Viðskipti innlent

Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis

Agnar Már Másson skrifar
Lögmannastofur kanna hvort grundvöllur sé fyrir málsókn gegn Oculis.
Lögmannastofur kanna hvort grundvöllur sé fyrir málsókn gegn Oculis. Vísir/Vilhelm

Lögmannsstofur í Bandaríkjunum athuga nú hvort grundvöllur sé fyrir því að höfða mál gegn Oculis fyrir hönd hluthafa vegna hugsanlegra verðbréfasvika eða annarra ólöglegra viðskiptahátta. Slíkar rannsóknir eru vissulega algengar en ein lögmannastofa bendir á að stjórnendur hafi mögulega farið geyst með yfirlýsingar um lyfið OCS-01 sem reyndist svo ekki ná settum árangri í lyfjarannsókn.

Nokkrar lögmannsstofur birtu tilkynningar á dögunum þar sem þær leita að hluthöfum sem töpuðu miku fé þegar verðbréf í Oculis hrundu um mánaðamótin í kjölfar þess að líftæknifyrirtækið tilkynnti um slæmar niðurstöður tveggja rannsókna, svokallaðra DIAMOND-rannsókna, á lyfjunum OCS-01.

Kanna þær hvort hægt sé að ráðast í rannsókn, og svo hugsanlega hóplögsókn, snýr að því hvort Oculis og stjórnendur þess hafi hugsanlega gerst uppvísir um verðbréfasvik eða aðra ólöglega viðskiptahætti, þá einkum hvort félagið hafi farið of geyst með yfirlýsingar um lyfið áður en niðurstöður úr prófum lágu fyrir.

Slíkar rannsóknir eru vissulega algengar í Bandaríkjunum og einkum á sviði líftækni, þar sem fjórða hvert verðbréfasvikamál í Bandaríkjunum varðar vísindafyrirtæki.

Lögmannastofan SueWallSt. bendir aftur á móti á í tilkynningu í Financial Times að Riad Sherif, forstjóri Oculis, hafi á ráðstefnu J.P. Morgan í janúar haldið því fram að fram að þeir „vita að það virkar“ og að lyfið væri „samþykkt“ „hvað líffræðina varðar.“

Þegar tilkynnt var um vonbrigðin í byrjun júní hrundi hlutabréfaverð Oculis bæði á bandarískum markaði en einnig íslenskum, með tilheyrandi tapi fyrir hlutabréfasjóði á Íslandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×