Straujaði tökumann á HM sem fékk treyju að gjöf Sindri Sverrisson skrifar 19. júní 2026 08:58 Luis Diaz fékk að finna fyrir því frá Abdukodir Khusanov þegar Kólumbía og Úsbekistan mættust. Í sömu andrá meiddist myndatökumaður sem stóð utan vallarins. Getty/Hector Vivas Abdukodir Khusanov sýndi í verki að honum þótti leitt að hafa tæklað myndatökumann niður í fyrsta leik í sögu Úsbekistans á heimsmeistaramóti í fótbolta.
Khusanov, sem er miðvörður hjá Manchester City, fékk gult spjald fyrir tæklingu úti við hliðarlínu í 3-1 tapinu gegn Kólumbíu í fyrrakvöld. Hann tæklaði þá Luis Diaz niður en var á svo miklum hraða að hann rann lengra og tæklaði saklausan myndatökumann niður í leiðinni. Khusanov a fait un tacle très engagé sur Luis Díaz pendant le match Ouzbékistan-Colombie. Résultat : il a aussi fauché le cameraman, qui s’est retrouvé au sol. Le pauvre a été évacué en ambulance 😭 pic.twitter.com/gmTZdGhu9R— ⭐️⭐️|𝒰𝓃 𝒮𝑒́𝓇𝑒̀𝓇𝑒 🇸🇳🏎️ (@Mansour_mmss) June 18, 2026 Sjúkrafólk kom strax að til að hlú að myndatökumanninum og Khusanov gladdi hann svo með góðri gjöf eftir leikinn. Miðvörðurinn öflugi gaf nefnilega myndatökumanninum áritaða treyju og hafði skrifað á hana „fyrirgefðu“. Þessa gjöf færðu fulltrúar knattspyrnusambands Úsbekistans þegar þeir heimsóttu myndatökumanninn til að kanna hvernig hann hefði það. Með fylgdu óskir frá Khusanov um skjótan bata. 🇺🇿 Abdukodir Khusanov has personally apologised to the cameraman whom he flattened last night. As a way of apology, he's given him a signed shirt with 'I AM SORRY' written in pen. pic.twitter.com/y3GkJmvfGI— Football Tweet ⚽ (@Footballtweet) June 18, 2026 Úsbekistan á næst leik við Portúgal á þriðjudaginn og spilar svo við Austur-Kongó í lokaumferð riðlakeppninnar. Kólumbía er efst í riðlinum með þrjú stig en Portúgal og Austur-Kongó eru með eitt stig hvort eftir óvænt jafntefli liðanna.
HM 2026 í fótbolta Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Körfubolti Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Íslenski boltinn Fimmtán leikmenn meiddir: Er lengra landsleikjahlé betra eða verra? Sport Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Fótbolti Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Fótbolti „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ Fótbolti Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Fótbolti KR vann erkifjendurna sannfærandi Körfubolti „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Handbolti Fleiri fréttir Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ „Svo lengi sem ég get hlaupið vil ég spila fyrir Ísland“ „Hefðum tapað ef Hákon væri ekki í markinu“ „Það sem svíður mest“ Uppgjörið: Eistland - Ísland 0-0 | Markalaust en strákarnir á toppnum Einkunnir Íslands: Takmörkuð gæði í Tallinn Ronaldo segir þjálfarann hafa svikið sig Unnu stórsigur og komu Íslandi í umspil Króatía - Spánn 2-1 | Varamaðurinn bjargaði sigri fyrir Spán Kane með tvennu í öruggum sigri Byrjunarlið Íslands: Fimm breytingar og Gylfi inn Uppgjörið: Færeyjar - Ísland 0 - 2 | Umspilssæti Íslendinga staðreynd Leikdagur í Tallinn: Hitað upp á Íslandstorgi fyrir mikilvægan leik Skrýtinn leiktími og leikmenn því ekki með fulla stjórn Af hverju er svona mikilvægt að vinna riðilinn? Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Býst við dæmigerðum leik upp á Skaga í Tallinn Kokhraustir Eistar þegar búnir að toppa sig Andleg og líkamleg heilsa fín í mikilli törn Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Sjá meira