Hleypum fötluðum börnum inn á völlinn! Stefán Pálsson skrifar 8. maí 2026 13:51 Vorið 2025 samþykkti Menningar- og íþróttaráð Reykjavíkur tillögu mína um að skipa starfshóp til að móta tillögur um að auka hlutfall þátttöku fatlaðra barna og ungmenna í íþróttum. Tilefnið voru vísbendingar sem fram höfðu komið í fréttum skömmu fyrr um að íþróttaþátttaka þessa hóps væri ekki nema brot af því sem raunin er meðal annarra barna. Full pólitísk samstaða var um málið og hóf hópurinn þegar störf. Nú liggja niðurstöðurnar fyrir og fela þær bæði í sér mikilvægar upplýsingar um stöðu mála og tillögur um aðgerðir til úrbóta sem ný borgarstjórn getur unnið úr. Ein stærsta áskorun hópsins var að afla gagna, en nákvæm skráning á stærð hópsins og virkni hans er erfið, meðal annars vegna persónuverndarsjónarmiða. Niðurstaðan er þó sú að vart nema 10% fatlaðra barna leggi stund á íþróttir. Það megi skýra með kostnaði, skorti á stuðningi og þjálfurum sem og aðgengismálum. Góðu fréttirnar eru þó þær að sterkur grunnur og mikil þekking sé fyrir hendi í íþróttafélögunum Ösp og ÍFR sem einbeita sér að íþróttastarfi fatlaðra. Styrkir borgarinnar til þessara félaga vegna íþróttastarfs barna nema í dag um 34 milljónum króna árlega. Hópurinn gerir það að tillögu sinni að ráðist verði í sérstakt átaksverkefni til fimm ára til að snarauka þátttökuna og er áætlað að kostnaðurinn við það þyrfti að vera um 30 milljónir á ári. Tillögurnar gera ráð fyrir að styðja við bæði Ösp og ÍFR, en einnig að ýta undir íþróttastarf fyrir fatlaða innan hinna hefðbundnu hverfafélaga í Reykjavík út frá þeirri hugsun að æskilegt sé að fötluð börn geti fundið sig í íþróttastarfi innan sama félags og skólasystkini þeirra. Stærstu útgjaldaliðirnir snúa að fjölgun æfingartíma og stuðningi vegna aukins þjálfarakostnaðar sem fylgi auknu framboði á æfingum. Jafnframt er gert ráð fyrir kostnaði við kynningar- og auglýsingastarf til að vekja athygli á hvað í boði er. Í mörgum tilvikum eru íþróttamannvirki óaðgengileg fötluðum og er mikilvægt að ryðja slíkum hindrunum úr vegi með markvissum hætti, en kostnaður við slíkt er ekki innifalinn í útreikningum starfshópsins. Það er gleðiefni að hafa fengið í hendur tillögur starfshópsins og sú borgarstjórn sem kjörin verður um aðra helgi ætti því strax að geta hrint í framkvæmd þessum skynsamlegu tillögum. Öll hljótum við að geta sameinast um markmiðið: að fötluð börn eigi þess ekki síður kost en ófötluð að iðka íþróttir við sitt hæfi og að sínu skapi í Reykjavík. Höfundur er frambjóðandi Vinstrisins í komandi borgarstjórnarkosningum Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stefán Pálsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Kynheilbrigði ungmenna með öðruvísi taugaþroska María Jónsdóttir skrifar Skoðun Þvílíkar villigötur Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar