Íslenski boltinn

Sjáðu magnaða endur­komu KR og flautumark Fram

Aron Guðmundsson skrifar
Amin Cosic í baráttunni með KR í leik gærkvöldsins
Amin Cosic í baráttunni með KR í leik gærkvöldsins Vísir/Ernir Eyjólfsson

Mörkunum rigndi heldur betur inn í Bestu deildinni í gær. Eftir að hafa lent tveimur mörkum undir gegn Stjörnunni vann topplið KR sig aftur inn í leiknum og fór að lokum með 3-2 sigur af hólmi.

KR-ingar því enn með fullt hús stiga eftir fyrstu sex umferðir deildarinnar en það var Ástbörn Þórðarson sem skoraði sigurmark leiksins á 87.mínútu.

Með sigrinum heldur KR áfram fullkomnu gengi sínu á toppi Bestu deildarinnar og liðið hefur nú unnið alla sex leiki sína á tímabilinu. Stjarnan hins vegar hefur tapað fjórum leikjum í röð eftir sterka byrjun á mótinu og pressan heldur áfram að aukast á Jökul Elísabetarson og hans menn.

Framarar gerðu einnig frábærlega í að vinna sig aftur í leik gegn Val í Reykjavíkurslag gærkvöldsins. Framarar, líkt og KR, lentu tveimur mörkum undir í gær en tókst að jafna metin rétt fyrir lok fyrri hálfleiks. Það var svo Jakob Byström sem reyndist hetja Framara með flautumarki undir lok leiks. Lokatölur 3-2 sigur Fram. 

Keflavík lagði ÍA að velli með þremur mörkum gegn einu þegar liðin áttust við á ELKEM vellinum á Akranesi í kvöld. Keflvíkingar voru mun beittari í sínum aðgerðum og refsuðu Skagamönnum grimmt í skyndisóknum.

Klippa: ÍA 1-3 Keflavík



Fleiri fréttir

Sjá meira


×