er ekki löngu orðið tímabært að ræða hvað við viljum að skólarnir okkar standi fyrir? Við höfum byggt upp sterka íþróttamenningu og það hefur skilað árangri. En á sama tíma hefur sköpunargáfa barna setið á hakanum þegar kemur að forgangsröðun og fjármagni. Við þurfum að breyta því! Börn þurfa rými, frið og hvatningu til að vera skapandi. Það er ekki lúxus, það er nauðsyn. Sköpunargáfa gefur þeim ómetanlegt veganesti inn í lífið. Hún byggir upp sjálfsöryggi, sjálfstæða hugsun og virkari huga. Þeir eiginleikar gera einstaklinga færari um að takast á við síbreytilegan heim. Það gerist hins vegar ekki af sjálfu sér og það er því gífurlega mikilvægt að tryggja að sköpun fái raunverulegt vægi í starfi skóla og frístundastarfs. Það krefst skýrrar stefnu og aukins fjármagns í list- og verkgreinar, bættrar aðstöðu og fjölbreyttari frístundakosta fyrir börn og ungmenni. Við eigum ekki að þurfa að velja á milli íþrótta og sköpunar. Heilbrigt samfélag styður hvort tveggja. Með markvissri fjárfestingu í listum og menningu erum við ekki aðeins að styðja við hæfileika barna. Við erum að byggja upp samfélag sem er skapandi, gagnrýnið og sterkt til framtíðar. Erum við tilbúin að gefa sköpunargáfu það pláss og virði sem hún á skilið? Höfundur skipar 4. sæti í bæjarstjórnarkosningum fyrir Vinstrið í Hafnarfirði.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar