Svekktur eftir næstbesta tíma Íslendings: „Eins og að ég fái hníf í magann“ Sindri Sverrisson skrifar 10. maí 2026 22:28 Hlynur Andrésson á bestu tíma Íslendings í maraþoni en vildi bæta metið í dag. vísir / bjarni Eyjapeyinn Hlynur Andrésson náði í dag næstbesta tíma sem Íslendingur hefur náð í maraþoni en var engu að síður svekktur að hafa ekki slegið Íslandsmetið sitt. Magavandamál heldur áfram að trufla hann.
Hlynur hljóp á 2:15:30 klukkutímum og hafnaði í 12. sæti í Kaupmannahafnarmaraþoninu í dag og var þriðji fljótastur af þeim Evrópubúum sem kepptu. Eftir að hafa slegið Íslandsmetið í hálfmaraþoni í mars var hann hins vegar staðráðinn í að bæta Íslandsmetið sitt í maraþoni í dag en það er 2:13:37 og setti Hlynur það í sínu fyrsta maraþoni, í Dresden í Þýskalandi fyrir fimm árum. Í samtali við RÚV eftir hlaupið sagðist Hlynur hafa verið í formi til að slá metið en hann fékk skelfilegan verk í magann sem dró verulega úr hraðanum í lokin. Formið nógu gott til að slá þetta met „Ég var á góðu tempói alveg þar til það voru 6-7 kílómetrar eftir. En ég er búinn að vera í basli með magann á mér eftir 30 kílómetra og þarf að finna út hvað gerist. Það er eins og að ég fái hníf í magann þegar það eru svona 20-30 mínútur eftir. Þá hætti ég bara að hugsa um tímann og í þetta skiptið vildi ég bara koma mér í markið og reyndi að klára eins vel og ég gat,“ sagði Hlynur við RÚV. Hann er staðráðinn í að bæta metið síðar enda með alla burði til þess: „Formið er nógu gott til að slá þetta Íslandsmet en það er eitthvað fast með magann á mér sem ég þarf að finna út úr og get lagað fyrir næsta skipti.“ Hlynur þarf nú að bíða þar til á miðvikudaginn, þegar nýr styrkleikalisti Evrópu verður birtur, til að vita hvort að hann fær sæti á Evrópumótinu í Birmingham í ágúst.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Fleiri fréttir Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Sjá meira