Meirihlutaviðræður í vikunni Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 17. maí 2026 10:52 Ari, Hildur og Pétur fengu flesta kjörna fulltrúa í gær. Vísir/Lovísa Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík hyggst funda með oddvitum hinna flokkanna í vikunni með meirihlutaviðræður í huga eftir að flokkurinn vann stórsigur í sveitarstjórnarkosningunum. Oddviti Samfylkingarinnar er „drullusvekktur“ á meðan oddviti Miðflokksins hampar honum fyrir varnarsigur. „
Við erum ofsalega kát og þakklát og enn þá að ná okkur niður á jörðina eftir gærkvöldið,“ segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins, í Sprengisandi nú í morgun. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík hlaut níu kjörna fulltrúa en úrslitin lágu fyrir í gærkvöldi. Hildur gaf þá þegar út að það væru helst tveir kostir í stöðunni fyrir meirihlutaviðræður, annars vegar samstarf flokksins með Miðflokknum, sem hlaut þrjá fulltrúa, eða Viðreisnar og Framsóknar, sem hlutu tvo og einn fulltrúa. „Það er ekkert komið á hreint með meirihluta,“ segir Hildur við Kristján Kristjánsson þáttastjórnanda. „Ég held við munum leggja spilin á borðið og málefnin munu ráða för.“ „Drullusvekktur“ Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar, voru einnig mættir til að ræða niðurstöður kosninganna. Ari var afar sáttur. „Miðflokkurinn er að vinna stórsigur hlutfallslega og hefur fimmfaldað fylgið sitt í borginni,“ segir hann. Pétur var ekki í sama gír en Samfylkingin fékk fimm kjörna fulltrúa sem er það sama og flokkurinn hlaut í sveitarstjórnarkosningunum árið 2022. „Ég er drullusvekktur,“ segir Pétur. „Það hefur ýmislegt gengið á á kjörtímabilinu og undanfarnar vikur. Mér finnst spjótið standa á Samfylkingunni sem þessum flokki sem er búinn að vera við völd lengi. Það hefur verið máluð sú mynd að það er allt ómögulegt og í rúst í Reykjavík.“ Hann segist þó hafa vitað að einhver mistök hafi verið gerð, til að mynda hið tíðrædda græna gímald, og vissi að það var á brattann að sækja. Hann gagnrýnir umræðuna vikuna fyrir kosningar. „Í fréttum á Rúv kom aftur bensínstöðvarmálið, það var blásið upp og rætt, svo kortamálið sem kemur upp, ársreikningurinn birtur. Það var mikið um að kjósendur væru minntir á að Samfylkingin hefði verið að klúðra,“ segir Pétur. „Ég hef verið að segja að ég er sammála þeim sem hafa verið að nefna að kjósendur vildu breytingar og ég vildi meina að ég væri breytingin.“ Fengu fulltrúa frá Framsókn Ari telur að Samfylkingin hafi þó unnið ákveðinn varnarsigur. Þau fengu jafn marga fulltrúa og í síðustu kosningum, sem þá dugði til áhrifa ólíkt nú. Ekki sé heldur mikil breyting á kjöri hjá Sósíalistaflokknum og Vinstrinu, sem fengu álíka marga fulltrúa, sé litið til þess að Sanna Magdalena fór úr Sósíalistaflokknum yfir í Vinstrið. „Breytingin er hjá þeim sem gefa eftir fylgi, Píratar þurrkast út, Framsókn gefur eftir og Flokkur fólksins. Þetta eru fulltrúarnir sem við erum að fá í Miðflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn,“ segir hann. Ari segist hafa byggt sína kosningabaráttu á því að kjósendur hafi verið að kalla eftir breytingum. Aðspurður hvaða breytingar séu á lista nefnir hann nokkur dæmi. „Það er á mörgum sviðum en það sem mælingar sýna er að kjósendur eru óhressastir með það sem tengist stærðarmörkum eða vaxtarmörkum, samning sveitarfélaganna sem hefur afmarkað þróun borgarinnar varðandi ný hverfi,“ segir Ari. „Svo eru stór mál í skólakerfinu, leikskólanum og víðar þar sem er óánægja og víða með þjónustu við borgarbúa.“ Kallar eftir þverpólitískri samstöðu Hildur kom einnig inn á samgöngusáttmálann, málefni sem var ítrekað rætt í kosningabaráttunni. „Það var hluti af okkar kosningaáherslum að endurskoða samgöngusáttmálann,“ bendir hún á en tekur fram að henni finnist umræðan hafa leitt til eins konar menningarstríðs í borginni og skautun í umræðunni. Hún telur að það sé tækifæri til að endurhugsa málin svo það ríki um þau breið sátt. Þrátt fyrir að fólk vilji hjóla- og göngustíga þýði það ekki að viðkomandi hati einkabílinn, og öfugt. „Það er ákveðið afrek að gera samgöngumál að einu heitasta kosningamálinu,“ segir Hildur Meirihluti þeirra sem taka nú sæti í borgarstjórn hefur ekki gegnt því embætti áður og eru því ákveðin kynslóðaskipti í gangi. „Það hefur gerst að borgarstjórn hefur unnið að stórum málum þverpólitískt, það væri ánægjulegt,“ segir hún. „Borgarbúar gætu verið sáttir og glaðir og ferðast um í umferðinni eins og þeir kjósa.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Sprengisandur Bylgjan Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Fleiri fréttir Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Sjá meira