Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Lovísa Arnardóttir skrifar 11. júní 2026 07:26 Framkvæmdum á að vera lokið í nóvember á þessu ári. Vegagerðin Í dag, fimmtudaginn 11. júní, á milli klukkan 06:00 og 09:00 er stefnt á að færa umferð um Breiðholtsbraut af norðurakbraut yfir á suðurakbraut milli Jaðarsels og Vatnsendahvarfs. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið.
á Vef Vegagerðar segir um framkvæmdirnar að góður gangur sé á þeim og að það styttist í að brúin verði tilbúin. Þar sé unnið að frágangi, ásamt vegtengingum sitt hvoru megin við brúna, eða frá Breiðholtsbraut að Vatnsendavegi. Á brúnni er bæði akbraut og göngu- og hjólastígur. Skammt frá, eða við vegamót Breiðholtsbrautar og Vatnsendahvarfs, stendur yfir vinna við jarðvegsskipti og í vegstæði Arnarnesvegar, milli Vatnsendavegar og Rjúpnavegar, er unnið við fyllingar og frágang ofanvatnslagna. Ljósastaurar settir upp Við göngu- og hjólastíginn, sem verið er að leggja austan við veginn, er unnið við uppsetningu ljósastaura og frágang burðarlags undir malbik. Samhliða þessum framkvæmdum er unnið við malbikun og umhverfisfrágang og þegar er búið að þökuleggja hluta svæðisins. Þá kemur einnig fram að bygging nýrrar göngubrúar við Arnarnesveg á móts við Turnahvarf sé langt komin og unnið er að lokafrágangi hennar. Við nýju undirgöngin, sem eru í byggingu undir Arnarnesveg við Rjúpnaveg, er unnið við stoðveggi sem koma við enda undirganganna. Fræsa á Arnarnesvegi og malbika við Smáralind Á vef Vegagerðarinnar kemur einnig fram að í kvöld, fimmtudagskvöldið 11. júní og aðfaranótt föstudags 12. júní, milli kl. 21:00 og 07:00, verður unnið við fræsingu í suðurátt á 1100 metra kafla frá Arnarnesvegi. Þrengt verður að umferð í eina akrein og má búast við töfum á umferð. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið. Þá verður haldið áfram malbikun í kvöld 11. júní og aðfaranótt föstudags 11. júní, milli kl. 21:00 og 07:00, í suðvesturátt meðfram Smáralind. Þrengt verður að umferð í eina akrein í upphafi kaflans en umferð svo beint inn á Fífuhvammsveg. Slaufu af Fífuhvammsvegi á Reykjanesbraut verður lokað meðan á vinnu stendur. Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðið. Unnið á Hvammstangarvegi Á landsbyggð er vega- og klæðingarvinna á Hvammstangavegi út júlí. Unnið er frá klukkan 07:30-19:00 alla virka daga og aðra hverja helgi. Búast má við einhverjum umferðartöfum og eru vegfarendur beðnir að aka varlega og virða merkingar á svæðinu.
Skipulagsmál Umferð Vegagerð Reykjavík Kópavogur Garðabær Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira