Golf

Reyna að hefja leik á U.S. Open á ný

Aron Guðmundsson skrifar
Mikil þoka er á Shinnecock vellinum þar sem að U.S. Open fer fram.
Mikil þoka er á Shinnecock vellinum þar sem að U.S. Open fer fram. Aðsend mynd: Sigmundur Einar Másson

Veðrið er strax farið að setja strik í reikninginn á U.S. Open risamótinu í golfi. Mótið fór af stað í morgun en hafði ekki staðið lengi yfir þegar að leik var frestað vegna þoku. Frestunin stóð yfir í um tvær klukkustundir

Fyrstu ráshópar voru farnir af stað í sína hringi þegar fresta þurfti leik vegna þoku. Þeir voru beðnir um að yfirgefa völlinn og núna fyrir klukkan eitt bárust tíðindi að því að mótið hæfist aftur klukkan 13.05 á íslenskum tíma.

Gunnlaugur Árni Sveinsson átti að hefja sinn hring rétt fyrir klukkan hálf sjö í kvöld en nú þykir nokkuð ljóst að hann muni fara seinna af stað í sinn hring.

Búist var við því að veður gæti sett strik í reikninginn á mótinu, en þá aðallega hvað varðar vindstyrk. Þokan kemur mönnum kannski örlítið á óvart. 

Hvað vindinn varðar gætu það verið góðar fréttir fyrir þá sem eiga teig seint, eins og Gunnlaugur Árni, að fara seinna af stað en áætlað var. Þar með gæti versti vindurinn verið dottinn niður. 

Veðurspáin fyrir daginn gæti verið betri. Spáð er einhverri rigningu fyrri part dags og svo á að hvessa eftir því sem líður á daginn.

Bein útsending frá fyrsta keppnisdegi U.S. Open hefst klukkan fjögur í dag á Sýn Sport.

Aðstæðurnar á Shinnecock Hills vellinum eru erfiðarVísir/Getty




Fleiri fréttir

Sjá meira


×