Falið fagstarf frístundaheimila Hafdís Oddgeirsdóttir og Viktor Orri Þorsteinsson skrifa 14. maí 2026 14:31 Frístundaheimili eru einn stærsti félagslegi vettvangur barna á Íslandi en faglegt mikilvægi þeirra fer oft fram hjá samfélaginu. Fyrir ykkur sem ekki þekkja þá eru frístundaheimili vettvangur þar sem börn í 1. – 4. bekk sækja eftir að skóla lýkur á daginn. Frístundaheimili gegna í dag mun stærra hlutverki en margir gera sér grein fyrir. Þau eru ekki aðeins staður þar sem börn dvelja eftir skóla heldur félagslegur vettvangur þar sem börn fá tækifæri til að mynda tengsl, efla sjálfstæði sitt og félagsfærni og upplifa þátttöku á eigin forsendum. Þar geta börn notið sín í óformlegu námsumhverfi í frjálsum leik og öðrum viðfangsefnum á eigin áhugasviði. Áherslur í starfi eru umhyggja, jákvæð samskipti, lýðræði, sjálfstæði, jafnrétti og virk þátttaka. Tækifæri í starfi frístundaheimila Frístundaheimili leggja áherslu á félagslega færni barna okkar og styðja þannig við vellíðan þeirra, áhugamál og styrkleika. Frístundaheimili eru einnig í kjörstöðu til að styðja við félagslega stöðu barnanna. Stærsta markmið frístundaheimila er að mæta öllum börnum þar sem þau eru stödd félagslega og styðja við þau og leiðbeina við að mynda vinatengsl við aðra í jákvæðu og öruggu umhverfi. Með komu lausnateyma hjá sveitarfélögum hafa tækifærin aukist og stjórnendur frístundaheimila koma formlega að slíkri vinnu með sín verkfæri og aðferðir til að styðja við börnin. Á frístundaheimilum er fylgst með og rýnt í félagslega stöðu barna. Eru börnin félagslega einangruð, vinafá eða reka sig reglulega á í samskiptum við jafnaldra? Skortir barn samkennd, sýnir það ofbeldishegðun eða glímir við aðrar áskoranir sem hindra það í félagslegum samskiptum? Frístundaheimilin hafa fjölbreyttar lausnir til að mæta þessum áskorunum með börnunum og styðja við þau og leiðbeina. Slík verkefni geta verið í formi aukins stuðnings, sérstakrar nálgunar eða í gegnum sértækt klúbbastarf. Við kjósum að kalla þetta falið fagstarf frístundaheimila þar sem ekki eru margir sem átta sig á því frábæra starfi sem þar fer fram. Áskoranir við að nýta þessi tækifæri og mögulegar lausnir Því miður eru ýmsar áskoranir sem standa í vegi fyrir því að tækifærin í starfsemi frístundaheimila nýtist til fulls. Ein stærsta áskorunin er að aðeins er boðið upp á í kringum 50% hlutastörf sem veldur því að það verður mikil starfsmannavelta, en hún er um 45% á ári. Á undanförnum árum hefur verið verulegur mönnunarvandi á hverju hausti og reynst erfitt að ráða nægilegan fjölda starfsfólks. Afleiðing þess er sú að börn lenda á biðlistum eftir plássi, í verstu tilfellunum allt fram í desember. Þannig missa börnin af mikilvægu frístundastarfi sem þau eiga rétt á, sem hefur svo víðtæk neikvæð áhrif á daglegt líf barnafjölskyldna í borginni. Það er því nauðsynlegt að ráðast í aðgerðir til að bregðast við mönnunarvandanum og draga úr starfsmannaveltu. Það er þó ekki nóg að manna stöðurnar. Skortur á fagþekkingu og undirbúningstíma innan frístundaheimila er annað áhyggjuefni. Grundvallaratriði er að starfsfólk sem ráðið er til starfa sé hæft til að sinna því mikilvæga hlutverki sem starfsemin gegnir í lífi barna. Til þess að frístundaheimili geti sinnt hlutverki sínu sem vettvangur forvarna, menntunar og afþreyingar verður því að efla fagþekkingu meðal starfsfólks. Með aukinni fagþekkingu eru frístundaheimili betur í stakk búin til að mæta fjölbreyttum félagslegum og einstaklingsbundnum þörfum barna. Það eitt og sér að bjóða upp á yfir 50% starfshlutfall starfsfólks á frístundaheimilum mætir mörgum af fyrrnefndum áskorunum. Með hærra starfshlutfalli fær starfsfólk meiri undirbúningstíma og með fleiri heilsárstörfum hættir starfið að vera tímabundið. Það getur bæði haft jákvæð áhrif á starfsmannaveltu og gert starfið ákjósanlegra fyrir fagmenntað fólk. Með minni starfsmannaveltu og fleira fagfólki er svo hægt að fara í markvissari vinnu til að mæta fjölbreyttum félagslegum áskorunum barna. Húsnæðismál eru annað mikilvægt atriði sem þarf að skoða sérstaklega. Því miður er staðan víða þannig að húsnæði og útisvæði henta starfsemi frístundaheimila illa, meðal annars vegna slæmrar hljóðvistar og takmarkaðs pláss. Það bitnar sérstaklega á þeim börnum sem eiga erfitt með mikið áreiti. Frístundaheimili þurfa húsnæði sem hentar starfseminni, þar sem nægt rými er fyrir börnin, þar sem þeim líður vel og mögulegt er að bjóða upp á fjölbreytt og faglegt starf sem mætir ólíkum áhugasviðum þeirra, bæði inni og úti. Að lokum er mikilvægt að efla þverfaglegt samstarf í þjónustu við börn og tryggja það að frístundaheimilin séu hluti af því. Börnin verja að meðaltali um þremur klukkustundum af degi sínum á frístundaheimilum og lengur á heilum dögum um jólin, páskana, starfsdögum skóla og einnig sumarfrístund. Því eru tómstundafræðingar og frístundaleiðbeinendur í kjörstöðu til að þekkja félagslega stöðu, styrkleika, áhugamál og líðan barnanna. Samstillt og markvisst samstarf fjölskyldna og þeirra sem starfa í kringum barnið er lykillinn að því að styðja við velferð þeirra. Af hverju á borgin að sýna frístundaheimilum áhuga og hver er ávinningurinn? Eins og Steinn Jóhannsson og Soffía Pálsdóttir komu inn á í grein sinni sem birtist á Vísi 2. febrúar 2026 mætti með réttu kalla frístundaheimili og félagsmiðstöðvar þriðju stóru stoðina í menntakerfi borgarinnar þar sem fer fram nám sem nýtist börnum alla ævi. Við sem störfum á vettvangi finnum okkur knúin til að vekja athygli á starfseminni því við sjáum svo skýrt hvað frístundaheimilin geta verið áhrifamikil í lífi barna. Ávinningurinn af öflugu og faglegu frístundastarfi er mikill. Þar læra börn á tilfinningar sínar og fá tækifæri til þess að uppgötva eigin styrkleika og áhugasvið sem eflir sjálfsmynd þeirra og sjálfsþekkingu. Þar læra þau félagsfærni í gegnum samskipti við önnur börn í leik og starfi. Þau fá tækifæri til þess að skapa, kynnast eigin réttindum, taka þátt í lýðræði og vera úti í náttúrunni. Allt eru þetta þættir sem hafa áhrif á velferð og farsæld barna og framtíð þeirra. Hver vill vera með okkur í þeirri vegferð að styðja betur við börnin okkar í síbreytilegum heimi með því að efla starf frístundaheimila? Hafdís Oddgeirsdóttir - M.ed. í tómstunda- og félagsmálafræði og forstöðukona á frístundaheimili Viktor Orri Þorsteinsson - M.ed. í tómstunda- og félagsmálafræði og forstöðumaður á frístundaheimili Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Frístund barna Mest lesið Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Skoðun Djarfar senur klipptar út Elías Blöndal Guðjónsson skrifar Skoðun Hinn sjö mánaða Sam Fahd Abu Haikal Sveinn Þórhallsson skrifar Sjá meira
Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson Skoðun
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar
Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson Skoðun