„Skyldan kallar hjá kærastanum“ Sindri Sverrisson skrifar 15. júní 2026 08:02 Katy Perry og Justin Trudeau nutu sín vel saman yfir sigri Bandaríkjanna gegn Paragvæ á föstudagskvöld. Skjáskot/RÚV Justin Trudeau, fyrrverandi forsætisráðherra Kanada, sá ástæðu til að afsaka þá umdeildu ákvörðun sína að mæta á fyrsta leik Bandaríkjanna á HM í fótbolta í stað þess að mæta á fyrsta leik þjóðar sinnar.
Trudeau var á meðal áhorfenda þegar Bandaríkin unnu Paragvæ 4-1 í Los Angeles á föstudagskvöld, örfáum klukkustundum eftir að Kanada gerði 1-1 jafntefli við Bosníu í Toronto. Kanadíski stjórnmálamaðurinn var á leiknum í Los Angeles til að sjá kærustu sína, poppstjörnuna Katy Perry, troða upp fyrir leik áður en þau horfðu svo á bandaríska liðið fara á kostum í fyrsta leik. Myndavélarnar voru á þeim allan tímann og sjónvarpsáhorfendur gátu séð þau kyssast og sötra bjór saman í stúkunni. Canada hosted its first World Cup match in Toronto.Justin Trudeau chose to attend the USA opener instead.And yes, he was caught on camera jumping up to celebrate an American goal.You really can't make this stuff up. pic.twitter.com/Gj37BwVGnJ— Shazi (@ShaziGoalie) June 13, 2026 „Stundum er það þannig að skyldan kallar hjá kærastanum. En þið vitið hvaða lið ég styð til sigurs í keppninni,“ skrifaði Trudeau á samfélagsmiðla og bætti við mynd af kanadíska fánanum. Bandarískir og kanadískir miðlar höfðu þá fjallað um ákvörðun Trudeau og ljóst að það féll illa í kramið hjá að minnsta kosti sumum af löndum hans, að hann skyldi ekki frekar mæta á fyrsta leik Kanada á mótinu. Sometimes supportive boyfriend duties call. But you know who I’m rooting for to take the Cup 🇨🇦 https://t.co/85DXvsyCPp— Justin Trudeau (@JustinTrudeau) June 14, 2026 BBC vísar í ummæli á samfélagsmiðlum þar sem Trudeau er kallaður „föðurlandssvikari“ eða „loddari“ sem hafi með þessu „slegið þjóð sína utan undir“. Trudeau og Perry sáust fyrst stinga saman nefjum í fyrrasumar og þau staðfestu svo sambandið í lok október.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Körfubolti KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Körfubolti Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti „Guð morning!“ Enski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Körfubolti Fleiri fréttir Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin „Ég sá fólk gráta úr gleði“ Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Sjá meira