Framtíð moskítóflugunnar á Íslandi óljós en ræðst á næstu vikum Jón Þór Stefánsson skrifar 7. júní 2026 20:01 Gísli Már Gíslason líffræðingur. Moskítófluga til hægri. Vísir/Getty Framtíð moskítóflugunnar hér á landi er óráðin. Staða hennar gæti þó skýrst í þessum mánuði. Gísli Már Gíslason, prófessor emeritus í líffræði, segir að það kæmi honum ekki á óvart ef flugan myndi koma sér fyrir fyrst hún sé mætt til landsins.
Síðasta haust fundust moskítóflugur á þremur stöðum á Íslandi. Annars vegar var það tegundin Culiseta annulata sem fannst Mógilsá í Kollafirði. Skömmu síðar greindist hún einnig í Kjós. „Þær lifa sem fullorðnar flugur yfir veturinn. Þær hefðu ekkert farið að verpa fyrr en um þetta leyti, þegar þær fara að skríða út úr húsum og öðru þar sem hiti er yfir frostmarki. Þá eiga þær eftir að verpa, og sá lífsferill getur tekið allt að fjórar vikur þangað til maður verður var við þær aftur,“ segir Gísli í samtali við fréttastofu. Hann bendir á að þær flugur hafi ekki verið í miklu magni, ekkert hafi farið fyrir þeim nema þegar beita var sett fyrir þær. Neðanjarðarlestaflugan Hins vegar fundust moskítóflugur í hesthúsi í Ölfusi. Þær voru í talsvert meira magni, og af tegundinni Culex pipiens f. molestus. „Þær lifa í þessu hlandi og skít sem er hálfhrært saman. Lirfurnar þær eru þar, og þær eru að klekjast í fullorðnar flugur,“ segir Gísli. Þar sem sú tegund fannst bara á þeim bæ er verið að gera tilraunir við að útrýma þeim. Það er gert með silíkon efni sem lætur lirfurnar kafna. „Ef sú tegund kæmi út þá myndi hún dreifa sér, en hún virðist ekki hafa dreift sér. Ég veit ekki hvernig hún komst þangað, gæti hafa verið með einhverjum vörum sem voru fluttar.“ Á þessari mynd er hægt að sjá stærðir flugnanna samanborið við hrísgrjón.Vísir/Heiðar Gísli bendir á að sú tegund gangi undir nafni sem vísar til neðanjarðarlestarkerfi Lundúna: London Underground mosquito. „Hún heldur sig í þessum pollum og öðru sem er við teinana í neðanjarðarkerfinu og er að bíta fólk á pöllunum.“ Heldur að þær geti lifað ágætis lífi Að sögn Gísla eru báðar þessar tegundir algengar um alla Evrópu. Sú sem fannst í Kollafirði og í Kjós finnst bæði í Norður-Noregi og fyrir sunnan við Miðjarðarhafið. „Þannig ég held að þær geti lifað hérna ágætis lífi, eða fengið hér einhverja fótfestu, en við vitum það ekki enn þá fyrr en við sjáum hvort það komi ný kynslóð. Þetta voru svo örfá eintök. Þannig við vitum það ekki fyrr en í lok þessa mánaðar.“
Skordýr Dýr Moskítóflugur Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Fleiri fréttir Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Sjá meira