Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Árni Sæberg skrifar 5. maí 2026 12:11 Lárus í Landsrétti árið 2020. Óttar Pálsson, lögmaður hans á öllum dómstigum og fyrir Mannréttindadómstólnum, er fyrir aftan hann á myndinni. Vísir/Vilhelm Íslenska ríkið var í morgun sýknað af öllum kröfum Lárusar Welding fyrir Mannréttindadómstól Evrópu. Hann vildi meina að brotið hefði verið á rétti hans til réttlátrar málsmeðferðar með skipan Hrefnu Sigríðar Briem sem sérfróðs meðdómanda í Stím-málinu svokallaða. Sjö manna dómstólinn klofnaði í málinu.
Lárus var árið 2015 dæmdur í fimm ára skilorðsbundið fangelsi vegna Stím-málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur. Jóhannes Baldursson, fyrrverandi framkvæmdastjóri markaðsviðskipta Glitnis, var dæmdur í tveggja ára fangelsi og Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, fyrrverandi forstjóri Sögu Capital í 18 mánaða fangelsi. Forsaga málsins er sú að félagið Stím fékk tæplega 20 milljarða króna lán frá Glitni til að kaupa hlutabréf í Glitni og FL Group í nóvember árið 2007. Seljandi bréfanna var Glitnir en um var að ræða rúmlega 4 prósenta hlut í hvoru tilfelli. Veðin fyrir láni Stíms voru í hlutabréfunum í Glitni og FL Group. Dæmt aftur í héraði og staðfest í Landsrétti Mennirnir þrír kærðu málið til Hæstaréttar og kröfðust frávísunar á grundvelli þess að Sigríður Hjaltested, einn þriggja dómara málsins, hefði verið vanhæf til að dæma í því þar sem fyrrverandi eiginmaður hennar og barnsfaðir hefði starfað fyrir Glitni á sínum tíma. Hæstiréttur féllst á þau rök og ómerkti dóm héraðsdóms. Hæstiréttur féllst hins vegar ekki á að Símon Sigvaldason dómsformaður og Hrefna Sigríður Briem, sérfróður meðdómsmaður, hefðu verið vanhæf. Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi aftur í málinu sléttum tveimur árum eftir fyrri dómsuppsöguna, þá skipaður þeim Símoni og Hrefnu Sigríði auk Ingimundi Einarssyni, þáverandi dómstjóra Héraðsdóms Reykjavíkur. Sakborningar reyndu einnig að fá hann dæmdan vanhæfan. Hæstiréttur féllst ekki á það og héraðsdómur staðfesti fyrri dóm sinn. Árið 2020 staðfesti Landsréttur seinni dóm héraðsdóms hvað Lárus varðar en mildaði refsingu Jóhanns í átján mánaða skilorðsbundið fangelsi og Þorvaldar Lúðvíks í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi. Hæstiréttur hafnaði áfrýjunarleyfisbeiðni þeirra sama ár. Fjórir á móti þremur Í dómi Mannréttindadómstóls Evrópu segir að Lárus hafi kært íslenska ríkið til dómstólsins vegna ætlaðs brots á ákvæði mannréttindasáttmála Evrópu sem tryggir mönnum réttinn til réttlátrar málsmeðferðar, með skipan Hrefnu Sigríðar sem sérfróðs meðdómanda. Hann hafi haldið því fram að ófullnægjandi lagarammi og ógegnsætt ferli við val slíkra dómara ylli kerfisgöllum og veitti ekki vernd gegn óeðlilegum áhrifum. Niðurstaða fjögurra dómara við réttinn hafi verið að sjálfstæði Héraðsdóms Reykjavíkur hefði ekki verið teflt í tvísýnu með skipaninni og ekki hefði hallað á Lárus við meðferð málsins. Einn dómari skilaði sératkvæði með sömu niðurstöðu en þrír skiluðu sératkvæði og vildu fallast á kröfur Lárusar.
Dómsmál Mannréttindadómstóll Evrópu Hrunið Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira