Klórför eins og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Agnar Már Másson skrifar 18. júní 2026 13:03 „Klóráverkar á hálsi bentu til klórs með fingrum,“ sagði réttarlæknir í héraðsdómi í dag þar sem verið var að taka fyrir mál Ming Ting. Vísir/Vilhelm Réttarlæknir segir að dóttir Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir morð í Edition-málinu, virðist hafa verið með klóráverka á hálsi og áverka eftir snöru. Klóráverkarnir gætu bent til þess að dóttirin hafi streist á móti er hún hafi verið haldin hálstaki af foreldrum sínum. Ming Ting hefur haldið því fram að dóttirin hafi sjálfviljug leyft foreldrum sínum að svipta sig lífi. Réttarhöldin í Edition-málinu eru komin á þriðja dag, þar sem hin 56 ára Ming Ting Mancel hefur verið ákærð fyrir að myrða dóttur sína í samráði við eiginmann sinn, Emeric Mancel heitinn, á lúxushótelinu Reykjavik Edition í júní 2025. Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218. Samkvæmt ákærunni eiga hjónin að hafa haldið dóttur sinni, Catherine, fastri og brugðið snöru um háls hennar til að þrengja að öndunarvegi. Svo hafi þau stungið hana tvisvar með hnífi í brjóstkassann og önnur stungan hæfði hjartað, sem er talin vera dánarorsökin. Aftur á móti hefur komið fram í málflutningi Ming Ting að fjölskyldan öll hafi ætlað að svipta sig lífi á hótelherberginu þessa nótt, aðfaranótt 14. júní. Hún sagðist hafa haldið í hönd dóttur sinnar meðan Emeric hefði stungið hana, síðan hafi þau lagt hana upp í rúm og stungið hana þar aftur. Hún sagði að dóttir sín hefði ekki streist á móti en viðurkenndi engu að síður að dóttir hennar hefði viljað fara á annan hátt. Líkt og þegar fólk „reynir að losa sig úr kyrkingunni“ Réttarlæknirinn, sem framkvæmdi krufningu á Catherine og Emeric, staðfesti að Catherine hefði verið með tvö stungusár í bringunni og hið neðra væri líklegra til þess að hafa hæft hjartað. Þá hafi hún verið með áverka á framanverðum hálsi sem bentu til þess að hún hafi verið kyrkt með bandi. Punktblæðingar bentu til þess að hún hefði verið á lífi þegar kyrkingin átti sér stað. En auk áverka eftir söruna hafi hún verið með klóráverka á hálsi. „Klóráverkar á hálsi bentu til klórs með fingrum,“ sagði læknirinn og líkti áverkunum við það „þegar fólk lendir í kyrkingu, [og] reynir að losa sig úr kyrkingunni“ t.d. með því að grípa um snöruna. Réttarlæknirinn gat aftur á móti ekki útilokað aðrar skýringar á þessum klórförum. Spurður af dómara hvort algengt væri að fólk sýndi ósjálfráða viðbrögð við sjálfsvígi sagði hann það ekki útilokað en það væri þó óalgengt. „Ég myndi alltaf áhyggjur þegar maður sér það,“ sagði hann. Óljóst er hvers konar band var notað í hálstakinu. Af ljósmynd að dæma sagði réttarlæknirinn að þetta liti út fyrir að vera eins konar hleðslusnúra, en fram kom í máli réttarmeinafræðings fyrr í dag að svo virtist sem þau hefðu átt bandið sjálf og DNA-sýni hefðu fundist af öllum fjölskyldumeðlimum á mismunandi stöðum á bandinu. Höggáverkar á enni Auk þessara áverka hefði Catherine verið með punktblæðingar á augunum, sem sé dæmigert fyrir kyrkingu með snöru, og húðblæðingar á limum. Enn fremur hefði Catherine verið með höggáverka og húðblæðingu á hattlínu ennis, sem sé dæmigert um það þegar fólk rekur hausinn í en gæti einnig skýrst af höggi frá annarri manneskju. Þá hafi hún verið með áverka á hægri upphandlegg sem læknirinn sagði að mætti mögulega túlka sem gripfar annars manns, en ekki væri hægt að útiloka aðrar skýringar þar sem áverkar á útlimum væru vissulega algengir. Faðirinn var með nýrnasjúkdóm Fram hefur komið í máli sakbornings bæði fyrir dómi og í fyrri skýrslutökum að fjölskyldan hafi tekið ákvörðun um að svipta sig lífi vegna þess að eiginmaðurinn hefði greinst með nýrnasjúkdóm og væri dauðvona. Læknirinn staðfesti að Emeric hefði verið með mjög alvarlegan nýrnasjúkdóm „Hann var með mjög sjúk nýru,“ sagði hann. „Af verstu gerð má segja,“ bætti læknirinn við og tók fram að Emeric hefði verið með lokastigs nýrnasjúkdóm. Manndráp á Reykjavík Edition Reykjavík Dómsmál Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira
Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.
Manndráp á Reykjavík Edition Reykjavík Dómsmál Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira