Steingrímur Ari Arason er látinn Atli Ísleifsson skrifar 3. júní 2026 08:07 Steingrímur Ari Arason. Steingrímur Ari Arason, hagfræðingur og fyrrverandi forstjóri Sjúkratrygginga og Lánasjóðs íslenskra námsmanna, er látinn, 72 ára að aldri.
Greint er frá andlátinu í Morgunblaðinu í morgun, en Steingrímur Ari lést 1. júní. Steingrímur Ari fæddist í Reykjavík 31. desember 1953, sonur Hjördísar Úllu Zebitz og Þorvaldar A. Arasonar lögfræðings. Steingrímur tók stúdentspróf frá MR árið 1973, viðskiptafræðipróf frá Háskóla Íslands 1979 og lauk mastersprófi í hagfræði árið 1983 í Háskólanum í Uppsölum í Svíþjóð. Hann starfaði sem grunnskólakennari í Ólafsvík og síðar við Verzlunarskóla Íslands frá 1978 til 1979. Steingrímur Ari var svo ráðinn hagfræðingur Verslunarráðs Íslands, nú Viðskiptaráðs, og starfaði þar til 1991, þegar hann tók við stöðu aðstoðarmanns Friðriks Sophussonar fjármálaráðherra. Hann gegndi þeirri stöðu til ársins 1998 og tók þá við stöðu framkvæmdastjóra Lánasjóðs íslenskra námsmanna, LÍN. Steingrímur var hjá LÍN þar til hann var skipaður forstjóri Sjúkratrygginga Íslands haustið 2008. Hann lét af því embætti árið 2018. Steingrímur starfaði síðustu árin meðal annars í fjármálaráðuneytinu og var stjórnarformaður Vigdísarholts, sem rekur hjúkrunarheimilin Sunnuhlíð í Kópavogi, Seltjörn á Seltjarnarnesi og Skjólgarð á Höfn í Hornafirði. Eftirlifandi eiginkona Steingríms Ara er Linda Rós Michaelsdóttir, fyrrverandi framhaldsskólakennari, fædd 1951. Börn þeirra eru Herdís, fædd 1980, Valborg, fædd 1982, og Vilhjálmur, fæddur 1985. Barnabörnin eru sjö talsins.
Andlát Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Erlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Innlent Fleiri fréttir Gætir fengið allt rétt á prófi en átta í einkunn Einum sleppt úr gæsluvarðhaldi og tveir eftir Gagnrýna harðlega fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir Ekið á hjólreiðamann í Kópavogi Reykjanesbraut verður lokað vegna framkvæmda Fella niður rannsókn vegna E. coli-sýkingar á Mánagarði Ný göngubrú vígð Íslenskar jökulár úr geimnum Tók stúlku kverkataki og nauðgaði Fluttur með þyrlu á slysadeild eftir slys í tengivirki Ekki ákveðið hvort lagareldisfrumvarpið verði endurflutt Símafrí sett en PISA sýnir engin skýr tengsl við betri námsárangur Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Sjá meira