Noregur verður hluti af kjarnorkuvernd Frakka Arnór Sigurjónsson skrifar 29. maí 2026 11:00 Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs og Emmanuel Macron, forseti Frakklands undirrituðu á miðvikudag s.l. samstarfsamning í öryggis- og varnarmálum sem felur meðal annars í sér að Noregur verður hluti af kjarnorkuvopnavernd Frakklands. Samningurinn endurspeglar breytta afstöðu Norðmanna til þeirra öryggistrygginga sem Atlantshafsbandalagið og Bandaríkin hafa veitt áratugum saman þegar kemur að vörnum landsins með því að grundvalla landvarnir á eins breiðum grunni og unnt er. Noregur er eftir sem áður tryggur bandamaður innan vébanda NATO og öflugur samstarfsaðili Bandaríkjanna á sviði varnarmála, m.a. á sviði heræfinga í Norður-Noregi og eftirliti með Norðurflota Rússa á Kólaskaga. Eigi að síður er þessi samningur vísbending um það að Evrópuþjóðirnar hafa áhyggjur af staðfestu og vilja Bandaríkjanna til að koma álfunni til aðstoðar á hættu- eða ófriðartímum. Eftirfarandi er það helsta: Frakkland bauð öðrum Evrópuþjóðum að verða hluti af kjarnorkuvernd Frakka í mars s.l. og hafa Pólverjar og Litháar þegið það boð. Frakkland er talið hafa um 290 kjarnorkuvopnaodda á meðan Bretland hefur um 225 og Bandaríkin og Rússland um 5000 hvort fyrir sig. Stoere, forsætisráðherra Noregs staðfestir að Atlantshafsbandalagið og Bandaríkin séu enn mikilvægustu aðilarnir þegar kemur að kjarnorkuvopnafælingu, en kjarnorkuvopnageta Frakka sé mikilvæg viðbót við hernaðargetu NATO. Hann staðfestir að ekki sé gert ráð fyrir staðsetningu franskra kjarnorkuvopna á norskri grund á friðartímum, en Noregur verði hluti af svokallaðri „fremri kjarnokuvopnafælingu.“ Íslensk stjórnvöld hafa einnig reynt að fjölga eggjunum í öryggiskörfu varna landsins, m.a. með samningum við líkt þenkjandi þjóðir og svæðisbundið varnarsamstarf undir forystu Bretlands sem nefnist „Joint Expeditionary Force“ eða JEF. Þar er Noregur einnig samstarfsaðili. Spyrja má hvort það sé ekki skynsamlegt fyrir Ísland að feta í fótspor Norðmanna og gera álíka samkomulag við frönsk stjórnvöld um að verða hluti af kjarnorkuvopnafælingu þeirra? Höfundur er sérfræðingur í varnarmálum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnór Sigurjónsson Öryggis- og varnarmál Kjarnorkuvopn Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Sjá meira
Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs og Emmanuel Macron, forseti Frakklands undirrituðu á miðvikudag s.l. samstarfsamning í öryggis- og varnarmálum sem felur meðal annars í sér að Noregur verður hluti af kjarnorkuvopnavernd Frakklands. Samningurinn endurspeglar breytta afstöðu Norðmanna til þeirra öryggistrygginga sem Atlantshafsbandalagið og Bandaríkin hafa veitt áratugum saman þegar kemur að vörnum landsins með því að grundvalla landvarnir á eins breiðum grunni og unnt er. Noregur er eftir sem áður tryggur bandamaður innan vébanda NATO og öflugur samstarfsaðili Bandaríkjanna á sviði varnarmála, m.a. á sviði heræfinga í Norður-Noregi og eftirliti með Norðurflota Rússa á Kólaskaga. Eigi að síður er þessi samningur vísbending um það að Evrópuþjóðirnar hafa áhyggjur af staðfestu og vilja Bandaríkjanna til að koma álfunni til aðstoðar á hættu- eða ófriðartímum. Eftirfarandi er það helsta: Frakkland bauð öðrum Evrópuþjóðum að verða hluti af kjarnorkuvernd Frakka í mars s.l. og hafa Pólverjar og Litháar þegið það boð. Frakkland er talið hafa um 290 kjarnorkuvopnaodda á meðan Bretland hefur um 225 og Bandaríkin og Rússland um 5000 hvort fyrir sig. Stoere, forsætisráðherra Noregs staðfestir að Atlantshafsbandalagið og Bandaríkin séu enn mikilvægustu aðilarnir þegar kemur að kjarnorkuvopnafælingu, en kjarnorkuvopnageta Frakka sé mikilvæg viðbót við hernaðargetu NATO. Hann staðfestir að ekki sé gert ráð fyrir staðsetningu franskra kjarnorkuvopna á norskri grund á friðartímum, en Noregur verði hluti af svokallaðri „fremri kjarnokuvopnafælingu.“ Íslensk stjórnvöld hafa einnig reynt að fjölga eggjunum í öryggiskörfu varna landsins, m.a. með samningum við líkt þenkjandi þjóðir og svæðisbundið varnarsamstarf undir forystu Bretlands sem nefnist „Joint Expeditionary Force“ eða JEF. Þar er Noregur einnig samstarfsaðili. Spyrja má hvort það sé ekki skynsamlegt fyrir Ísland að feta í fótspor Norðmanna og gera álíka samkomulag við frönsk stjórnvöld um að verða hluti af kjarnorkuvopnafælingu þeirra? Höfundur er sérfræðingur í varnarmálum.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar