Vilja banna rússneska túrista Agnar Már Másson skrifar 3. júní 2026 15:16 Tæplega hálf milljón Schenghen-vegabréfsáritana var gefin út til Rússa í Evrópusambandsríkjum á síðasta ári, flestar af Spáni, Ítalíu, Grikklandi og Frakklandi. Mynd úr safni. Getty Ísland er sagt vera meðal þeirra ellefu Evrópuríkja sem krefjast þess að Evrópusambandsríki hætti að veita rússneskum ferðamönnum vegabréfsáritanir. Ráðherrar landanna munu hafa sent framkvæmdastjórn ESB bréf þar sem þeir segji það óboðlegt að rússneskir ferðamenn fái að sóla sig á evrópskum ströndum á meðan sprengjur dynja á úkraínskum borgum.
Pólska útvarpsstöðin RMF greinir frá því að ráðherrar frá níu Evrópusambandsríkjum – Svíþjóð, Tékklandi, Danmörku, Eistlandi, Finnlandi, Lettlandi, Litháen og Hollandi – auk Noregs og Íslands, sem ekki eru í ESB, hafi undirritað bréf til framkvæmdastjórnar ESB þar sem þess er krafist að Evrópuríki stöðvi tafarlaust útgáfu Schengen-vegabréfsáritana til Rússa. Vísir hefur ekki bréfið undir höndum og ekki liggur fyrir hver hafi undirritað bréfið af hálfu Íslands en fréttastofa hefur beint fyrirspurn til utanríkisráðuneytisins vegna málsins. Fram kemur í bréfinu, samkvæmt umfjöllun pólska miðilsins, að ráðherrarnir telji það með öllu óásættanlegt að ferðamenn frá Rússlandi, sem hefur staðið í innrásarstríði í Úkraínu síðan 2022, geti ferðast um Evrópu á meðan sprengjur dynja á úkraínskar borgir og úkraínsk börn eru numin á brott. „Það veldur okkur miklum áhyggjum að fjöldi rússneskra ferðamanna sem verja fríinu sínu á evrópskum ströndum [...] fari vaxandi á sama tíma og eldflaugum og drónum rignir áfram yfir almenna borgara og borgaralega innviði í Úkraínu,“ skrifa ráðherrarnir í bréfinu, samkvæmt umfjöllun miðilsins. Þá munu þeir hafa lýst miklum vonbrigðum vegna fjölgunar vegabréfsáritana sem gefnar eru út til Rússa. Samkvæmt „Schengen-loftvoginni“ sem vitnað er til í skjalinu, voru alls 477.878 Schengen-vegabréfsáritanir gefnar út til rússneskra ríkisborgara árið 2025 í ferðamannaskyni. Stór hluti þeirra eru vegabréfsáritanir fyrir margar komur. Samkvæmt meinta bréfinu segja ráðherrarnir segja að þetta sé í algjörri andstöðu við tilmæli framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og sé alvarlegur galli í sameiginlegri stefnu okkar gagnvart „árásarríkinu“ Rússlandi. Europeiska Pravda greinir frá því sem miðillinn kallar „vegabréfsáritunarverslun“, þar sem Rússar fara framhjá ræðismannsskrifstofum í Mið- og Austur-Evrópu og fá aðgang að Schengen-svæðinu í öðrum hlutum álfunnar. Bréfinu lýkur með lagalegum kröfum til framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins þar sem ráðherrarnir krefjast „innleiðingar nýrra takmarkandi og bindandi vegabréfsáritunarráðstafana í vegabréfsáritunarreglugerðinni“ svo að ESB geti „brugðist betur við fjandsamlegum aðgerðum þriðja lands“. Þeir hvetja til almennrar hertrar stefnu í kerfinu, þannig að „takmarkanir á útgáfu vegabréfsáritana fyrir margar komur nái til allra ríkisborgara Rússlands, óháð búsetustað þeirra“. Bréfið inniheldur einnig ákall um að þróa tafarlaust aðgerðir til að bregðast við „frumkvæði Eistlands frá 11. mars 2026 um að bera kennsl á fyrrverandi og núverandi rússneska hermenn og banna þeim að koma inn á Schengen-svæðið“.
Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Ferðaþjónusta Úkraína Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira