„Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega“ Smári Jökull Jónsson skrifar 19. maí 2026 16:30 Grímur Atlason er framkvæmdastjóri Geðhjálpar Vísir/Vilhelm Framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir samtökin hafa bent á að svo virðist sem þekkingarleysi sé innan lögreglunnar þegar hafa þarf afskipti af fólki sem glímir við andleg vandamál. Hann segir óhugnanlegt þegar rafbyssum er beitt líkt og gert var við handtöku í Reykjanesbæ í gær.
Lögreglan á Suðurnesjum handtók í gær mann þar sem rafbyssu var beitt við handtökuna. Hafði lögregla verið kölluð út vegna manns í ójafnvægi en hann hafði hellt yfir sig íkveikivökva. Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar segir samtökin hafa haft áhyggjur þegar lögregla tók rafbyssur í notkun. „Úti í heimi hefur þetta verið notað á fólk sem á ekki að vera að nota þetta á og það getur alveg gerst hér á Íslandi líka. Það þarf að hafa í huga að þetta er auðvitað vopn. Þú færð straum og lamast,“ segir Grímur í samtali við fréttastofu. Nefnd um eftirlit með lögreglu fær atvikið sem varð í Reykjanesbæ til skoðunar. Í samtali við lögreglustjórann á Suðurnesjum kemur fram að lögreglumenn á vettvangi íhuguðu að beita öðrum valdbeitingartækjum en hætta hafi verið metin of mikil. „Ég treysti því að lögreglan muni skoða þetta mjög rækilega en mér finnst óhugnalegt þegar svona er notað. Við vorum ekki á staðnum, ekki inn í staðnum og getum ekki sagt að þetta hefði farið öðruvísi ef þetta hefði verið svona og svona,“ segir Grímur. „Hins vegar í aðstæðum þar sem fólk er í persónulegri krísu þá er ákveðin tækni sem er betra að beita ef hægt er og ég vona að lögeglan kunni það og noti. En því miður þá er reynslan að það hefur ekki verið gert og það hefur jafnvel endað mjög illa.“ Eðlisfræðikunnáttan segir að ekki skuli nota rafmagn í þessum aðstæðum Hann segir þekkt að lögregla þurfi að hafa afskipti af fólki sem er í einhvers konar persónulegri krísu eða glímir við andleg vandamál. „Við höfum bent á það í gegnum tíðina að það virðist vera ákveðið þekkingarleysi á hlutum sem er verið að takast á við og þá geta hlutirnir þróast í ranga átt á staðnum. Við viljum meina að það er verið að beita aðferðum víða um heim þar sem er sérstakt teymi hjá lögreglunni sem fer í útköll sem þetta.“ Eins og áður segir hafði maðurinn sem handtekinn var í gær hellt yfir sig íkveikivökva og í kjölfarið borið eld að sér með kveikjara. Maður sem varð vitni að atvikinu sagði að kviknað hefði í manninum eftir að lögregla beitti rafbyssu. Hann var látinn eyða myndskeiði sem hann tók af handtökunni og sagði síðar í samtali við fréttastofu að hann gæti ekki fullyrt að rafbyssan væri ástæðan fyrir að eldur hafi kviknað. „Eðlisfræðikunnátta mín segir mér að ég vil ekki nota rafmagn þar sem kemur neisti í svona aðstæðum. Auðvitað hljómar þetta ekki vel en þegar rætt var um að innleiða ætti þessi vopn í vopnabúr lögreglunnar þá var talað um að þetta gæti gerst. Hins vegar er erfitt að segja að þetta hafi verið kolrangt því ég var ekki á staðnum.“ „Það hefur ekki verið haft samband við okkur“ Geðhjálp hefur átt í samskiptum við lögregluyfirvöld þegar alvarlegir atburðir hafi gerst um hvernig eigi að bregðast við þegar lögregla þarf að hafa afskipti af fólki í andlegu ójafnvægi. „Við höfum boðist til að koma inn í endurmenntun og síðan ræða við nýja lögregluþjóna sem koma inn. Að við fengjum að koma og tala og með fólk sem segir frá sinni reynslu. Svona samtal það eykur skilning. Því miður hefur það ekki gerst, það hefur ekki verið haft samband við okkur.“ Geðhjálp hafi setið marga fundi vegna þessara mála. „Við áttum í ágætis sambandi við ríkislögreglustjóra um þetta en við erum ekki á vettvangi að hitta lögregluþjóna.“ Grímur vill jafnframt ítreka að myndin sem samfélagið hefur af fólki með andleg vandamál sé ekki góð. „Þessi heimur er margslunginn og það er svo margt sem getur komið upp á. Þá er gott að átta sig á að það er ekki allt hættulegt. Myndin sem við höfum af öllu svona geði, það er búið að teikna hana upp eins og hún sé hættuleg. Það hefur verið rannsakað og geðrænar áskoranir auka ekki hættuna á einhverju hræðilegu.“ Koma þurfi fordómum út úr samfélaginu. „Hins vegar, ef einhver sem hefur verið að glíma við vandamál gerir eitthvað, þá kemur það yfirleitt fram. Þegar maður heyrir það þá er maður tilbúinn að styðja þessa kenningu, að fólk sé hættulegt. Það þarf að koma því út úr samfélaginu, þeim fordómum,“ segir Grímur Atlason, framkvæmdastjóri Geðhjálpar.
Heilbrigðismál Lögreglumál Rafbyssur Reykjanesbær Geðheilbrigði Lögreglan Mest lesið Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Innlent Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum Innlent „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Innlent Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Innlent Eldur í Stykkishólmi Innlent „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Innlent „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Erlent Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Innlent Fleiri fréttir Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta hring eftir hring niður fjallið Hvað er í boði um Verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Lýsa eftir landnámshænu við KFC í Hafnarfirði Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Líkir Tryggingastofnun við handrukkara Níutíu prósent minkanna hafi ekki næstu daga af „Það er bara ekkert sniðugt við þetta“ Minkafár í Mosfellsdal og Þjóðhátíð undirbúin Vaktin: Íbúum verulega brugðið og óttast framtíðina í sveitinni Talið að fleiri þúsund minkar gangi lausir Náttúran verði sett í fyrsta sæti en ekki ræktandinn Bæjarstjórinn hvetur íbúa til að halda dýrum inni í bili Gríðarlegur fjöldi minka slapp úr búrum sínum „Mér finnst þetta mjög vel gert hjá henni“ Drjúgdjúpt að kafa eftir gullkistunni í Kattarauga Viðbrögð Mancel við dómsuppkvaðningu komi ekki á óvart Umfangsmiklar götulokanir í kringum almyrkva Mjólkurhvít mengun í Sauðá Skelfur við Landmannalaugar Vonbrigði, götulokanir í almyrkva og handbolta-hástökkvari Fara fram á varðhald á grundvelli almannahagsmuna Sjá meira