„Þverhausar“ komi í veg fyrir umræðu um sameiningu fyrir vestan Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 8. maí 2026 08:03 Guðmundur, fyrrverandi hafnarstjóri, kveðst vera flökkudýr í eðli sínu en hann hefur búið víða um heim, til dæmis í Asíu. Það var hins vegar Ísafjörður sem fékk hann til að vilja setjast að. Mannlífið sé með ólíkindum gott og mikið um að vera. Þótt hann sé kominn á eftirlaun er hann eiginlega aldrei heima hjá sér því dagskráin er full. Vísir/Bjarni Guðmundur M. Kristjánsson, fyrrverandi hafnarstjóri á Ísafirði, segir að Bolungarvík og Ísafjarðarbær ættu að vera sama sveitarfélagið.
Hræðsla og hræðsluáróður hafi komið í veg fyrir að almennilegar samræður um mögulega sameiningu sveitarfélaganna kæmust á skrið. Nú þegar styttist í sveitarstjórnarkosningar fara kjósendur að íhuga hvað skiptir þá máli og hvaða breytingar, ef einhverjar, þeir vilja sjá í sínu nærumhverfi. Fréttastofa hélt á dögunum til Vestfjarða og tók nokkra Vestfirðinga tali um stóru málin fyrir kosningarnar. Margir viðmælenda fréttastofu hafa búið fyrir vestan áratugum saman og gjörþekkja sitt sveitarfélag. Í spilaranum að neðan er hægt að horfa á þáttinn um Vestfirði í heild sinni en þar viðrar Guðmundur skoðanir sínar á stærstu málunum í bænum. Guðmundur hefur búið á Ísafirði í 24 ár en hann flutti þangað frá Asíu. Fréttamaður rak upp stór augu þegar hann sagðist upphaflega vera Bolvíkingur sem byggi nú á Ísafirði og spurði hvort það væru ekki svik við Bolungarvík en Guðmundur hélt nú hreint ekki. „Nei, nei, nei, þetta ætti í raun að vera sama sveitarfélagið. Það er í rauninni afskaplega heimskulegt að vera að reka hér mörg lítil sveitarfélög. Hér á bara að vera eitt stórt sveitarfélag og stuðningur við alla.“ Hann var þá spurður hvers vegna úr því hefði ekki orðið í ljósi þess að umræða um sameiningu kemur upp við og við. „Ég held það sé fyrst og fremst vegna þeirra sem ráða og líka þeirra sem ráða ekki. Það eru margir þverhausar til staðar sem koma í veg fyrir að umræðan sé tekin. Ég held það sé góður grundvöllur fyrir því að taka þessa umræðu. Sjáið bara þegar sveitarfélögin Þingeyri, Flateyri og Suðureyri sameinuðust Ísafjarðarbæ árið 1996 - það var „win, win“ fyrir alla og Ísafjörð líka. Það er skrítið að Bolungarvík og Súðavík séu ekki komin í þann pakka líka. Það er einhver hræðsla og hræðsluáróður.“ Undirlendið takmörkuð gæði Barst þá talið að fólksfjölgun í bænum en hún var talsvert umfram spá sveitarfélagsins. Áætlað var að íbúum myndi fjölga um 21-59 en raunfjölgunin reyndist síðan 150 manns, samkvæmt nýlegri úttekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Guðmundur segir að undirlendið sé takmörkuð gæði - og sýnir ljósmyndin það glöggt. „Ef við horfum á eyrina Ísafjörð eða Skutulsfjarðareyrina þar sem megnið af byggðinni er þá sérðu að það er ekki mikið land til og undirlendi er takmörkuð gæði hér. Okkur gafst alveg einstakt tækifæri þegar verið var að stækka höfnina hérna - sem er lífæð plássins. Tugum milljóna eða hundruðum milljóna verðmætum var kastað í sjóinn í staðinn fyrir að dæla á land og búa til undirlendi og búa til byggingaland; búa til útisvæði og búa til alls konar á því efni sem í raun og veru var hent, sem hefði verið ídealt að nota í hvað sem er og sérstaklega undir húsbyggingar.“ Margir sem fréttastofa ræddi við töluðu um skort á fjölbreytni í atvinnulífi bæjarins og vildu svo gjarnan að næsta bæjarstjórn reyni sitt besta til að laða að fjölbreytt fyrirtæki. Guðmundur var spurður hvort hann hefði einhverja skoðun á þessu. „Ísafjörður er náttúrlega þekktur fyrir útgerð og fiskvinnslu, sem hefur dalað, það er ekki margir togarar eftir hérna en ég held að þeir sem eru hér eftir, þetta eru góð fyrirtæki með öfluga starfsemi og vonandi haldast þau bara áfram. Það hefur líka byggst upp, og sérstaklega í gegnum höfnina, ég þekki það sem fyrrverandi hafnarstjóri að