Réttarhöld yfir Ming Ting halda áfram Árni Sæberg skrifar 16. júní 2026 13:29 Ming Ting Mancel við upphaf aðalmeðferðar þann 12. júní. Vísir/Vilhelm Aðalmeðferð í máli Héraðssaksóknara á hendur Ming Ting Mancel, sem hefur verið ákærð fyrir að hafa, í samráði með eiginmanni sínum Emeric Xavier Mancel, banað dóttur þeirra á hótelherbergi á Edition-hótelinu síðasta sumar, hefst á nú klukkan 14. Færri vitni komust að en vildu þegar aðalmeðferð hófst á föstudag og því koma meðal annars lögreglumenn og geðlæknir fyrir dóm í dag.
Í ákærunni sem fréttastofa hefur undir höndum er því lýst hvernig Ming Ting og Emeric eiga að hafa banað dóttur sinni, Catherine Delphine Mancel. Hafi brugðið snöru um háls dótturinnar Samkvæmt ákærunni eiga þau að hafa haldið henni fastri, meðal annars með því að grípa um hægri upphandlegg hennar. Þá hafi þau brugðið snöru um háls hennar og þrengt að öndunarvegi hennar. Catherine á vegna þessa að hafa hlotið punktblæðingar í andliti og hálsi auk bráðs yfirþans á lungunum. Hjónin eiga síðan að hafa stungið hana tvisvar sinnum með hnífi í brjóstkassann og önnur stungan hæft hjartað hennar. Catherine lést vegna lungnaþembu og rofs á hægri slegli hjartans sem leiddi til blæðingar og blóðfyllu í gollurhúsi hjartans. Hélt í höndina á dótturinni þegar hún var stungin í hjartað Á föstudag lýsti Ming Ting því í löngu máli hvernig dóttir hennar lést og eiginmaður hennar í kjölfarið. Hún sagði meðal annars að hún hefði haldið hönd dóttur sinnar á meðan eiginmaður hennar stakk hana í hjartað. Hún sagði dótturina hafa viljað deyja en að hún hefði frekar kosið aðra aðferð. Eiginmaður hennar hefði svo stungið hana einu sinni áður en hann stakk sjálfan sig til bana.
Manndráp á Reykjavík Edition Dómsmál Reykjavík Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira