Leikkonan Margrét Helga Jóhannsdóttir er látin Freyja Þórisdóttir skrifar 18. júní 2026 15:20 Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona lést á þjóðhátíðardaginn, þann 17. júní, árið 2026. Stefán Karlsson Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona er látin, áttatíu og sex ára að aldri. Hún var fjölhæf listakona og hlaut Edduverðlaun í tvígang, fyrst árið 1999 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Englar Alheimsins, og síðar árið 2012 fyrir leik sinn í kvikmyndinni Eldfjall. Árið 2024 hlaut Margrét Helga svo heiðursverðlaun Grímunnar þar sem henni voru þökkuð framúrskarandi og ómetanleg störf í þágu íslenskrar leiklistar í meira en hálfa öld.
Í tilkynningu sem Hrafnhildur Theodórsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra listamanna í sviðslistum og kvikmyndum (FÍL), sendi fyrir hönd aðstandenda Margrétar er greint frá því að hún hafi látist í gær, á þjóðhátíðardaginn 17. júní. Hún hafi verið fædd þann 4. maí árið 1940 á Brúarlandi í Mosfellssveit og því nýlega orðin 86 ára. Þá er einnig stiklað á stóru yfir farsælan feril Margrétar Helgu en hún útskrifaðist úr leiklistarskóla Þjóðleikhússins árið 1967 og starfaði hjá Þjóðleikhúsinu frá útskrift og til ársins 1972 þegar hún hóf sinn áratuga langa og farsæla leikferil hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Enginn leikið fleiri hlutverk í Laxness verkum Fyrsta hlutverk hennar hjá LR í Iðnó var Ugla í Atómstöðinni og hefur enginn íslenskur leikari leikið í fleiri hlutverk Laxness verkum en Margrét Helga, Sigurlína í Sölku Völku var eitt af þeim hlutverkum sem stóð henni ætíð nærri er haft eftir ástvinum Margrétar. „Margrét Helga var máttarstólpi í starfi Leikfélags Reykjavíkur alla tíð og ásamt öðrum lék hún launalaust í fjölmörgum miðnætursýningum LR til að safna fyrir byggingu Borgarleikhússins,“ segir í tilkynningunni en þar segir jafnframt að hún hafi átt mörg minnisstæð hlutverk á leiksviðinu. Leikrit Birgis Sigurðssonar var fyrst sýnt á níutíu ára afmæli Leikfélags Reykjavíkur og fór aftur á svið tuttugu árum síðar í leikstjórn Hilmis Snæs Guðnasonar. Hér eru Margrét Helga Jóhannsdóttir og Þröstur Leó Gunnarsson í hlutverkum sínum í eldri uppfærslunni. „Í Saumastofunni í leikstjórn Kjartans Ragnarssonar, í Degi vonar í leikstjórn Stefáns Baldurssonar, í Öndvegiskonum í leikstjórn Viðars Eggertssonar og svo sló hún eftirminnilega í gegn í einleiknum Sigrún Ástrós, sem hún kom sjálf með til leikhússins og greiddi fyrir þýðingu verksins og lék yfir 100 sinnum en þar var Hanna María Karlsdóttur leikstjóri.“ Besta leikkona í aðalhlutverki Eitt af síðustu hlutverkum Margrétar Helgu hjá Leikfélagi Reykjavíkur í Borgarleikhúsinu var aðalhlutverkið í verkinu Fjölskyldan, Ágúst í Osage-sýslu, sem Hilmir Snær Guðnason leikstýrði og gekk yfir tvö leikár. Margrét Helga fékk Grímuverðlaun sem besta leikkona í aðalhlutverki fyrir túlkun sína á Violet Weston í Fjölskyldunni. Eftir það lék hún m.a. í Hreinsun, leikstjóri Stefán Jónsson, í Þjóðleikhúsinu. Síðasta frumsýning Margrétar Helgu, þegar hún var komin fast að áttræðu, var í Borgarleikhúsinu, þann 11. janúar árið 2020, en þar fór hún með hlutverk Marínu fóstru í Vanja frændi í leikstjórn Brynhildar Guðjónsdóttur. Framúrskarandi og ómetanleg störf Kvkimyndahlutverk Margrétar Helgu voru m.a. í myndunum Bjarnfreðarson, Fúsi, Börn, Kristinhald undir jökli, Stella í Orlofi og Jón Oddur og Jón Bjarni, ásamt fjölda stuttmynda og sjónvarpsþátta. Árið 2024 hlaut Margrét Helga heiðursverðlaun Grímunnar þar sem henni voru þökkuð framúrskarandi og ómetanleg störf í þágu íslenskrar leiklistar í meira en hálfa öld. Hún var heiðursfélagi í Leikfélagi Reykjavíkur frá árinu 2017 og Bæjarlistamaður Seltjarnarness árið 2004. Margét Helga eignaðist þrjú börn, Guðmund Örn Flosason (d.15.02. 2022), Jakobínu Flosadóttir og Val Jóhann Vífilsson.
Andlát Leikhús Kvikmyndagerð á Íslandi Borgarleikhúsið Þjóðleikhúsið Menning Mest lesið Kíkti í kaffi til kanslarans Lífið Hvað veistu um… skák? Lífið Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Lífið Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Lífið „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Lífið Madison Beer trúlofast NFL-kappa Lífið Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Lífið Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Lífið Skímó á skikkanlegum tíma fyrir ömmur og afa Tónlist Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Lífið Fleiri fréttir Kíkti í kaffi til kanslarans Hvað veistu um… skák? „Ég hef aldrei brotið kynferðislega á neinum á ævi minni“ Madison Beer trúlofast NFL-kappa Sonurinn fékk nafnið Isaiah Ellason Fox Glen Hansard látinn eftir mótorhjólaslys Kavinsky fannst látinn á heimili sínu Fjórar konur ásaka Leto um refsiverða háttsemi í nýrri heimildarmynd Vann með fimm poppstjörnum á einni viku Sjóðheitur Patrekur Jaime með stórstjörnuteiti Tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Safna fjármagni með múrmeldýrum á OnlyFans Gurrý komin aftur á markaðinn Förðunardrottning selur á Framnesvegi „Heimurinn er betur staddur með Höllu sem forseta“ Tíu ár frá greiningunni: „Ég var alltaf ákveðin í að sigrast á meininu“ „Hélt ég myndi aldrei upplifa ást sem þessa“ Bogi Ágústsson á fjölunum sem Sigurjón digri Guðný Ljósbrá og Katrín Björk eignuðust dreng Þýðandi Ódysseifskviðu segir að Nolan eigi að skammast sín Carly Simons lærir að lifa með Parkinson Daði og Árný eiga von á sínu þriðja barni Japanskir sjóliðar troða upp fyrir utan Hörpu Edda Falak og Kristján Helgi selja íbúð í 101 Seyfried syrgir Finn sinn Elegans í hæstu hæðum í fimmtugsafmæli ársins Stjörnulífið: „Heppnasta stelpa allra tíma“ Fundu hvor aðra á ný eftir erfiða reynslu Emma Roberts gengin í það heilaga „Maður getur ekki falið sig á sama hátt þegar allt hárið er farið“ Sjá meira