Sérsveitin kölluð til í nótt vegna vopnaburðar á hóteli í miðborginni Freyja Þórisdóttir skrifar 17. júní 2026 08:03 Sérsveitin var að störfum í miðborg Reykjavíkur í nótt. Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti. Vísir/Vilhelm Sérsveitin aðstoðaði lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt vegna tilkynningar sem þeim barst um að maður væri vopnaður hníf á hóteli í miðborg Reykjavíkur. Hann á að hafa verið að ógna öðrum manni en maðurinn var handtekinn og vistaður í fangaklefa.
Er þetta meðal þeirra mála sem skráð voru í kerfi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan 17:00 í gær og til klukkan 05:00 í morgun. Alls voru níutíu og eitt mál skráð en það gistu að minnsta kosti sjö í fangaklefa fram á morgun. Í Reykjavík barst einnig tilkynning um mann sem vegfarendur sáu aka bifreið sinni utan í nokkrar aðrar bifreiðar og var hann handtekinn og vistaður í fangaklefa. Talsvert var um að afskipti væru höfð af ökumönnum vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna og áfengis. Var að stytta sér leið yfir gagnstéttina Framinn var þjófnaður í þremur mismunandi verslunum, í hverfi 201, 108 og 210, en í einni þeirra komust þjófarnir á brott með þýfið og er málið enn í rannsókn að svo stöddu. Í umdæmi lögreglustöðvar þrjú, sem sinnir verkefnum í Kópavogi og Breiðholti, var ökumaður bifreiðar sektaður fyrir að aka bifreiðinni á gangstétt. Hann játaði brotið þegar lögregluna bar að garði og kvaðst hafa verið að stytta sér leið. Tveir menn í annarlegu ástandi ógnuðu vegfarendum í hverfi 110 en lögreglan á Stöð 4 sinnti útkallinu og var mönnunum vísað á brott án vandræða. Í sama umdæmi var leigubílstjóri í vandræðum með farþega sem neitaði að borga fyrir farið. Farþeginn sá að sér þegar lögreglu bar að og borgaði.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Fleiri fréttir Ný skýrsla Orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Sjá meira