Sigríður hjólar í Hönnu Katrínu: Eini ráðherrann „sem vill hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“ Hólmfríður Gísladóttir skrifar 8. maí 2026 08:41 Sigríði þykir Hanna Katrín gera úlfalda úr mýflugu varðandi málið í Eyjum og segir hana draga Miðflokkinn inn í málið að ósekju. Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, fer hörðum orðum um Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra á Facebook og segir hana „eina ráðherra málaflokksins sem vill helst hvorki sjá né heyra af atvinnulífinu“.
Tilefni skrifa Sigríðar er færsla sem Hanna Katrín birti á Facebook, þar sem hún tengdi ljót orð stuðningsmanns ÍBV um markmann Vals í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í handbolta kvenna við „innflutta fordóma“ Miðflokksins í garð hinsegin fólks. Í færslu sinni sakaði Hanna Katrín Miðflokkinn um að vilja hverfa aftur til þess tíma þegar hinsegin fólki var „haldið í skugganum“ og sagði meðal annars: „Ein uppáhaldsiðja Miðflokksmanna er að misnota íslenska fánann í fordómafullri orðræðu sinni um málefni hinsegin fólks. Þess vegna er rétt að draga fram að sem afrekskona í íþrótt sinni, landsliðskona sem hefur borið hróður Íslands víða, hefur Hafdís Renötudóttir gert margfalt meira til að heiðra íslenska fánann en allir Miðflokksmenn til samans.“ „Eyjamenn eru ekki gengnir af göflunum“ Sigríður sakar Hönnu Katrínu um að seilast langt í gagnrýni sinni á stuðningsmenn ÍBV og bendir á að í ljós hafi komið að um hafi verið að ræða einn einstakling, sem beindi spjótum sínum að kynhneigð Hafdísar, eins og áður hefur fram komið. „Ef ekki hefði verið fyrir umferðaröngþveitið sem Viðreisn hefur staðið vörð um í borgarstjórn síðasta tæpa áratug hefði ég mögulega keyrt út af þegar ég heyrði fréttaþul vísa áfram í yfirlýsingu atvinnuvegaráðherrans, þessa um atvikið á leik ÍBV og Vals, en nú var Miðflokkurinn kominn í aðalhlutverk í allsherjar samsæriskenningu ráðherrans um aðför að samkynhneigðum,“ segir Sigríður, sem var föst í umferð í Reykjavík þegar hún heyrði fréttir af færslu Hönnu Katrínar. Sigríður sakar ráðherra um fordóma og ósannindi í garð Miðflokksins vegna „óvandaðrar uppákomu“ af hálfu eins manns á íþróttakappleik. Þá fer hún hörðum orðum um Hönnu Katrínu. „Hún hefur látið sér fátt um finnast um áhrif skattaherferðar ríkisstjórnarinnar á smærri byggðarlög og atvinnulífið. Hún virðist líta á undirstöðu íslensk efnahagslífs, sjávarútveginn, sem vandamál sem þurfi að minnka en ekki stækka.“ Sigríður segir Hönnu Katrínu heldur eiga að nýta vinnutíma sinn í að láta sig varða samgöngur til Eyja, fremur en vangaveltur um eina boltabullu. „Eyjamenn eru ekki gengnir af göflunum. Þó hafa þeir sömu ástæðu til þess eins og ég og aðrir landsmenn, sem er: Ráðherrar sem valda ekki verkefninu sem snýr að efnahag landsins og kjörum landsmanna,“ segir hún að endingu.
Hinsegin Viðreisn Miðflokkurinn Vestmannaeyjar Mest lesið „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Veður „Svona er bara litróf mannlífsins“ Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Tvær tilkynningar um eld Innlent Mætt til Grænlands með pyngju fulla af peningum Erlent Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Innlent Fleiri fréttir Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjá meira