HM minningin: Tár vandræðagemlingsins bræddu hjörtu heillar þjóðar Aron Guðmundsson skrifar 30. maí 2026 09:02 Paul Gasocigne yfirgefur völlinn niðurbrotinn. Vísir/Getty Tólf dagar eru þar til HM í fótbolta hefst vestanhafs Vísir mun daglega rifja upp skemmtilegar minningar frá fyrri mótum fram að upphafsflauti. Á HM 1990 grét enska þjóðin með Paul Gascoigne
Englendingar spiluðu í F-riðli á umræddu heimsmeistaramóti og komust áfram á tveimur jafnteflum og einum sigurleik í riðli með Írum, Hollendingum og Egyptum. Í sextán og átta liða úrslitum mótsins kláruðu Englendingar sína leiki svo gegn Belgíu og Kamerún í framlengingu og tryggðu sér þar með undanúrslitaleik gegn Vestur-Þýskalandi á Stadio delle Alpi í Turin. Örlagarík tækling Andreas Bremhe kom Þjóðverjum yfir með marki á 60.mínútu en tíu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma jafnaði Gary Lineker metin fyrir Englendinga. Grípa þurfti til framlengingar og á 98.mínútu fékk Paul Gascoigne að líta gula spjaldið fyrir harkalega tæklingu á Thomas Berthold. Gascoigne, þá leikmaður Tottenham og 23 ára gamall, eins konar vonarstjarna Englendinga, vissi strax upp á sig sökina. Fyrr í útsláttarkeppninni hafði hann fengið að líta gult spjald gegn Belgíu. Tvö gul spjöld í útsláttarkeppni HM þá þýddu sjálfkrafa leikbann í næsta leik. Gascoigne sá draum sinn um að spila í úrslitaleik HM fjara út og tárin tóku að streyma niður kinnar hans. Gascoigne var ekki lengi að átta sig á stöðunni sem upp var komin.Vísir/Getty „Þegar ég var ungur dreymdi mig á hverju einasta kvöldi að spila á HM. Ég var að upplifa drauminn á HM 1990 á Ítalíu. Þegar að ég fékk að líta gula spjaldið vissi ég að draumurinn var á enda,“ sagði Gascoigne um atvikið örlagaríka í viðtali við The Independent fyrir nokkrum árum síðan. England tapaði í vítaspyrnukeppni og Vestur-Þjóðverjar fóru í úrslitaleikinn, enduðu síðan á því að verða heimsmeistarar á meðan England tapaði leiknum um þriðja sætið gegn Ítalíu. Tár Gascoigne í beinni útsendingu fyrir framan heimsbyggðina urðu þó til þess að Englendingar studdu rækilega við bakið á honum og sýndu samúð. Þau voru merki þess hversu miklu máli velgengni með enska landsliðinu á HM skipti hann. Forsíða The Sun degi eftir að draumur Englendinga um heimsmeistaratitil varð að engu Harmur Gascoigne er sá enn þann dag í dag að heimsmeistaramótið á Ítalíu árið 1990 var ekki bara hans fyrsta heimsmeistaramót, heldur einnig það síðasta en Gascoigne átti framundan skrautlegan feril þar sem að vandræði innan sem utan vallar settu strik í reikninginn. „Ég fékk aldrei tækifæri til þess að taka þátt á öðru móti. Þetta voru mínar bestu stundir og ég vildi ekki að þær tækju enda. Ég trúði því staðfastlega að við ættum eftir að standa uppi sem heimsmeistarar.“
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira