Mitoma missir af HM og leiknum gegn Íslandi Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. maí 2026 08:33 Um er að ræða mikið áfall fyrir japanska landsliðið. Clive Mason/Getty Images Kaoru Mitoma verður ekki með japanska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í fótbolta vegna meiðsla sem hann varð fyrir í leik Brighton gegn Wolves á dögunum.
Mitoma hefur verið meiðslum hrjáður á þessu tímabili og aðeins náð að spila 27 leiki fyrir Brighton í öllum keppnum. Hann meiddist í enn eitt skipti síðasta laugardag, nú aftan í læri. Nú hefur það verið staðfest að Mitoma, einn besti leikmaður landsliðsins, muni ekki ná sér í tæka tíð fyrir HM í sumar. Japan verður þar í riðli með Hollandi, Sviss og Túnis. Japan mætir Íslandi í æfingaleik í aðdraganda mótsins þann 31. maí næstkomandi. Þrátt fyrir þessi slæmu tíðindi gátu Japanir glaðst yfir því að Takehiro Tomiyasu, fyrrum leikmaður Arsenal sem spilar nú með Ajax, er mættur aftur í landsliðið eftir tæplega tveggja ára fjarveru vegna meiðsla. Wataru Endo er einnig í leikmannahópnum sem fer á HM, þrátt fyrir að hann hafi aðeins spilað átta leiki í öllum keppnum með Liverpool á tímabilinu vegna ökklameiðsla. Wataru Endo verður með Japan á HM. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images Á móti kemur nokkuð óvænt að Hidemasa Morita, leikmaður Sporting, var ekki valinn í HM hópinn. Morita spilaði samt níu leiki í undankeppninni og var fyrirliði í einum þeirra. Þjálfarinn Hajime Moriyasu ætlar frekar að treysta á Endo og Kaishu Sano, 25 ára miðjumann Mainz. Þá er fyrrum Liverpool-maðurinn Takumi Minamino utan hóps eftir að hafa slitið krossband í janúar í leik með AS Monaco. Japan hefur náð góðum árangri á síðustu tveimur heimsmeistaramótum og komist í sextán liða úrslit í bæði skipti. Síðast datt liðið úr leik gegn Króatíu í sextán liða úrslitum eftir að hafa unnið bæði Þýskaland og Spán í riðlakeppninni. Here are the 26 squad members of the Japan National Team competing in the FIFA World Cup 🇯🇵🔥From J.League, Tomoki Hayakawa, Keisuke Osako, and Yuto Nagatomo have been selected 🔥#JLEAGUE#football pic.twitter.com/kPpEcdIHMD— J.LEAGUE Official (English) (@J_League_En) May 15, 2026
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira