Kæru foreldra Sólons gegn Icelandair vísað frá dómi Kjartan Kjartansson skrifar 29. maí 2026 14:25 Í meiðyrðamálinu var látið á það reyna hvort hægt væri að gera Icelandair ábyrgt fyrir ummælum starfsmanna sinna. Vísir/Vilhelm Héraðsdómur Reykjaness vísaði frá meiðyrðamáli sem foreldrar Sólons Guðmundssonar heitins höfðuðu gegn Icelandair. Lögmaður fjölskyldunnar segir til skoðunar að kæra úrskurðinn til Landsréttar.
Sólon var flugmaður hjá Icelandair. Fjölskylda hans segir að Icelandair hafi þvingað hann til þess að segja upp störfum eftir að samstarfskonur hans settu fram ásakanir á hendur honum. Hann sakaði þær á móti um einelti á vinnustað. Örfáum dögum eftir að Sólon sagði upp svipti hann sig lífi, 28 ára gamall, í ágúst árið 2024. Ein kvennanna kærði Sólon síðar fyrir nauðgun og fjórar aðrar sökuðu hann um andlegt eða líkamlegt ofbeldi. Meiðyrðamál Guðmundar Þórðarsonar og Rutar Ólafsdóttur, foreldra Sólons, gegn Icelandair snerist um ummæli um að hann hefði verið hættulegur öryggi starfsfólks Icelandair. Þinghald í málinu var lokað. Að sögn Sævars Þórs Jónssonar, lögmanns fjölskyldunnar, komst dómurinn að þeirri niðurstöðu að Icelandair gæti ekki borið ábyrgð á ummælum starfsmanna sinna. Þetta sé í fyrsta skipti sem látið hafi verið reyna á slíka ábyrgð vinnuveitanda áður. Sævar Þór Jónsson er er lögmaður foreldra Sólons í málinu gegn Icelandair.Vísir/Vilhelm Sævari Þór segir að til skoðunar sé að áfrýja úrskurði héraðsdóms til Landsréttar. Að öðrum kosti að önnur leið verði farin í málinu. Í skriflegri yfirlýsingu sem hann sendi fjölmiðlum sagði ennfremur að úrskurður héraðsdóms lyti aðeins að frávísun málsins en ekki efnisatriðum stefnunnar. „Málinu er hvergi lokið af hálfu umbjóðenda minna,“ sagði í yfirlýsingunni.
Dómsmál Tjáningarfrelsi Icelandair Mest lesið Eftirförin endaði með hvelli Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Nafnabreytingaæði Trumps heldur áfram Erlent Minnst fimm látnir eftir flugslys í Flórída Erlent Ýmislegt bendi til stjórnarskipta í Svíþjóð Erlent Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Innlent Útlit fyrir fyrstu fjarhægristjórnina frá endalokum nasismans Erlent Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Veður „Svona er bara litróf mannlífsins“ Innlent Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Innlent Fleiri fréttir Halla boðar til ríkisráðsfundar Bein útsending: Hvert renna peningar ríkisins á næsta ári? Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Handtökur vegna líkamsárásar og ölvunar á Ljósanótt Eins og að vera kippt aftur á sjötta áratuginn Tíðindi í Kænugarði og fortíðarkennt fjölmiðlaumhverfi Snert á stöðu ferðaþjónustu og fjölmiðla í Sprengisandi Útlendingar kærðir fyrir að framvísa ekki skilríkjum Gómaður við að stela dósum og reyndist vopnaður „Það þarf að setja það í algjöran forgang að börn mæti í skólann“ Narsarsuaq-flugvöllur að öðlast framhaldslíf Posarnir komnir í lag á ný Þyrlan kölluð út vegna slyss við Sólheimajökul Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya olli löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Sjá meira