Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 12. júní 2026 15:02 Svona lítur beinagrind þríhyrnu út. Getty Starfshópur um risaeðlur fundaði átta sinnum yfir þriggja ára tímabil til að meta hvort Reykjavíkurborg ætti að taka við risaeðlubeinum að gjöf. Framkvæmdastjóri samtakanna Leap Lab vildi gefa Reykjavík beinin í nafni móður sinnar, sem er íslensk.
Fyrr í dag var greint frá ákvörðun borgarráðs um að afþakka risaeðlubein, nánar tiltekið þríhyrnu (triceratops), sem samtökin Leap Lab vildu gefa borginni. Það var niðurstaða starfshópsins að með því að þiggja gjöfina myndi óhjákvæmilega fylgja töluverður kostnaður og margir óvissuþættir. Jón Halldór Jónasson, á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, Guðbrandur Benediktsson, menningar- og íþróttasviði, og Stefanía Sch. Thorsteinsson, fjármála- og áhættustýringasviði, áttu sæti í starfshópnum. Engin aðkeypt vinna eða útlagður kostnaður var vegna funda né skýrslu, eingöngu vinna starfsmanna samkvæmt skriflegu svari borgarinnar við fyrirspurn fréttastofu. Hópurinn var skipaður í tíð Dags B. Eggertssonar sem borgarstjóra í framhaldi af tillögu í borgarráði. Meðal verkefna hópsins var að meta kostnað við gjöfina, þar með talið flutning á beinagrindinni, uppsetningu og varðveislu. „Þá metur starfshópurinn kostnað vegna smíði þeirra beina sem upp á vantar, fær staðfestan uppruna þeirra beina sem um ræðir auk rekstrarkostnaðar, viðhalds og annars slíks á beinunum. Þá er starfshópnum einnig falið að kanna áhuga safna og sýningarhaldara á að hýsa beinagrindina og annast kostnað skv. sérstökum samningi,“ segir í erindsbréfi starfshópsins sem Dagur undirritaði. Fimm ára gömul þegar hún fann fyrsta beinið Marcus Eriksen, hálfíslenskur fornleifafræðingur, er framkvæmdastjóri Leap Lab en það var Avani Cummins, dóttir Eriksen, sem fann beinin þegar hún var fimm ára gömul. Hún fann fyrst lítinn hluta úr rifbeini og fundust fleiri bein í kjölfarið. Marcus Eriksen, Anna Cummins og Avani Cummins, dóttirin sem fann beinagrindina. Eriksen vildi gefa Reykjavíkurborg beinin í nafni móður sinnar og systkina sem ólust upp í Reykjavík. Móðir Eriksen flutti til Bandaríkjanna þegar hann var þriggja ára gamall. „Ég hef heyrt ótal sögur um líf hennar í Reykjavík um miðbik síðustu aldar og mig langar að heiðra kynslóð hennar með þessari gjöf til borgarinnar,“ var haft eftir Eriksen í tilkynningu á vef borgarinnar árið 2022. Skilyrði gjafarinnar var að beinagrindin fengi nafn móður hans og yrði höfð til sýnis á safni eða sýningu í Reykjavík.
Borgarstjórn Reykjavík Risaeðlur Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Fleiri fréttir Fjórtán fá styrk frá Eyjólfi Karlmaður um þrítugt játar rúðubrot á Seltjarnarnesi Þriðjungur undir áhrifum í rafskútuslysum Bein útsending: 18 ára og hvað svo? Viðreisn í Kópavogi vill fresta nýjum einkunnakvarða Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Stjórnin láti hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Sjá meira