Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 9. maí 2026 14:15 Gísli Davíð Karlsson, settur forstjóri hjá Vinnumálastofnun. Vísir/Sigurjón Atvinnulaust fólk yfir fimmtugt er lengur að finna sér vinnu og fær gjarnan ekki boð í atvinnuviðtöl, né svör frá atvinnurekendum þegar þau sækja um. Staðgengill forstjóra Vinnumálastofnunar hvetur atvinnurekendur til að mæta umsækjendum óháð aldri.
Í vikunni ræddi Vísir við hinn 57 ára gamla Gunnar Gíslason en hann hefur sótt um tæp fimmtíu störf án þess að hafa fengið vinnu. Gunnar lýsti því að hann hefði víðtæka reynslu af stjórnunarstörfum meðal annars í fjármálageiranum og að hann væri með MBA-gráðu og PMD-stjórnendanám undir belti. Hann sagðist velta því fyrir sér hvort aldur væri orðinn að ósýnilegum þröskuldi en verst væri að fá svo gott sem aldrei boð í viðtal. Tekur aldurshópinn lengri tíma að fá vinnu Gísli Davíð Karlsson staðgengill forstjóra Vinnumálastofnunar segir hlutfall atvinnulausra sem eru eldri en fimmtíu ára svipað nú og áður. „Þetta er í kringum tuttugu prósentin núna og hefur alltaf verið svipað hlutfall af atvinnuleysisskránni. En það sem við höfum verið að heyra frá ráðgjöfum okkar sem eru að hitta einstaklingana í viðtölum, við höfum sett upp sérstakar hálf dags vinnustofur með hluta af hópnum, að þau eru að upplifa það að þau fái síður viðtöl og þá síður vinnu og það tekur lengri tíma bæði miðað við hvað þau búast við og svo sýna tölurnar okkur að þessi hópur er lengur á atvinnuleyisskrá en yngri hóparnir.“ Þannig hafi atvinnulausir einstaklingar yfir fimmtugt verið 2067 talsins í lok mars af 10.051 einstaklingi sem eru atvinnulausir á landinu. Vinnumálastofnun leggi sig sérstaklega fram um að vinna með einstaklingum á þessum aldri en þar sem fjöldinn sé með svipuðu móti og undanfarin ár sé ekki tilefni til að bregðast sérstaklega við. „Við eins og ég segi styðjum þau með sérstökum námskeiðum fyrir þau, ef maður skoðar líka markaðinn, það hafa verið að koma námskeið eins og Magnað námið upp í HR sem eru að fókusa á þennan hóp, þannig að enn sem komið er erum við ekkert að fara í einhverjar breytingar.“ Gísli segir atvinnulausa á þessum aldri tilbúið til að leggja sitt af mörkum á vinnumarkaði. Það strandi ekki á þeirra metnaði og vilja og skilaboðin til atvinnurekenda séu skýr. „Bara mæta hverjum einasta umsækjenda óháð aldri og öðru með opnum huga vegna þess að það leynist dýrmætur fjársjóður í hverjum einasta einstaklingi þegar kemur að þátttöku á vinnumarkaði.“
Starfsframi Vinnumarkaður Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira