Körfubolti

„Mér er drullusama um þessa töl­fræði“

Kári Mímisson skrifar
Emil Barja á hliðarlínunni
Emil Barja á hliðarlínunni Vísir/Hulda Margrét

Það var augljóslega þungt yfir Emil Barja þegar hann mætti til viðtals strax að loknum leik Hauka og Njarðvíkur. Haukar töpuðu leiknum með tólf stigum og elta í þessu úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitilinn.

„Mér fannst við byrja ótrúlega linar og spila illa. Þær voru miklu fastari og miklu harðari í öllum sínum árásum. Við hreinlega létum þær vaða yfir okkur. Það var ekki fyrr en í seinni hálfleik að það kom smá orka til að berjast til baka.“ segir Emil við Andra Má strax að leik loknum.

Spurður að því hvers vegna liðið hafi byrjað svona illa í kvöld segist Emil ekki vera með svarið við því. Liðið svaraði þó aðeins í seinni hálfleik en hafi ekki haft orkuna til þess að klára leikinn í fjórða leikhluta.

„Ég er ekki með svarið við því. Mögulega er það vegna þess að þær eru að koma úr oddaleik og stutt síðan þær spiluðu á meðan við höfum verið í smá pásu. Ég samt hélt að við myndum ekki mæta svona í fyrsta leik í úrslitum. Í seinni hálfleik breytist svo orkustig hjá okkur. Við fórum að gera réttu hlutina og hjálpa á réttu stöðunum. Það kemur mikil orka og stemning í kringum liðið. Það tekur á að ná að minnka svona bil niður og mögulega vorum við svo hreinlega búnar í fjórða leikhluta. Ég þurfti að skipta svolítið inn á enda voru þær sumar búnar að spila heilan leikhluta þegar við vorum að ná niður forskotinu. Amandine fer út eftir að hafa verið búin að spila vel, einhvers staðar þarf maður að hvíla hana þar sem hún getur ekki spilað allan tíman.“

Það eru tíu ár síðan að lið sem tapaði fyrsta leiknum sigraði einvígið um Íslandsmeistaratitil kvenna. Þið eruð að fara til Njarðvíkur núll eitt undir, hvernig leggst það í þig?

„Mér er drullusama um þessa tölfræði. Mér gæti ekki verið meira sama um hana. Við erum að fara til Njarðvíkur að gera það sem við getum til að vinna þennan leik. Við tökum þessi 10% ef það er það sem þarf.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×