„Auðvitað stendur valdaklíkan saman“ Árni Sæberg skrifar 4. júní 2026 12:00 Margrét Friðriksdóttir í Héraðsdómi Reykjaness. Vísir/Lýður Valberg Margrét Friðriksdóttir, sem var í morgun sakfelld fyrir meiðyrði í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, segir niðurstöðuna ekki hafa komið sér á óvart. „Auðvitað stendur valdaklíkan saman það er gömul saga og ný á Íslandi, en þessum óréttláta dómi verður að sjálfsögðu áfrýjað,“ segir hún.
Líkt og greint var frá í morgun var Margrét dæmd til að greiða 200 þúsund króna sekt í ríkissjóð vegna ummæla hennar um Barböru. Þess var ekki krafist að ummælin yrðu dæmd dauð og ómerk og þau standa því. Margrét kallaði Barböru meðal annars „lausláta mellu“. Margrét hefur nú stungið niður penna á Facebook, þar sem hún tjáir sig um niðurstöðu dómsins. Hún segir Jónas Jóhannsson, dómara málsins, hafa dæmt sig ranglega og að greinilega sé bannað að segja sannleikann um alvarlegt brot á starfsskyldum og siðareglum dómara á Íslandi. Málið á rætur að rekja til staðhæfinga Margrétar um að Barbara hafi átt í framhjáhaldi með öðrum dómara. „Ísland er dapurlegt land löðrandi af spillingu og óréttlæti, þetta mál mun enda fyrir mannréttindadómstólnum, það er engin spurning,“ segir Margrét að lokum.
Dómsmál Meiðyrðamál Margrétar Friðriksdóttur Tjáningarfrelsi Tengdar fréttir „Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Margrét Friðriksdóttir, sem sætir ákæru fyrir meiðyrði í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, segir Barböru hafa framið á henni réttarmorð, með því að sakfella hana fyrir hótunarbrot. Hún hafið reiðst vegna þess og því ritað færslu á Facebook, þar sem hún úthúðaði dómaranum. Hún kveðst hafa opnað orðabók í leit að mildasta orðinu til þess að lýsa Barböru. „Viðbjóðslegur dómur og lauslát mella gefur sinn dóm,“ sagði hún meðal annars. 16. janúar 2026 11:34 Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Endurtekinn málflutningur í meiðyrðamáli Margrétar Friðriksdóttur fór fram í morgun. Ákæruvaldið krefst þess að hún verði dæmd í þrjátíu daga fangelsi. Í lok þinghaldsins beindi Margrét orðum sínum að Barböru Björnsdóttur héraðsdómara og ítrekaði skoðun sína á henni, áður en hún flutti Passíusálm. 29. maí 2026 11:23 Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Margrét Friðriksdóttir og verjandi hennar Hilmar Garðar Þorsteinsson hafa krafist þess að mál gegn henni vegna ummæla um héraðsdómara verði endurflutt. Dómsuppkvaðningu hefur ítrekað verið frestað umfram þann tímaramma sem lög gera ráð fyrir. 18. febrúar 2026 18:32 Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Héraðsdómur Reykjaness hefur hafnað kröfu Margrétar McArthur Friðriksdóttur um að fá að leiða dómarana Barböru Björnsdóttur, Símon Sigvaldason og Sigríði Hjaltested fyrir dóminn sem vitni í meiðyrðamáli lögreglunnar á hendur henni. Barbara og Símon höfðu áður gefið vitni en Margrét hélt því fram að Barbara hefði reynt að hafa áhrif á framburð Símonar. Þá vildi hún að Sigríður kæmi fyrir dóminn vegna ásakana Barböru um áralang einelti af hálfu Sigríðar. 25. mars 2026 13:09 Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Fleiri fréttir Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Sjá meira
„Lauslát mella“ hafi verið mildasta lýsingin á dómaranum Margrét Friðriksdóttir, sem sætir ákæru fyrir meiðyrði í garð Barböru Björnsdóttur héraðsdómara, segir Barböru hafa framið á henni réttarmorð, með því að sakfella hana fyrir hótunarbrot. Hún hafið reiðst vegna þess og því ritað færslu á Facebook, þar sem hún úthúðaði dómaranum. Hún kveðst hafa opnað orðabók í leit að mildasta orðinu til þess að lýsa Barböru. „Viðbjóðslegur dómur og lauslát mella gefur sinn dóm,“ sagði hún meðal annars. 16. janúar 2026 11:34
Margrét átti lokaorðið í málinu og flutti Passíusálm Endurtekinn málflutningur í meiðyrðamáli Margrétar Friðriksdóttur fór fram í morgun. Ákæruvaldið krefst þess að hún verði dæmd í þrjátíu daga fangelsi. Í lok þinghaldsins beindi Margrét orðum sínum að Barböru Björnsdóttur héraðsdómara og ítrekaði skoðun sína á henni, áður en hún flutti Passíusálm. 29. maí 2026 11:23
Málið verði flutt upp á nýtt með nýju vitni Margrét Friðriksdóttir og verjandi hennar Hilmar Garðar Þorsteinsson hafa krafist þess að mál gegn henni vegna ummæla um héraðsdómara verði endurflutt. Dómsuppkvaðningu hefur ítrekað verið frestað umfram þann tímaramma sem lög gera ráð fyrir. 18. febrúar 2026 18:32
Margrét fær ekki að leiða dómaratríóið fyrir dóm Héraðsdómur Reykjaness hefur hafnað kröfu Margrétar McArthur Friðriksdóttur um að fá að leiða dómarana Barböru Björnsdóttur, Símon Sigvaldason og Sigríði Hjaltested fyrir dóminn sem vitni í meiðyrðamáli lögreglunnar á hendur henni. Barbara og Símon höfðu áður gefið vitni en Margrét hélt því fram að Barbara hefði reynt að hafa áhrif á framburð Símonar. Þá vildi hún að Sigríður kæmi fyrir dóminn vegna ásakana Barböru um áralang einelti af hálfu Sigríðar. 25. mars 2026 13:09