United-mennirnir skoruðu bæði í rétt og rangt mark í stórsigri Brassa Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 13:00 Casemiro og Vinícius Júnior fagna marki þess fyrrnefnda í sigrinum á Panama í nótt en á bak við má sjá glitta í Matheus Cunha. Getty/Buda Mendes/ Brasilíumenn unnu stórsigur í nótt í undirbúningsleik fyrir heimsmeistaramótið en liðið vann þá 6-2 sigur á Panama í Rio de Janeiro.
Brasilíska liðið skoraði fjögur mörk í seinni hálfleiknum en alls komust sex leikmenn liðsins á blað auk þess sem eitt marka Panama var sjálfsmark. Carlo Ancelotti, landsliðsþjálfari Brasilíumanna, skipti út tíu leikmönnum í byrjunarliði sínu í hálfleik og liðið reyndist of sterkt fyrir lokaandstæðing Englands í riðlakeppninni. Neymar var þó ekki í leikmannahópnum þar sem hann er að jafna sig eftir kálfameiðsli. Manchester United-mennirnir Casemiro og Matheus Cunha komust báðir á blað á upphafsmínútum leiksins en voru misglaðir með það. Heimamenn þurftu aðeins tvær mínútur til að komast yfir þegar Real Madrid-stjarnan Vinícius Júnior skoraði með skoti fyrir utan teig en hann fékk boltann frá Casemiro. Forystan entist stutt því á fjórtándu mínútu varð Matheus Cunha fyrir því óláni að skora sjálfsmark og jafna leikinn. Liðsfélagi hans hjá Manchester United, Casemiro, kom Brössum aftur yfir þegar hann skallaði inn fyrirgjöf frá Vinícius og endurheimti forystuna fyrir hlé. Þeir Vinícius Júnior og Casemiro höfðu því lagt upp mark hvor fyrir annan. View this post on Instagram A post shared by ESPN FC (@espnfc) Eftir fjölda skiptinga í hálfleik jók Rayan, leikmaður Bournemouth, forystuna átta mínútum eftir að seinni hálfleikur hófst og Lucas Paquetá bætti við fjórða markinu eftir klukkutíma leik. Igor Thiago, leikmaður Brentford, bætti við fimmta markinu úr vítaspyrnu þremur mínútum síðar eftir að brotið var á honum af Orlando Mosquera. Danilo skoraði síðan eftir stungusendingu frá Lucas Paquetá áður en Carlos Harvey minnkaði muninn fyrir Panama undir lok leiks. Brasilía lýkur upphitunarleikjum sínum gegn Egyptalandi í Cleveland á laugardag fyrir opnunarleik sinn á heimsmeistaramótinu sem verður á móti Marokkó þann 13. júní næstkomandi.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira