Heilabilun og samþætting þjónustu Anna Sigga Jökuls Ragnheiðardóttir skrifar 12. maí 2026 09:33 Tíðni heilabilunar er talin vera um 2% hjá 65 ára fólki og tvöfaldast á hverjum fimm árum eftir það, fram undir nírætt þegar um þriðjungur er talin vera með heilabilun af einhverjum toga. Lífslíkur fram á efri ár hafa farið vaxandi um nokkurt skeið og er fjöldi fólks með heilabilunarsjúkdóma því ört vaxandi. Eins og staðan er í dag má gera ráð fyrir að þegar fólk greinist með heilabilun hafi hún verið byrjuð nokkru fyrr. Meðal áhættuþátta í heilabilun er vanvirkni og félagsleg einangrun. Rannsóknir benda til að líkamleg og hugræn virkni hafi áhrif á bæði hugræna- og líkamlega getu fólks með byrjandi heilabilunarsjúkdóma og auki lífsgæði þeirra til muna. Einnig benda rannsóknir til að sérhæfð dagþjálfun fyrir fólk með heilabilun á miðlungs alvarlegu stigi auki lífsgæði þeirra, dragi úr álagi á aðstandendur og stuðli að bættum samskiptum innan fjölskyldu þeirra. Sérhæfð þjálfun bæði fyrir þá sem greinast snemma á ævinni en einnig þá sem eldri eru, er því gríðarlega mikilvæg. Bæði þarf að grípa fólk þegar það greinist, veita fræðslu og stuðning til þeirra og fjölskyldunnar og hefja viðeigandi inngrip þegar við á. Meta þarf þjónustuþörf með gagnreyndum aðferðum, meta þörf fyrir endurhæfingu og þjálfun og setja slíkt af stað eins fljótt og hægt er. Það eykur líkur á að einstaklingurinn haldi sínu sjálfstæði sem lengst og lífsgæði séu sem mest. Til að hámarka gæði þjónustu þarf hún að fara fram þar sem hennar er þörf, þegar hennar er þörf, vera sveigjanleg, endurmetin reglulega og aðlöguð að heilsu og breytilegum þörfum. Huga þarf að því sérstaklega að umönnun og álag lendi ekki fyrst og fremst á aðstandendum og að aðstandendur fái nauðsynlegan stuðning og ráðgjöf. Heilabilunarráðgjöf, sérhæfð dagþjálfun, hvíldarinnlagnir með auknum sveigjanleika og nýting velferðartækni heim getur skipt sköpum fyrir lífsgæði sjúklinga með heilabilun og aðstandenda þeirra. Samþætting í þjónustu byggist á samvinnu og samhæfingu milli ábyrgðaraðila (ríkis og sveitarfélaga), fagfólks, hagsmunasamtaka og þjónustuþega. Samþætting á að tryggja samfellda þjónustu í samræmi við breytilegar þarfir einstaklinga, óháð því hvar þjónustan fer fram eða hver framkvæmir hana. Þannig á að koma í veg fyrir rof í þjónustu og tryggja að þjónusta sé hæfileg á hverjum tímapunkti. Unnið er nú þegar að samþættingu í þjónustu við aldraða í nokkrum sveitarfélögum undir slagorðinu ,,Gott að eldest”. Að mínu mati er ekki eftir neinu að bíða hvað það verkefni varðar á Akureyri og mikilvægt að hefja þátttöku í því sem fyrst. Enda gerir verkefnið ráð fyrir að unnið sé í skrefum að því að full samþætta þjónustuna. Í sama anda ætti að vinna að samþættingu þjónustu við fólk með heilabilun og skylda sjúkdóma. Þannig stuðlum við sem samfélag að auknu öryggi og lífsgæðum og að fólk með heilabilun geti búið lengur heima ef það vill og getur, án þess að það lendi aðallega á þeirra nánustu. Það er alveg ljóst að fólk sem greinist með heilabilun og þeirra aðstandendur þurfa strax eftir greiningu að fá sérhæfða ráðgjöf. Einnig er gríðarlega mikilvægt að fólk fái ráðgjöf og leiðbeiningar til að viðhalda virkni og hugrænni getu í framhaldinu. Þegar sjúkdómurinn ágerist þarf fólk svo að komast í sérhæfða dagþjálfun fyrir fólk með heilabilun og tengda sjúkdóma. Hvíldarinnlagnir þurfa að bjóðast og það þyrfti að vera hægt að stunda dagþjálfun samhliða slíkum innlögnum, ef þörf er á. Þetta þarf svo að samþætta þeirri þjónustu sem þarf heim, hvort sem hún er tímabundin eða til lengri tíma. Samvinna sveitarfélaga og ríkis er grundvallaratriði hvað ofangreinda þjónustu varðar. Á landsbyggðinni er sérlega mikilvægt að fólk í sveitastjórnum sé í forustu fyrir samvinnu, og þrýsti á um samstarf við ríkisvaldið um samþættingu þjónustu við fólk með heilabilun og skylda sjúkdóma, sama á hvaða aldri þeir eru. Við í Samfylkingunni lítum þannig á að samþætta þurfi faglega þjónustu bæði við aldraða almennt, aldraða með heilabilunarsjúkdóma en einnig fyrir vaxandi hóp yngra fólks sem greinist með heilabilun og skylda sjúkdóma. Við leggjum áherslu á sérhæfða ráðgjöf fyrir fólk með heilabilunarsjúkdóma og aðstandendur þeirra og að unnið verði markvisst að sérhæfðri þjálfun eins fljótt og auðið er. Höfundur er sálfræðingur í geðheilsuteymi fullorðinna og starfar fyrir Alzheimersamtökin. Hún skipar 15. sætið á lista Samfylkingarinnar á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Samfylkingin Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Akureyri Mest lesið Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar