Vill gera stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 5. júní 2026 16:26 Sigurður Helgi Pálmason vísar í nafnbreytingu Kourani. Samsett Mynd Sigurður Helgi Pálmason, þingmaður Flokks fólksins, hyggst leggja fram frumvarp til breytinga á lögum um mannanöfn. Með frumvarpinu verði stjórnvöldum heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu. „
Á undanförnum árum hafa fjölmiðlar reglulega fjallað um mál einstaklinga sem fengið hafa heimild til að breyta um nafn þrátt fyrir að hafa verið sakfelldir fyrir alvarlega refsiverða háttsemi. Slík mál hafa vakið athygli og orðið tilefni til umræðu um hvort núgildandi lög um mannanöfn taki nægilega mið af hagsmunum annarra sem kunna að vera í húfi þegar einstaklingur með alvarlegan brotaferil óskar eftir nafnbreytingu,“ skrifar Sigurður Helgi í færslu á Facebook. Vísar hann þar án efa í nafnbreytingu Mohamads, áður Kourani, sem tók upp millinafnið Thor og eftirnafnið Jóhannesson og heitir því í dag Mohamad Th. Jóhannesson. Ekki liggur fyrir hvers vegna þessi nöfn urðu fyrir valinu en sumarið 2024 var Guðni Th. Jóhannesson í embætti forseta Íslands. Fjölmargir þjóðþekktir einstaklingar bera nöfnin. „Nýlegt og mjög umdeilt mál varpaði skýru ljósi á þetta. Í því máli hafði viðkomandi hlotið þungan refsidóm fyrir tilraun til manndráps og fleiri brot,“ segir Sigurður. Hann gagnrýnir að þrátt fyrir dóminn hafi viðkomandi fengið að taka upp nýtt íslenskt nafn sem hafi vakið athygli þar sem það svipaði til nafns þjóðþekkts einstaklings. Sigurður nafngreinir ekki Mohamad. Betri vernd fyrir þolendur ofbeldis „Samkvæmt núgildandi lögum hafa stjórnvöld ekki skýra heimild til að taka mið af sakaskrá umsækjenda þegar beiðni um nafnbreytingu er afgreidd jafnvel þótt réttindi annarra eða ríkir almannahagsmunir kunni að mæla gegn slíkri breytingu,“ segir Sigurður. Hann ítrekar að nafn sé mikilvægur hluti af auðkenni einstaklings í samfélaginu. „Af þessum sökum hef ég ákveðið að leggja fram frumvarp á Alþingi til breytinga á lögum um mannanöfn,“ segir Sigurður. „Með frumvarpinu verður lagt til að stjórnvöldum verður heimilt að synja beiðni um nafnbreytingu í afmörkuðum tilvikum þegar umsækjandi hefur hlotið refsidóm fyrir alvarlegt brot gegn almennum hegningarlögum og réttindi annarra mæla gegn slíkri breytingu.“ Með því að leggja fram frumvarpið vonast Sigurður til þess að stuðla að auknu öryggi almennings, einkum þolenda ofbeldis og annarra einstaklinga í viðkvæmri stöðu.
Alþingi Flokkur fólksins Mál Mohamad Kourani Mannanöfn Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Innlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira