Briddsarar í toppformi leggjast í víking til Ríga Jakob Bjarnar skrifar 22. júní 2026 16:27 Inda Hrönn Björnsdóttir er landsliðskona í bridds og hún er klár í ferðina til Ríga. Pjetur Fjeldsted Mikil og sterk sveit íslenskra briddsara heldur utan í vikunni; þrjár sveitir munu fara og taka þátt í EM í bridds sem haldið verður í Riga í Lettlandi.
Nú á laugardag hefst EM í bridds og er mikill viðbúnaður vegna mótsins. Matthías Imsland, framkvæmdastjóri Bridgesambands Íslands, fer fyrir fríðum flokki spilara og eru miklar vonir bundnar við að árangur náist á mótinu. Svefn- og næringarráðgjafar hafa meðhöndlað liðið „Við erum með lið í opna flokknum, kvennaflokki og Seníora-flokki. Sex eru í hverju liði auk fyrirliða þannig að þetta eru 22 með mér,“ segir Matthías sem sjálfur mun nota tækifærið og sækja þing alþjóða Bridge-sambandsins sem haldið verður á sama tíma auk þess sem stjórnarfundir hjá norræna bridge-sambandinu verða haldnir. Birkir Jón Jónsson nýráðinn bæjarstjóri Grundfirðinga lætur ekki sitt eftir liggja. Hann keppir í opnum flokki.Pjetur Fjeldsted „Já, þetta eru landsliðin í hverjum flokki um sig. Við erum ótrúlega bjartsýn núna enda hefur þetta verið mikið prógramm hjá okkar liði. Við höfum verið með einkaþjálfara, landsliðsmenn hafa notið svefnráðgjafar, næringarráðgjafar og sagt mörg hundruð spil á viku.“ Full ástæða til bjartsýni Þá hafa verið haldnir þrír æfingaleikir við Dani, sem voru í öðru sæti mótsins í fyrra og hafðist sigur gegn þeim sem og hollenska landsliðinu. „Já, við erum ansi bjartsýn. en maður gæti svo sem fengið það í andlitið aftur,“ segir Matthías en á erfitt með að stilla sig í yfirlýsingagleðinni. En það er að miklu að keppa því átta efstu sveitirnar fara áfram á heimsmeistaramótið þar sem sjálf Bermúdaskálin er undir. Matthías Imsland fer fyrir fríðum flokki til Ríga. Hann er vonglaður en stefnan er sett á HM en þangað komast átta efstu sveitirnar sem takast á í EM.Pjetur Fjeldsted „Við höfum sett okkur það markmið að komast á HM. Það væri ægilega gott í sálina á okkur Briddsurum ef það tekst. Og ég held að menn séu vongóðir núna. Það er í það minnsta búið að leggja mikið í þetta. Enginn veikleiki, mikið spilað, mikið meldað, hreyft sig og tekið til í mataræðinu. Í gegnum tíðina hefur íslenska liðið gefið eftir þegar líður á mótið en það á ekki að vera núna,“ segir Matthías vonglaður. Spilararnirnir Þeir sem fara og spila fyrir Íslands hönd eru eftirfarandi: Opinn flokkur Fyrirliði án spilamennsku Jón Hersir Elíasson Að sögn Matthíasar er búið að huga að mataræði, þoli og svefnvenjum hjá íslenska landsliðinu og þeir Sigurbjörn Haraldsson og Magnús Eiður Magnússon eru klárir í slaginn.aðsend Spilarar Sigurbjörn Haraldsson Magnús Eiður Magnússon Birkir Jón jónsson Aðalsteinn jörgensen Stefán jóhannsson Ómar Olgeirrsson Kvennaflokkur Fyrirliði án spilamennsku Anna Ivarsdóttir Svanhildur Hall spilar með kvennaliðinu.Pjetur Fjeldsted Spilarar Inda Hrönn Björnsdóttir Anna Heiða Baldursdóttir María Haraldsdóttir Bender Harpa Ingólfsdóttir Svannhildur Hall Dagbjört Hannesdóttir Seniorar Fyrirliði án spilamennsku Júlíus Sigurjónsson Páll Valdimarsson er í liði Seníora.Pjetur Fjeldsted Spilarar Björn Eysteinssson Guðmundur SV. Hermannsson Páll Valdimarsson Ragnar Magnússon Þorlákur Jónsson Einar Gudjohnsen
Bridge Íslendingar erlendis Lettland Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira