Icelandair aflýsir fimm brottförum í dag Sigurgeir Þorkelsson skrifar 23. maí 2026 11:24 Bogi Nils Bogason er forstjóri Icelandair. Vísir/Einar Alls hefur fimm brottförum á vegum Icelandair frá Keflavíkurflugvelli verið aflýst í dag. Um er að ræða þrjá áfangastaði í Evrópu og tvo í Bandaríkjunum.
Vísir hefur greint frá því að fella hefur þurft flugferðir niður á síðustu vikum vegna þess að ekki hefur tekist að fullmanna áhöfn. Þá hefur Icelandair einnig gripið til aðgerða til að bregðast við hækkandi eldsneytisverði og skorið niður flugáætlun sína á öðrum ársfjórðungi (apríl til júní) um tvö prósent. Bogi Nils Bogason hefur sagt að margt bendi til að þær raskanir sem orðið hafa á flugáætlun félagsins vegna mönnunarvanda stafi af óformlegum aðgerðum flugmanna, sem eiga í kjaradeilu við félagið. Deilan við flugmenn og flugvirkja komin til sáttasemjara Samningar flugmanna, flugvirkja og flugfreyja hafa verið lausir frá september í fyrra og eru deilur bæði flugmanna og flugvirkja komnar á borð Ríkissáttasemjara. Ítarleg fréttaskýring um málið birtist á Vísi í gær: Brottfarirnar sem um ræðir eru ferðir til Frankfurt, Stokkhólms, Berlínar, Portland í Oregon-ríki og Newark, við New York-borg. Í samtali við fréttastofu staðfestir Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, að brottfarir til Berlínar og Stokkhólms sem aflýsa þurfti í morgun hafi verið vegna mönnunarvanda. Hinum ferðunum hafi verið aflýst vegna vélarskorts. Brottfarartímar dreifast jafnt yfir daginn. Vél til Frankfurt átti að halda af stað laust fyrir klukkan eitt í nótt, Berlín og Stokkhólmur kl. 7:35 í morgun, Portland kl. 10:00 og Newark kl. 17:00 síðdegis. Hefur áhrif á hundruð farþega Búast má við að þetta hafi áhrif á ferðaáætlanir hjá hundruðum farþega en þotur Icelandair taka flestar um það bil 160 til 190 farþega. Aðspurð segir Ásdís að vinna við að endurbóka farþega sé yfirstandandi. Bætt hafi verið kvöldflugi til Berlínar til að bregðast við vandanum. Vélaskortur skýrist af tveimur ástæðum Ásdís segir vélaskortinn til kominn vegna viðhalds og seinkunar sem varð á afhendingu á nýrri Airbus-þotu. Sú átti að koma nú í vikunni en verður ekki komin í þjónustu fyrr en í byrjun júní. Sá vandi sem er tilkominn vegna viðhalds á vélum muni þó leysast á næstu dögum. Ekkert liggur fyrir um hvenær deila Icelandair við flugmenn leysist. Samkvæmt vef Isavia var flugum bæði til Stokkhólms og Færeyja aflýst í gær. Ásdís staðfestir við fréttastofu að ferðin til Færeyja hafi verið felld niður vegna veðurs og sú til Stokkhólms vegna vélaskorts. Fréttin hefur verið uppfærð með frekari upplýsingum frá Ásdísi Ýr Pétursdóttur, forstöðumanni samskipta hjá Icelandair.
Icelandair Flug Kjaramál Bensín og olía Keflavíkurflugvöllur Airbus Tengdar fréttir Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Kjaradeila Icelandair og flugmanna snýst nú um það hversu langt flugmenn eigi að ganga til að liðka fyrir rekstri félagsins. Þeir gáfu verulega eftir í endurreisn Icelandair árið 2020, en félagið sækist nú eftir auknu svigrúmi til að bregðast við taprekstri, harðnandi samkeppni og breyttu flugrekstrarumhverfi. Fundur deiluaðila hjá ríkissáttasemjara í dag snerist meðal annars um flugtíma, hvíld, vaktir og frí; veigamikil atriði í deilunni sem ráða miklu um bæði vinnuskilyrði flugmanna og framleiðni Icelandair. 22. maí 2026 16:27 Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar í fyrramálið vegna kjaradeilunnar þeirra á milli. 21. maí 2026 13:50 Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Ekki tókst í tæka tíð að manna flug Icelandair til Rómar í fyrramálið og hefur því verið frestað um hið minnsta einn og hálfan tíma. Icelandair hefur í síðustu vikum átt í vandræðum við að manna flugvélar. 17. maí 2026 23:21 Mest lesið „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Innlent Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Innlent Sigldu af stað með mótmælandann um borð Innlent „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Innlent Bein útsending frá Hvalfirði Innlent „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Innlent Slagsmál brutust út eftir árekstur Innlent Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Erlent Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ Innlent Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Innlent Fleiri fréttir „Sjaldan verið jafn góður tími og núna fyrir kaupendur“ Bein útsending frá Hvalfirði Í haldi lögreglu eftir fjölskylduerjur í Garðabæ Vilja veita nítján manns ríkisborgararétt Lögregla varar við svikahrappi í Árbæ Í beinni frá Hvalfirði: Mótmælandi enn í hvalbát Handtekin á leið úr landi með ríflega hundrað fuglsegg og lifandi unga Sigldu af stað með mótmælandann um borð Vilja segja „já til að sjá“ „Þetta er eitthvert langsóttasta bull sem ég hef heyrt“ Annmarkar á fleiri en einu stigi málsins Landsréttur sýknar Sindra og Ísidór af hryðjuverkaákæru „Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“ Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálfstæð“ „Þurfum að passa okkur að vera ekki einföld“ Ekki hafi verið ásetningur um að bana sambýliskonunni Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Hyggjast sekta leigusala sem skrá ekki samninga Jón Björn ráðinn sveitarstjóri Þingmenn beðnir um að vera á tánum og tímamót í golfsögu Íslendinga nálgast Mótmælendur ekki kærðir eftir truflun á þingfundi Jón Magnús frá Ölmu og aftur á spítalann Hópur fólks hafi setið um matinn í frískápnum Bein útsending: Samtal um þjóðaröryggi – Lýðræði á tímum upplýsingaóreiðu Myndaveisla: Norðlendingar fögnuðu á 17. júní „Verulega áhugaverður fávitaskapur“ Myndaveisla: Þjóðhátíðardagur Íslendinga haldinn hátíðlegur Slagsmál brutust út eftir árekstur Rubio óskar Íslendingum til hamingju með daginn Þessi fjórtán voru sæmd fálkaorðunni Sjá meira
Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Kjaradeila Icelandair og flugmanna snýst nú um það hversu langt flugmenn eigi að ganga til að liðka fyrir rekstri félagsins. Þeir gáfu verulega eftir í endurreisn Icelandair árið 2020, en félagið sækist nú eftir auknu svigrúmi til að bregðast við taprekstri, harðnandi samkeppni og breyttu flugrekstrarumhverfi. Fundur deiluaðila hjá ríkissáttasemjara í dag snerist meðal annars um flugtíma, hvíld, vaktir og frí; veigamikil atriði í deilunni sem ráða miklu um bæði vinnuskilyrði flugmanna og framleiðni Icelandair. 22. maí 2026 16:27
Icelandair og flugmenn funda aftur í fyrramálið Ríkissáttasemjari hefur boðað samninganefndir Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna til fundar í fyrramálið vegna kjaradeilunnar þeirra á milli. 21. maí 2026 13:50
Gátu enn og aftur ekki mannað flug í tæka tíð Ekki tókst í tæka tíð að manna flug Icelandair til Rómar í fyrramálið og hefur því verið frestað um hið minnsta einn og hálfan tíma. Icelandair hefur í síðustu vikum átt í vandræðum við að manna flugvélar. 17. maí 2026 23:21