koma skemmtiferðaskipa er gríðarlega mikilvæg og samfélagið og bærinn nýtur góðs af því og þegar höfninni gengur vel þá gengur bænum vel,“ sagði Guðmundur. Ísafjörður fékk flökkudýrið til að setjast að En hvað með hann sjálfan? Finnst honum gott að búa á Ísafirði? „Það er náttúrulega alveg geggjað sko. Mjög gott. Ég búinn að búa víða og er flökkudýr í eðli mínu en hér liður mér vel og hér ætla ég að vera áfram. Hér er öflugt mannlíf; hér er músík, leiklist og öflugt starf eldri borgara og öflugt starf sjálfboðaliða. Við erum með skíðin, íþróttirnar, Aldrei fór ég suður - hátíðina, og bara nefndu það. Hér hafa allir nóg að gera. Ég sjálfur er alveg pakkaður af verkefnum og er aldrei heima hjá mér.“ Í ár hafa íbúar Ísafjarðarbæjar um fimm flokka að velja úr; Framsókn og óháða, Viðreisn, Sjálfstæðisflokk, Miðflokk og Samfylkingu. Þetta er breyting frá því í síðustu kosningum þegar Í-listinn sálugi sigraði en undir hans hatti buðu fram Samfylking, Viðreisn, VG og óháðir en í ár bjóða Viðreisn og Samfylking fram undir eigin merkjum.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Ísafjarðarbær Sveitarstjórnarmál Tengdar fréttir Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Fólksfjölgun var minni í fyrra en spár gerðu ráð fyrir og þannig náðist að vinna upp skuld í íbúðauppbyggingu. Enn eru þó langir biðlistar eftir leigu- og félagslegu húsnæði og mikil þörf á frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma og leikskólaplássa. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga á Íslandi. 9. apríl 2026 09:01 Mest lesið Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Erlent Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Innlent Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Innlent Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Innlent Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Erlent Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Innlent Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Erlent Séra Friðrik fær ekki að rísa strax Innlent Fleiri fréttir Loka hringveginum til norðurs á sunnudagskvöld Eden Mining lagði sóknarbörnin Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Skýrslan um krónuna sýni að valkostirnir séu tveir Styttan af Séra Friðriki fer upp, bara ekki strax Mynda meirihluta án Framsóknar í Skagafirði Truflanir á island.is Öryggisverðir inn fyrir bókaverði: „Hvar ætlum við að enda þetta?“ Þrír mánuðir til stefnu Stefán Jökulsson er látinn Viðræður þokast lítið áfram þrátt fyrir ítrekaða fundi Inga í veikindaleyfi Slagurinn um ESB og sumarhretið fyrir austan Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Bein útsending: Ópíóíðar og verkjalyf á Íslandi Kennarar tæta í sig greiningu Viðskiptaráðs Grunaður um að ofsækja son sinn sem sleit á öll tengsl Átta vilja vera forstjóri Hafró Eldur kviknaði í veitingastað í nýja miðbænum á Selfossi Erfitt að fullyrða nokkuð um orsakasamhengi milli 4G og fæðingartíðni Tónlistarskólar FÍH og Eddu Borg sameinast í þéttum takti Handtökur í tengslum við ræktun og þrjú skotvopn haldlögð Séra Friðrik fær ekki að rísa strax Hvalbátarnir komnir úr klössun fyrir vertíðina Safna fyrir fjölskyldu Steinunnar sem lést við barnsburð Hleyptu málinu í gegn eftir að hafa fengið „leynigögnin“ Tímasetning Canvas-árásarinnar engin tilviljun „Búinn að vera í löngu atvinnuviðtali hér í bæ“ „Þýðir ekki að það sé algjört töfralyf við öllum sjúkdómum“ Þjóðaratkvæðagreiðsla í sumar og hvalveiðibátur á sjó Sjá meira
Fólksfjölgun fór langt fram úr spá á Ísafirði Fólksfjölgun var minni í fyrra en spár gerðu ráð fyrir og þannig náðist að vinna upp skuld í íbúðauppbyggingu. Enn eru þó langir biðlistar eftir leigu- og félagslegu húsnæði og mikil þörf á frekari uppbyggingu hjúkrunarrýma og leikskólaplássa. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar á húsnæðisáætlunum sveitarfélaga á Íslandi. 9. apríl 2026 09:01