„Hann breytti kúlturnum“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 7. júní 2026 10:07 Gummi Gumm gerði mikið fyrir Melsungen að sögn Arnars. getty / vísir Arnar Freyr Arnarsson, leikmaður Melsungen, segir þjálfarann Guðmund Guðmundsson hafa gjörbreytt félaginu þegar hann tók við stjórnartaumunum.
Eftir að hafa rétt misst af þýska meistaratitlinum í fyrra vann Melsungen fyrsta stóra titil í sögu félagsins þegar liðið varð Evrópudeildarmeistari á dögunum. Engan hafði órað fyrir því þegar Melsungen var miðlungslið í þýska handboltanum fyrir nokkrum árum síðan. Guðmundur Guðmundsson tók við stjórnartaumunum árið 2020, þegar hann var enn landsliðsþjálfari Íslands. „Klúbburinn var í uppbyggingarfasa og hann breytti kúlturnum. Við byrjuðum að hlaupa meira og lyfta meira, æfingar urðu harðari og öll umgjörðin í kringum klúbbinn breyttist líka. Hann fær til okkar góða leikmenn sem voru hérna í smá tíma, svo tekur Roberto [Garcia] við og byggði á því.“ Guðmundur fer yfir málin með Arnari. Swen Pförtner/picture alliance via Getty Images Spánverjinn Garcia sem tók við starfi Guðmundar hjá Melsungen átti síðar eftir að vera orðaður við þjálfarastarfið hjá íslenska landsliðinu þegar Guðmundur hætti þar. „Já það kom einhver orðrómur um það en svo tókum við videofund. Hann talaði við mig og Elvar Örn [Jónsson, þáverandi leikmann Melsungen] um þetta. Spurði okkur bara hvað þetta væri nú og sagði að það hefði ekkert verið heyrt í honum, en maður veit ekkert um það.“ „Hann er frábær þjálfari og hefur gert mikið fyrir okkur, bætt mig sérstaklega mikið. Hann er með aðeins öðruvísi sýn en flestir þjálfarar, svona spænskan stíl og pælir mikið í smáatriðum,“ sagði Arnar um Garcia að lokum. Arnar spilar sinn síðasta leik fyrir Melsungen í dag og færir sig um set til Flensburg í sumar.
Þýski handboltinn Mest lesið Mickelson sýndi eiginkonu keppinautar nektarmynd af sér Golf Svona líta 32-liða úrslitin á HM út Fótbolti Mikið fjör en engin mörk hjá Kólumbíu og Portúgal og Kongó skaust áfram Fótbolti Varamaðurinn kramdi hjörtu Írana og Messi skoraði sjötta markið sitt á HM Fótbolti Frá Sauðárkróki til Sarajevo: „Ótrúlega skemmtileg umbreyting og hentar mér vel“ Fótbolti Argentína datt í lukkupottinn: Greið leið í undanúrslitin Fótbolti Bielsa með böggum hildar: „Skildi ekkert eftir mig fyrir úrúgvæskan fótbolta“ Fótbolti Tveir kantmenn gætu verið úr leik hjá Evrópumeisturunum Fótbolti Maður dagsins á HM: Kominn með fleiri mörk á HM en allt síðasta tímabil Fótbolti Ummæli Tuchels um Reece James vekja furðu: „Enginn gat séð þetta fyrir“ Fótbolti Fleiri fréttir Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Sjá meira