Söguleg endurkoma Knicks Andri Broddason skrifar 11. júní 2026 07:30 Leikmenn Knicks fögnuðu sögulegri endurkomu vel. Al Bello/Getty Images New York Knicks vann fjórða leik úrslitaviðureignarinnar í NBA gegn San Antonio Spurs í nótt. Knicks var á tímabili 29 stigum á eftir Spurs sem gerir þetta stærsta viðsnúning í sögu úrslita NBA.
Spurs byrjaði leikinn frábærlega og var vel yfir í fyrri hálfleik 76-49. Í hálfleik hefði jafnvel verið hægt að halda því fram að Spurs væri búið að vinna leikinn en sögulegir hlutir áttu eftir að gerast. Í síðustu tveimur leikhlutunum var eins og Spurs-liðið væri einfaldlega búið á því. Það var engin orka frá liðinu og skoraði liðið aðeins fjórtán og sextán stig í hvorum leikhluta. Stjarna leiksins var án efa OG Anunoby hjá Knicks. Hann var ekki með flest stig en þegar það skipti máli þá steig hann upp. Þegar aðeins 5,7 sekúndur voru eftir var Knicks einu stigi undir en héldu boltanum. Stigahæsti leikmaður liðsins, Jalen Brunson, fékk boltann og skaut nánast strax. Boltinn fór í hringinn en Anunoby sveif manna hæst og blakaði boltanum ofan í körfuna. OG ANUNOBY WITH THE PUTBACK.KNICKS COMPLETE THE 29-PT COMEBACK FOR THE WIN.LARGEST COMEBACK IN NBA FINALS HISTORY 🤯 pic.twitter.com/ZtWVWY6JsR— NBA (@NBA) June 11, 2026 Þetta reyndist síðasta karfa leiksins og tryggði Knicks ótrúlegan eins stigs sigur, 107-106. Þetta var ekki eina mikilvæga atvik Anunoby í lokin. Spurs hefði getað klárað leikinn eftir að hafa unnið boltann þegar Spurs var einu stigi yfir, 106-105. De’Aron Fox hjá Spurs keyrði upp völlinn og ætlaði að setja auðvelt sniðskot niður en þá kom Anunoby upp úr þurru og blokkaði skotið. Just before his game-winning putback to complete the Knicks' NBA Finals-record 29-point comeback... OG Anunoby delivered a CLUTCH block on the other end.TWO-WAY IMPACT ON DISPLAY 💯 https://t.co/IcOqBvvOyh pic.twitter.com/CWmlQVckuA— NBA (@NBA) June 11, 2026 Mikil fagnaðarlæti brutust út í New York-borg eftir sigurinn. Knicks geta í næsta leik tryggt sér NBA titilinn í fyrsta skipti síðan 1973.
NBA Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjáðu tilþrif Berglindar úr úrslitaleiknum: Skoraði 46 meira en næsti leikmaður á EM Lakers selt fyrir metupphæð Berglind fékk Gullboltann Stórbrotin endurkoma næstum því nóg í úrslitaleiknum Komust í 8-liða úrslit þrátt fyrir tap Fyrsti leikur LeBron með Sixers gegn meisturum Knicks Berglind langstiga- og framlagshæst á EM Sjá meira