Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Lovísa Arnardóttir skrifar 23. maí 2026 13:00 Kristján við störf á Sjoppunni. Aðsend Kristján Aage hárgreiðslumaður lokar um mánaðamótin hárgreiðslustofunni Sjoppunni sem hann opnaði fyrir sextán árum. Hann segir fyrirtækjarekstur rússíbana, metnaðurinn fyrir faginu hafi aukist en fyrir fyrirtækjarekstri ekki. Hann ætlar því að taka upp skærin á Kompaníinu í júní. „
Árið 2010 var ég 23 ára, nýskriðinn úr Tækniskólanum og fullur af hugmyndum um hvernig ég gæti komið með nýjar og ferskar áherslur inn á hársnyrtimarkaðinn. Úr þeim draumórum fæddist Sjoppan. Sjoppan hefur verið lærdómsríkt ævintýri og hef ég kynnst ótal mörgu frábæru fólki á þessu rúmlega 16 ára ferðalagi. Ég hef lært margt, þroskast, mótast og vaxið sem bæði fagmaður og persóna,“ segir Kristján í færslu sem hann skrifaði um lokunina á Facebook sem er birt hér með hans leyfi. Hann segir að núna, sextán árum seinna, hafi hann mikið velt því fyrir sér hvert líf hans sé að stefna og hvað hann vilji leggja áherslu á. „Fyrirtækjarekstur er rússíbani og á sína skemmtilegu tíma í bland við erfiða tíma, fyrirtæki er líka eins og barn sem nær aldrei fullum þroska og þarf alltaf aðhald og flytur aldrei að heiman. Með árunum finn ég að ástríða mín og metnaður gagnvart faginu sem ég er í hefur aukist en áhugi og drifkraftur fyrir því að stjórna og reka fyrirtæki hefur minnkað,“ segir hann og að það veiti honum fátt meiri ánægju en að fá skemmtilegan viðskiptavin í stólinn. Næsti kafli eigi að snúast um það sem er skemmtilegt „Ég vil að næsti kafli í mínu lífi snúist um að gera meira af því og til þess að ég geti það þarf ég að beina allri minni orku í að halda áfram að bæta mig og vaxa sem hársnyrtir – bæði í vinnubrögðum og þjónustu.“ Þess vegna hafi hann ákveðið að loka Sjoppunni og þó svo að hann kveðji stofuna með stolti, söknuði og „smá bugun“ sé hann fyrst og fremst spenntur fyrir nýjum kafla á Kompaníinu frá og með næstu mánaðamótum. „Næstu tvær vikur á Sjoppunni verða skemmtilegar, tilfinningaþrungnar og vonandi fullar af góðum stundum. Ég hlakka til að klára þennan kafla með stæl með vinnufélögunum mínum og öllum þeim sem hafa gert Sjoppuna að því sem hún hefur verið í gegnum árin. Og auðvitað hlakka ég til að taka á móti öllum sem vilja kíkja við – hvort sem það er í stólinn góða eða bara næla sér í einn síðasta Sjoppukaffibolla,“ segir hann að lokum.
Útlit Hár og förðun Vistaskipti Reykjavík Mest lesið Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Neytendur María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Viðskipti innlent Fyrsta apótek Víkur opnað Viðskipti innlent Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Viðskipti innlent Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Viðskipti innlent Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Viðskipti erlent Lögðu til frjálsar greiðslur fyrir siglingar um Hormússund Viðskipti erlent Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Innlent Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Innlent Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Viðskipti erlent Fleiri fréttir María Fjóla lætur af störfum hjá Hrafnistu Fyrsta apótek Víkur opnað Skuldir hækka og afkomuspá lækkar Stóru fyrirtækin geti jafnvel orðið öflugri innan ESB Steingrímur kaupir fyrir 51 milljón króna í Heimum „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records Sjá meira