Veðrið best á höfuðborgarsvæðinu á þjóðhátíðardaginn Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 16. júní 2026 12:18 Veðrið verður best á höfuðborgarsvæðinu á morgun ef spár ganga eftir en á Rútstúni í Kópavogi verður hátíðardagskrá. Vísir/Vilhelm Útlit er fyrir að veðrið verði einna best á höfuðborgarsvæðinu á morgun þegar landsmenn fagna þjóðhátíðardeginum en rignt gæti á hátíðargesti á Austurlandi.
Hátíðarhöld verða víða um land á morgun í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní. Hátíðardagskráin í Reykjavík hefst klukkan ellefu á Austurvelli á því að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra Íslands leggur blómsveig frá íslensku þjóðinni að minnisvarða Jóns Sigurðssonar og Halla Tómasdóttir forseti Íslands flytur hátíðarræðu. „Við munum að venju vera með risastóra skrúðgöngu sem fer frá Hallgrímskirkju og hún fer niður í Hljómskálagarð þar sem við tekur bara skemmtileg fjölskyldudagskrá fyrir alla. Í Hljómskálagarðinum verða hoppukastalar og skátarnir eru með svona þrautabrautir alls konar,“ segir Björg Jónsdóttir verkefnastjóri viðburða hjá Reykjavíkurborg. Nokkrir þekktir listamenn munu troða upp í Hljómskálagarði. „Þar koma fram Amabadama, VÆB og Páll Óskar. Svo verða danshópar frá ýmsum dansskólum og allt frítt. Við rukkum ekki í nein leiktæki eða neitt og svo verða matarvagnar þannig að það er hægt bara að verja deginum í garðinum.“ Einhverjar lokanir verða í kringum Austurvöll, Lækjargötu, Hljómskálagarðinn og Hallgrímskirkju um tíma yfir daginn. Hátíðarhöld verða víða um land á morgun en veðurgæðunum verður misskipt og ólíklegt að sólin láti sjá sig. „Á öllu austanverðu landinu er útlit fyrir svona vætusamt og svalt veður. Hins vegar hérna á vesturhluta landsins verður svona eiginlega þurrt að mestu og bara sæmilega milt. Það er kannski rétt að taka fram að í þessari norðaustanátt sem er á morgun þá er í rauninni útlit fyrir að vindur nái sér alls ekki á strik á höfuðborgarsvæðinu. Þannig að þar verður veðrið líklega bara einna best,“ segir Birgir Örn Höskuldsson, veðurfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Undanfarin ár hefur Hljómskálagarðurinn fyllst af fólki á 17. júní og vonast skipuleggjendur til að það verði einnig raunin á morgun. „Veðurspáin er góð og við bara vonumst eftir fullum garði af prúðbúnu glöðu fólki,“ segir Björg Jónsdóttir.
17. júní Reykjavík Veður Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Sjá meira