People have the power? Benedikta Guðrún Svavarsdóttir skrifar 6. júní 2026 08:31 Í vikunni heimsótti goðsögnin Patti Smith eyjuna okkar fögru. Sterk og tilgerðarlaus nærvera hennar skildi fáa eftir ósnortna. Hún minnti okkur á að lögin sem hún samdi fyrir áratugum síðan ættu enn fullt erindi við samtímann. Lokalagið, People Have the Power, er áminning um að lýðræði er ekki áhorfendasport. Það krefst þátttöku, ólíkra sjónarmiða og fólks sem er tilbúið að nýta rödd sína. Á leiðinni norður á tónleikana rakst ég á auglýsingu fyrir Umhverfisráðstefnu Austurbrúar. Það varð kveikjan að þessum pistli. Umhverfisráðstefna án umhverfisradda Á sama tíma og ríkisstjórnin vinnur að lagareldisfrumvarpi sem gæti m.a. markað framtíð sjókvíaeldis um ókomin ár vakna sífellt fleiri spurningar um sjálfbærni greinarinnar. Mikið hefði verið gott og gagnlegt að taka samtalið um þær á þessari umhverfisráðstefnu. Þegar dagskráin er skoðuð blasir við að fulltrúar atvinnulífs, stofnana og þeirra atvinnugreina sem nýta auðlindirnar fá sviðið. Náttúruverndarsamtök, sem hafa árum saman unnið að umsögnum, lagalegu aðhaldi og greiningu á áhrifum þessarar sömu nýtingar, eru hins vegar hvergi sjáanleg. Hvorki fulltrúar stangveiðarinnar né landeigendur sem byggja afkomu sína á villtum laxastofnum eiga heldur sæti á dagskránni. Þá er það beinlínis ámælisvert að á svokölluðum Umhverfisdegi skuli ekki vera gert ráð fyrir erindum frá sérfræðingum sem fjalla um stærstu umhverfisáskoranir hafsins; vernd líffræðilegrar fjölbreytni, verndarsvæði í hafi og áhrif iðnaðarmengunar á vistkerfi fjarða. Erfitt er að sjá hvernig hægt er að ræða framtíð nýtingar náttúruauðlinda á Austurlandi án þess að öll eða amk flest þessi sjónarmið fái einnig að heyrast. Þau geta boðið sér sjálf í salinn. En ekki að borðinu. Það er sérkennileg nálgun á það samtal sem Austurbrú segist vilja skapa. Í svari frá Austurbrú kemur fram að markmiðið hafi verið að fá aðila sem starfa innan greinarinnar eða rannsaka viðfangsefni hennar. Það er einmitt þar sem misskilningurinn liggur. Náttúruverndarsamtök eru ekki utanaðkomandi áhorfendur í þessari umræðu. Félagar í þeim hafa í mörgum tilfellum orðið að sérfræðingum í málum vegna þess að stjórnsýslan og eftirlitskerfin hafa ekki alltaf staðið sig. Þeir hafa lesið leyfisgögn, rýnt í skipulag, fylgst með siglingamálum, náttúruvá, vistkerfum og samfélagsáhrifum. Að skilgreina þessar raddir sem áhorfendur fremur en þátttakendur er ekki hlutlaus ákvörðun. Það er pólitísk ákvörðun. Iðnaðurinn fær hljóðnemann og eftirfarandi staðreyndir tapast Það liggur fyrir að 12 af 17 nýtingarsvæðum á Austfjörðum eru innan lögbundinna siglingaleiða. Verði slys eða óhapp liggur ábyrgðin hjá ríkinu … almenningi í landinu. Það berast fregnir af fjárhagslegum erfiðleikum innan greinarinnar og að austfirska sjókvíaeldisfélagið Kaldvík sé í mikilli niðursveiflu. Þar að auki var það nýlega sett í skammarkrókinn fyrir að hafa ekki skilað inn ársreikningi. Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, hefur enn ekki fengið fullnægjandi svör um álitamál sem snúa að lögmæti sjókvíaeldisleyfa gagnvart vatnshlotalöggjöf Evrópu. Löggjöf sem bannar að vatnshlot séu látin rýrna vegna starfsemi af þessu tagi. Yfir 60% landsmanna og yfir 70% kjósenda ríkisstjórnarinnar vilja ekki sjá vöxt sjókvíaeldis. Halda mætti að þetta kallaði á umræðu og fleiri sjónarmið á ráðstefnunni – ekki færri. Öllu snúið á hvolf Það sem veldur mér mestum áhyggjum er ekki að fólk sé ósammála. Það er heilbrigt og raunar forsenda framfara. Það sem veldur mér áhyggjum er þegar stofnanir sem eiga að skapa vettvang fyrir samtal virðast ekki lengur telja gagnrýnar raddir nauðsynlegan hluta af því samtali. Þöggun byggir ekkert upp. Hún eykur ekki traust, skapar ekki betri ákvarðanir og færir okkur ekki nær þeirri sjálfbæru framtíð sem var sennilega grunnhugmyndin að þessu samsæti. Af þeim sökum hafa fjölmörg náttúruverndarsamtök ákveðið að sitja ráðstefnuna af sér. Ekki vegna þess að þau vilji ekki samtal, þvert á móti. En samtal felst ekki í því að sitja allan daginn í sal og vona að mögulega gefist tækifæri til að skjóta inn spurningum undir lok dags. Í því felst ákveðin niðurlæging. Samtal byggir á því að ólík sjónarmið fái að sitja við sama borð, hlusta hvert á annað og takast á um hugmyndir af virðingu. Ef Austurbrú vill standa undir nafni sem vettvangur fyrir samtal um framtíð Austurlands þarf hún að bjóða líka þeim að borðinu sem eru ósammála. Það er óásættanlegt að kalla þennan fund umhverfisráðstefnu – vegna þess að enginn fulltrúi umhverfissamtaka kemur að borðinu. Þetta er kynningarfundur. Köllum hlutina sínu rétta nafni. Höfundur er formaður VÁ, félags um vernd fjarðar og stjórnarmaður í NAUST náttúruverndarsamtökum Austurlands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Sjókvíaeldi Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar