„Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíka út vörur í kaupfélaginu Jón Þór Stefánsson skrifar 14. maí 2026 18:02 Húsnæði Kaupfélags Skagfirðinga á Sauðárkróki. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Norðurlands vestra dæmdi í gær karlmann í níu mánaða fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir fjársvik sem beindust að bróður hans. Á árunum 2016 til 2021 sveik maðurinn út vörur úr verslunum Kaupfélags Skagfirðinga, það eru Skagfirðingabúð, Verslun Eyri og Bifreiðaverkstæði kaupfélagsins. Það gerði hann með því að skuldfæra vörur á viðskiptareikning sem hann hafði vitneskju um.
Það mun hann hafa gert í alls 303 skipti, en í ákæru var hann sagður hafa hagnýtt sér rangar eða óljósar hugmyndir starfsmanna um heimild hans til þess. Andvirði þess sem hann sveik út er metið á rúmlega 6,3 milljónir króna. Í málinu lágu fyrir skilaboð sem dóttir bróðurins sendi manninum, föðurbróður sínum, en þar talaði hún um að þau hefðu getað safnað fyrir húsi með þessum peningum og að hann hafi „jú lifað eins og greifi á okkar kostnað“. Kaupfélagið sjálft sendi dómstólnum svör varðandi málið. Í þeim kom fram að „tölvukerfið væri gamalt og byði ekki upp á að hafa skráða aðila sem gætu tekið út af ákveðnum reikningum en til stæði að uppfæra kerfið. Sendir væru út reikningar um hver mánaðamót og ef einstaklingum þætti eitthvað athugavert við þá væri það skoðað. Það væri því hægt að skrifa á reikning í nafni annars aðila eins og er.“ Illa settur og hjálpaði við bústörf Fyrir dómi sagði maðurinn að hann hafi gert samkomulag við hann um þessar úttektir. Hann hafi fengið að taka af reikningnum og hann aðstoðað bróður sinn í staðinn við bústörf. Þetta hafi komið til þar sem hann væri illa settur fjárhagslega. Þeir hafi ekki rætt um umfang úttektanna. Í málsvörn hans var bent á að hann hafi alltaf skrifað eigið nafn undir reikningana. Treysti sínu fólki Bróðirinn sagði fyrir dómi að grunsemdir hans hafi vaknað um að eitthvað furðulegt væri á seyði þegar hann hafi verið farinn að beina viðskiptum sínum annað en til Kaupfélagsins í auknum mæli en reikningarnir þaðan ekki lækkað. Hann hafi þó ekki skoðað það nánar, sem hann viðurkennir að hafi verið kæruleysi, en hann hafi treyst sínu fólki. Héraðsdómur Norðurlands vestra.Já.is Eiginkona bróðurins, mágkona mannsins, sagði fyrir dómi að þegar upp hafi komist um hver ætti í hlut hafi þau boðað hann á sáttafund. Þar hafi hann gengist við því að þetta væri ekki í lagi og beðið um að fá að greiða til baka 50 þúsund krónur á mánuði. Það hafi hann gert í þrjá mánuði og síðan hætt því. Þá sagði hún að þegar maðurinn hafi hjálpað þeim með bústörf hafi þau greitt honum sérstaklega fyrir það. Fremur komist upp hefði hann skrifað annað nafn Í niðurstöðukafla dómsins var lítið gefið fyrir skýringu mannsins að hann hafi ritað eigið nafn á kvittanirnar, og það sanni að hann hafi haft heimildir til úttektanna. Í dómnum segir að svo megi ætla í fámennu samfélagi að starfsfólk kaupfélagsins hafi þekkt hann „og því hefði fremur komist upp um háttsemi hans ef hann hefði skrifað þar annað nafn en sitt eigið“. Líkt og áður segir var maðurinn sakfelldur og dæmdur í skilorðsbundið fangelsi. Honum er gert að greiða bróður sínum rúmlega 6,3 milljónir auk vaxta. Og þá er honum gert að greiða 2,6 milljónir í sakarkostnað og 1,1 milljón í málskostnað.
Dómsmál Skagafjörður Mest lesið Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Innlent Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Innlent „Bara djók sem gekk of langt“ Innlent „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Innlent Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Innlent Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Innlent „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Innlent „Skorri Mánasson“ sagður þjást af „source amnesia“ Innlent Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Innlent Íris Helga neitar sök Innlent Fleiri fréttir „Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Borgarstjóri kom af fjöllum „Lifði eins og greifi“ á kostnað bróður síns með því að svíkja út vörur í kaupfélaginu Húsráðandi mætti þjófnum eftir að hann fór inn og tók bíllyklana „Bara djók sem gekk of langt“ „Mean girls“-stemning í munnlegu prófi við HÍ Lesendur geta reiknað líkur á mögulegum meirihlutum Höfðu afskipti af ölvuðum ungmennum við Valhöll Loka eftir 65 ár: „Koma hingað til að fá að knúsa okkur og kyssa“ Heldur að Kristrún muni banna Björgu að líta til hægri Teknar úr umferð fyrr en til stóð Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Flugvöllur er ekki bara upp á punt Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Grunaður um líkamsárás og rán Listamannalaunakerfi í Reykjavík og róló með karakterum Guðrúnar Helgudóttur „Kristinn, þú ert bara fastur í rörsýn“ „Miðflokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“ Tekist á um framkvæmdir við nýjan miðbæ í Hamraborg Sjálfstæðisflokkurinn stærstur og fylgi Miðflokks eykst á ný Kjósendur vilja helst þessa flokka í samstarf Rýnt í nýja könnun Svona voru kappræður oddvitanna á Sýn Kerfisvilla leiðrétt og spýtukofinn fær að standa Árasin einkenndist af talsverðri heift Segir Kristrúnu dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn Tálbeitan sakfelld en aðrir dómar í Gufunesmáli mildaðir Hjólalest í skólann: Hundrað manns og hundur mættu í „hjólastrætó“ á Kársnesinu Lækka ráðgjöf um hrefnuveiðar vegna villu í útreikningi Sjá meira