Vinnustaðaleikskólar í stað hægfara uppbyggingar Sigurður Rúnarsson skrifar 12. maí 2026 06:47 Flokkur fólksins vill að borgin heimili stærri vinnustöðum að setja á laggirnar leikskóla fyrir starfsmenn sína inn kerfis sjálfstætt starfandi leikskóla. Þannig mætti bregðast hratt við alvarlegum skorti á leikskólaplássum í Reykjavík. Staðan er skýr. Þrátt fyrir áætlanir borgarinnar mun meginhluti nýrra leikskólaplássa ekki verða í boði fyrr en eftir árið 2027. Foreldrar bíða en kerfið bregst of hægt við. Á sama tíma liggur fyrir að borgin er þegar með virkt fjármögnunarkerfi þar sem greiddar eru yfir 100 þúsund krónur á mánuði með hverju barni, auk húsnæðisframlags.Fjármagnið er til staðar. Vandinn er ekki skortur á fjármunum, heldur hægagangur og röng forgangsröðun. Þegar fjölmargar fjölskyldur eru í óvissu með tilheyrandi álagi er ekki ásættanlegt að lausnirnar láti bíða eftir sér árum saman. Fólkið á að koma fyrst – svo allt hitt. Tillaga Flokks fólksins er einföld: Leyfum fyrirtækjum að opna leikskóla innan núverandi kerfis Komum upp kerfi sem býður upp á blöndu af leikskólaplássi fyrir börn starfsfólks og barna úr nærliggjandi hverfi Borgin greiðir sama framlag og annars staðar Við erum ekki að kalla eftir flóknum breytingum eða auknum útgjöldum. Með þessari aðferð væri hægt að nýta það kerfi sem þegar er til staðar, með skýrari forgangsröðun. Þannig mætti fjölga leikskólaplássum hratt. Þessi aðferð fæli í sér stuðning við foreldra á vinnumarkaði, minnkað álag á borgarkerfið og myndi auka öryggi barnafjölskyldna Flokkur fólksins leggur áherslu á að fjármunir borgarinnar fari fyrst og fremst í grunnþjónustu við börn og fjölskyldur. Lausn á margra ára leikskólavanda þolir enga bið. Höfundur skipar 7. sæti á lista Flokks fólksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Flokkur fólksins Mest lesið Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Leigubremsa er almannahagsmunamál Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Tímamót Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Næsta verðhækkun á ekki að vera sjálfgefin Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Börn eftir pöntun Fæðingarorlofssjóðs Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun 100 ár af dellu Helgi Tómasson skrifar Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar Skoðun Maðurinn sem hringdi í óvininn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samráð sem breytir Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar Skoðun Farsælt framhaldslíf Steinunn Ragnarsdóttir skrifar Skoðun Það sem ég dáist að við íslenskar konur Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Bitna kjarasamningar kennara á börnunum okkar? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Fíllinn í postulínsbúðinni: Veldisvöxtur breytinganna Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Áskorun til stjórnar RÚV: Rekið fréttastjórann Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Ræktum samtakamátt ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Öfugsnúið fyrirkomulag - lífeyrissjóðir okkar Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Hver á upplýsingarnar um ofnæmi barnsins þíns? Bjarni Þór Ævarsson skrifar Skoðun Skjátími eða skjátími? Mathieu Grettir Skúlason skrifar Skoðun Stöndum með Seyðisfirði! Hannes Pétursson skrifar Skoðun 23? Björg Magnúsdóttir skrifar Skoðun Íslenskt táknmál er ekki erlent tungumál Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Heilbrigð þjóð þarf gott samtal Victor Guðmundsson skrifar Skoðun RÚV: hvað með okkur? Jónína Rósa Hjartardóttir skrifar Skoðun Álagsstýring: Rétt greining, valin dæmi Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Sannleikurinn var ekki á stundaskrá Sigmundur Einar Másson skrifar Skoðun Vangaveltur um menningarlæsi borgarstjórnar Orri Jónsson skrifar Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreind að fara að stela starfinu þínu? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Útlendingaandúð í málverndarbúningi Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Flokkur fólksins vill að borgin heimili stærri vinnustöðum að setja á laggirnar leikskóla fyrir starfsmenn sína inn kerfis sjálfstætt starfandi leikskóla. Þannig mætti bregðast hratt við alvarlegum skorti á leikskólaplássum í Reykjavík. Staðan er skýr. Þrátt fyrir áætlanir borgarinnar mun meginhluti nýrra leikskólaplássa ekki verða í boði fyrr en eftir árið 2027. Foreldrar bíða en kerfið bregst of hægt við. Á sama tíma liggur fyrir að borgin er þegar með virkt fjármögnunarkerfi þar sem greiddar eru yfir 100 þúsund krónur á mánuði með hverju barni, auk húsnæðisframlags.Fjármagnið er til staðar. Vandinn er ekki skortur á fjármunum, heldur hægagangur og röng forgangsröðun. Þegar fjölmargar fjölskyldur eru í óvissu með tilheyrandi álagi er ekki ásættanlegt að lausnirnar láti bíða eftir sér árum saman. Fólkið á að koma fyrst – svo allt hitt. Tillaga Flokks fólksins er einföld: Leyfum fyrirtækjum að opna leikskóla innan núverandi kerfis Komum upp kerfi sem býður upp á blöndu af leikskólaplássi fyrir börn starfsfólks og barna úr nærliggjandi hverfi Borgin greiðir sama framlag og annars staðar Við erum ekki að kalla eftir flóknum breytingum eða auknum útgjöldum. Með þessari aðferð væri hægt að nýta það kerfi sem þegar er til staðar, með skýrari forgangsröðun. Þannig mætti fjölga leikskólaplássum hratt. Þessi aðferð fæli í sér stuðning við foreldra á vinnumarkaði, minnkað álag á borgarkerfið og myndi auka öryggi barnafjölskyldna Flokkur fólksins leggur áherslu á að fjármunir borgarinnar fari fyrst og fremst í grunnþjónustu við börn og fjölskyldur. Lausn á margra ára leikskólavanda þolir enga bið. Höfundur skipar 7. sæti á lista Flokks fólksins í Reykjavík.
Skoðun Áskorun til ríkisstjórnarinnar: Ekki fækka borgarfulltrúm úr 23 Í 15! Guðni Freyr Öfjörð skrifar
Skoðun Um bakara og smiði. Hlaðvörp og skráning þeirra hjá Fjölmiðlanefnd Elfa Ýr Gylfadóttir skrifar
Skoðun Það eru ekki allir jafnir hér: Krefjumst jafnræðis lífsskoðunarfélaga og afnáms sérstakrar þjóðkirkju Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Ásgeir hafði rétt um orsakaröðina, Ragnar um leiguverð leigjandans Sigurður Sigurðsson skrifar