HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Sindri Sverrisson skrifar 31. maí 2026 09:00 Pelé og Garrincha fengu báðir að fara á HM 1958 og voru báðir verðskuldað valdir í úrvalslið mótsins. Þeir urðu einnig meistarar saman fjórum árum síðar og Garrincha valinn í úrvalsliðið en Pelé meiddist þá í leik tvö. Getty Ef að þá nýráðinn sálfræðingur brasilíska landsliðsins hefði fengið að ráða þá hefðu Pelé og Garrincha ekki spilað á HM í Svíþjóð 1958. Báðir fengu þó að fara á mótið og sigruðu þar hjörtu heimsbyggðarinnar.
Tólf dagar eru þar til HM í fótbolta hefst vestanhafs. Vísir mun daglega rifja upp skemmtilegar minningar frá fyrri mótum fram að upphafsflauti og í dag rifjum við upp þegar Pelé féll á sálfræðiprófi fyrir HM 1958 en varð svo að stærstu stjörnu fótboltans. „Pelé er augljóslega barnalegur. Hann skortir nauðsynlegan baráttuanda. Hann er of ungur til að finna fyrir árásarhneigð og bregðast við með viðeigandi krafti. Auk þess býr hann ekki yfir þeirri ábyrgðartilfinningu sem er nauðsynleg í hópíþrótt.“ Já, það er ekki annað hægt að segja en að mat Dr. Joao Carvalhaes hafi verið afdráttarlaust, fyrir mótið sem gerði hinn 17 ára Pelé svo frægan. Garrincha, sem var sjö árum eldri en Pelé, stóð sig sömuleiðis illa á útpældum greindarprófum Carvalhaes og átti ekki erindi til Svíþjóðar að hans mati. Af mörgum fótboltahetjum Brasilíu í gegnum árin þá trónir Pelé á toppnum.Getty/Alessandro Sabattini Vicente Feola, sem þá var landsliðsþjálfari Brasilíu, gerði sér hins vegar grein fyrir því hversu mikla gullmola hann var með í höndunum og tók þá báða með, eins og Pelé talaði um í ævisögu sinni: „Sem betur fer fyrir mig og Garrincha fór [Vicente] Feola [landsliðsþjálfari Brasilíu] alltaf eftir innsæi sínu frekar en sérfræðingum. Hann kinkaði bara kolli alvarlegur í bragði til sálfræðingsins og sagði: „Þú gætir haft rétt fyrir þér. Málið er bara að þú veist ekkert um fótbolta. Ef hnéð á Pelé er í lagi þá spilar hann.““ Eins og flestum er sjálfsagt kunnugt um þá stal Pelé senunni í Svíþjóð og skoraði þar magnaða þrennu gegn Frökkum í undanúrslitum og tvennu gegn Svíum í úrslitaleiknum. Hann skoraði svo alls 77 mörk í 92 landsleikjum og 680 mörk í opinberum mótsleikjum fyrir félagslið sín; Santos í Brasilíu og svo New York Cosmos í Bandaríkjunum undir lok ferilsins. Guinness heimsmetið hans er 1.279 mörk í 1.363 leikjum en þar eru alls konar æfinga- og sýningaleikir taldir með. Pelé vann HM 1958, 1962 og 1970 með Brasilíu. Hann lést í lok árs 2022.Getty/Robert Cianflone Þó að próf Carvalhaes hafi getið af sér slæmar leiðbeiningar, í ljósi sögunnar, þá þykir hann mikill frumkvöðull og sumir leikmanna brasilíska liðsins hafa þakkað honum í viðtölum fyrir góð ráð og leiðbeiningar sem skiluðu sér á mótinu í Svíþjóð. Honum hafði einnig verið eignaður hluti af heiðrinum þegar Sao Paulo varð fylkismeistari 1957, árið fyrir HM, og þess vegna ákvað brasilíska knattspyrnusambandið að fá Carvalhaes til sín. Brasilíumenn höfðu misst af gullverðlaununum á fyrstu fimm heimsmeistaramótunum og voru tilbúnir að fara óhefðbundnar leiðir til að landa titlinum. Það má svo endalaust deila um hvort og þá hve mikið aðferðir Carvalhaes höfðu að segja um fyrsta heimsmeistaratitil Brasilíu, eð hvort titillinn vannst hreinlega þrátt fyrir hans aðferðir sem eflaust teljast frumstæðar í dag. En hann ruddi braut sem Evrópuþjóðir fetuðu ekki fyrr en mörgum árum síðar og í dag efast sjálfsagt fáir um gagnsemi sálfræðinga við að ná hámarksárangri í íþróttum.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Handbolti Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Enski boltinn Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Fótbolti Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka Körfubolti „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Fótbolti UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Fótbolti Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Fótbolti Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt Fótbolti Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Handbolti Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Handbolti Fleiri fréttir Róbert Frosti og Daníel Tristian á skotskónum Barcelona - Athletic | Fyrsti leikur Rodri fyrir Börsunga Borac - Víkingur | Verða að snúa taflinu við á erfiðum útivelli Fyrstir til að fara alla leið án þess að vinna leik Dregið í Meistaradeild: Hákon mætir Arsenal og Bayern Goretzka mættur til Villa UEFA undirbýr kæru á hendur Infantino Freyr valinn bestur: „Í byrjun mánaðarins var ég ekki með vinnu“ Carragher lýstur gjaldþrota en sagður ætla að borga skuldina Zirkzee til Fiorentina: Samkeppnin eykst enn frekar hjá Alberti Felur samkynhneigðina og fer til félags í Sádi-Arabíu Snýr aftur til uppeldisfélagsins frítt „Þeir eru að fara í Evrópuleik bara til að halda klúbbnum á floti“ Til Forest fyrir átta milljarða eftir eitt mark á síðustu leiktíð Alvarez sagður íhuga skipti til Arsenal Minnst 447 milljónir í boði fyrir Víkinga í kvöld Sjáðu Breiðablik fara á kostum og valta yfir andstæðing sinn í Evrópu Liverpool langt komið með að tryggja sér Barcola Víkingar með bakið upp við vegg Nicolas Jackson á leið til Aston Villa „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum „Við vorum allar alveg með þetta í dag“ Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Orri Steinn kom inn á en Mbappé skoraði þrennu Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Sjáðu tvö fyrstu Evrópumörk kvennaliðs FH í sögunni Sjá meira