Umhverfisvænasti orkugjafinn gleymdist Þórhallur Hákonarson skrifar 5. maí 2026 19:31 Metangas er einn umhverfisvænasti orkugjafi sem í boði er hér á landi enda er það framleitt úr matarleifum höfuðborgarbúa í Gas – og jarðgerðarstöð SORPU GAJU. Með því að nota metangas á þar til gerðar bifreiðar er umhverfisvænn innlendur orkugjafi nýttur í stað innflutts bensíns eða dísilolíu. Þrátt fyrir þetta hefur metangasið nú í tvígang orðið undir í aðgerðum stjórnvalda á einu ári. Það er bæði óskiljanlegt og óásættanlegt. Metangasið situr eftir Með breytingum ríkisstjórnarinnar, þar sem kílómetragjald var innleitt og breytingar gerðar á þungaskatti og olíugjaldi 1. janúar 2026, lækkaði lítraverð bensíns og dísilolíu hjá olíufélögunum umtalsvert. Það er út af fyrir sig jákvætt enda var einn tilgangur þessarar breytinga að ýta undir umhverfisvæna orkugjafa í samgöngum. Hins vegar var ekki tekið tillit til þess hóps sem hafði fjárfest í bifreiðum sem ganga fyrir innlendu metangasi. Þar með var samkeppnisstaða metans sem orkugjafa veikt með beinum hætti. Metanbifreiðar hafa í kjölfarið lækkað í verði, eigendur þeirra sitja uppi með verri stöðu og eftirspurn eftir metani kann að dragast verulega saman. Í verstu sviðsmyndinni skaðast markaður fyrir metangas til frambúðar. Þegar ljóst var að stjórnvöld ætluðu ekki að taka tillit til þessa umhverfisvæna orkugjafa sendi Metan ehf. fjármálaráðherra erindi þar sem farið var ítarlega yfir þessar afleiðingar. Þar var meðal annars lagt til að samkeppnisstaða metans yrði jöfnuð með afslætti af kílómetragjaldi, breytingum á virðisaukaskatti eða með beinum niðurgreiðslum sem hefðu kostað ríkissjóð um 40-50 milljónir króna á ársgrundvelli. Viðbrögð fjármálaráðuneytisins og umhverfis- orku og loftslagsmálaráðuneytisins voru mikil vonbrigði. Tillögunum var hafnað, meðal annars með vísan til mögulegra fordæma. Aftur er brotið á metangasinu Í nýkynntum aðgerðum ríkisstjórnarinnar vegna verðbólgu var eldsneyti fært í 11% virðisaukaskattsþrep. Metangas er hins vegar ekki hluti af þeirri breytingu. Það er óskiljanlegt og vekur eðlilega spurningar um jafnræði. Ef bensín og dísilolía fá skattalega lækkun en metangas ekki er verið að skerða samkeppnishæfni metans enn frekar. Metan ehf. fer fram á að þessi ákvörðun verði endurskoðuð og að metangas verði fært í 11% virðisaukaskattsþrep eins og annað eldsneyti. Við áætlum að fjárhagsleg áhrif fyrir ríkissjóð séu um 2,5 milljónir króna á mánuði. Það er lítil upphæð í ríkisbókhaldinu en stórt mál fyrir umhverfisvænan orkukost sem stjórnvöld ættu að styðja við fremur en að ýta út af markaði. Stjórnvöld ættu einnig að minnast þess að það voru þau sem hvöttu fólk til að fjárfesta í metanbifreiðum á sínum tíma. Nú virðist sem svo að þau sem fylgdu þeim ráðum eigi að sitja eftir. Metangas er innlendur, umhverfisvænn orkugjafi. Það á ekki að gjalda þess að falla ekki þægilega að einföldum skattkerfisbreytingum. Ef stjórnvöldum er alvara í tali sínu umorkuskipti og hringrásarhagkerfi verða þau að láta verkin tala. Höfundur er framkvæmdastjóri Metan ehf. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bensín og olía Umhverfismál Vistvænir bílar Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar