Milwaukee Bucks tilbúið að skipta Giannis Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 11. maí 2026 19:33 Svo virðist sem komið sé að leiðarlokum hjá Giannis Antetokounmpo og Milwaukee Bucks. getty/Patrick McDermott Eftir að hafa leikið með Milwaukee Bucks allan sinn feril í NBA-deildinni gæti gríski körfuboltamaðurinn Giannis Antetokounmpo verið á förum frá félaginu.
ESPN greinir frá því að Milwaukee sé tilbúið að hlusta á tilboð í Giannis. Ljóst er að mörg félög munu reyna að krækja í þennan öfluga leikmann sem varð NBA-meistari með Milwaukee 2021. Milwaukee átti í viðræðum um möguleg skipti á Giannis fyrir lok félagaskiptagluggans í febrúar en ekkert varð úr þeim. Talið er að Milwaukee hefji nú aftur viðræður við áhugasöm lið og niðurstaða í mál Giannis fáist í kringum nýliðavalið í lok júní. Fyrir ári lýsti Giannis yfir áhuga á að yfirgefa Milwaukee og ganga í raðir New York Knicks. Ekkert varð þó af þeim skiptum. Staðan í Milwaukee hefur verið eldfim undanfarna mánuði en Giannis óskaði eftir því að NBA rannsakaði Bucks eftir að félagið hætti að nota hann undir lok tímabilsins vegna hnémeiðsla. Giannis lék aðeins 36 leiki í deildarkeppni NBA í vetur. Í þeim var hann með 27,6 stig, 9,8 fráköst og 5,4 stoðsendingar að meðaltali. Milwaukee valdi Giannis með 15. valrétti í nýliðavalinu 2013. Hann var valinn verðmætasti leikmaður tímabilsins (MVP) 2019 og 2020. Giannis var svo valinn besti leikmaður úrslitaeinvígisins þegar Milwaukee varð meistari fyrir fimm árum. Talið er að Golden State Warriors, Miami Heat, Minnesota Timberwolves, Boston Celtics og Knicks séu meðal félaga sem vilji semja við Giannis sem verður 32 ára í byrjun desember.
NBA Mest lesið Setti nýtt heimsmet örfáum dögum eftir svekkelsið á Steraleikunum Sport HM ferðalagi Suður-Afríku frestað: „Verið að hafa okkur að fíflum“ Fótbolti Freyr rekinn frá Brann Fótbolti Flugu með Herðubreið á HM Fótbolti FIFA fengið nóg og herðir tökin fyrir HM Fótbolti Plataði líka myndatökumanninn upp úr skónum Íslenski boltinn Keegan með fjórða stigs krabbamein Enski boltinn Aðeins framúrskarandi stjóri hefði getað lagað Liverpool Enski boltinn Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Handbolti Slot segist skilja Liverpool eftir nákvæmlega þar sem liðið á heima Enski boltinn Fleiri fréttir Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni Sjá meira